Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 1

Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 1
96 SIÐUR B 290. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þorskveiðar EB-ríkja í Norðursjó: Veiðibann í allt að 135dagaáári Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Sjávarútvegsráðherrar aðildarríkja Evrópubandalagsins (EB) náðu í gær samkomulagi um aðgerðir til að draga úr ýsu- og þorskveiðum i Norðursjó. Gert er ráð fyrir tímabundnu veiðibanni eða öðrum jafngildum aðgerðum. Á fundinum afgreiddu ráðherrarnir heildar- aflamagn EB fyrir næsta ár og jöfnuðu því niður á aðildarríkin. Þá samþykktu ráðherrarnir innflutningskvóta fyrir nokkrar afurðir á lækkuðum tollum. Samkvæmt tillögu framkvæmda- stjórnar bandalagsins um aðgerðir til að draga úr sókn á þorsk- og ýsustofna í Norðursjó eiga útgerð- armenn tveggja kosta völ, annars vegar að binda skip sín við bryggju átta daga samfleytt í hveijum mán- uði eða að öðrum kosti a.m.k. 135 daga, að eigin vild, árið um kring. Jafnframt er ráð fyrir því gert að aðrar jafngildar aðgerðir stjórn- valda geti komið í staðinn fyrir veiðibannið s.s. stækkun möskva í veiðarfærum. Árlega ákveða sjávarútvegsráð- herrar EB leyfílegan hámarksafla fyrir helstu tegundir nytjafíska í lögsögu bandalagsríkjanna auk Eystrasalts og alþjóðlegra miða undan Kanada. Þessir fundir hafa löngum verið miklir átakafundir sem staðið hafa sólarhringum sam- an, oft með takmörkuðum árangri, a.m.k. hvað varðar vemdun og upp- byggingu fiskstofna. Manuel Marin, sem fer með sjávarútvegsmál innan framkvæmdastjórnarinnar, sá sér- staka ástæðu til að fara lofsamleg- um orðum um þá hugarfarsbreyt- ingu sem hann telur hafa átt sér stað hjá ráðherrunum á síðustu ámm. Kvótafundirnir gangi nú orð- ið greiðlega fyrir sig og sem dæmi tiltók hann að allar niðurstöður þessa fundar hafi verið samhljóða. Tillögur framkvæmdastjórnar- innar gerðu ráð fyrir niðurskurði á veiðiheimildum frá yfirstandandi ári. í meðförum fundarins hækk- uðu kvótamir nokkuð en em þó flestir lægri en í ár. Gert er ráð fyrir að heimila veiðar á rúmlega 700 þúsund tonnum af síld, 211 þúsund tonnum af þorski sem er tæplega 30 þúsund tonna sam- dráttur og 83 þúsund tonn af ýsu eða átta þúsund tonnum meira en í ár og rúmlega 13 þúsund tonnum meira en tillögur framkvæmda- stjómarinnar gerðu ráð fyrir. Sjá ennfremur frétt á bls. 2. Reuter Bandarískum matvælum og lyfjum komið fyrir á sovéskum vörubíl- um á Sheremetévo-flugvelli við Moskvu. Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) segir að í vetur verði matvæla- skortur víða í lýðveldum risaveldisins sem nú er í andarslitrunum. Á innfelldu myndinni er Gennadíj Búrbúlis, náinn samstarfsmaður Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, með mynd af væntanlegu skjaldar- merki Rússlands. Það er nauðalíkt merki gamla keisaradæmisins. Ágreiningur forystumanna Samveldis sjálfstæðra ríkja: Úkraínumenn mótfallnir einni yfirstjóm heraflans Kravtsjúk ítrekar að kjarnavopnum á úkraínsku landi verði eytt ANDREJ Vesselovsky, embættis- maður í utanríkisráðuneyti Ukra- ínu, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að það kæmi ekki til greina að Úkraínumenn féilust á einn og sameiginlegan yfirmann alls herafla nýja samveldisins sem reist verður á rústum Sovétríkj- EB ætlar að viðurkenna Slóveníu og Króatíu: Hófsöm viðbrögð Serba vekja nýjar friðarvonir Belgrad, Zagreb. Reuter. CARRINGTON lávarður, sem stýrt hefur tilraunum Evrópubandalags- ins (EB) til að koma á friði í Júgóslavíu, átti í gær viðræður við leið- toga Slóveníu og Króatíu í borginni Graz í Austurríki en ræddi síðar um daginn við leiðtoga Serbíu í Belgrad. Hófsöm viðbrögð Serba við ákvörðun EB um að viðurkenna Slóveníu og Króatíu um miðjan jan- úar hafa vakið nýjar vonir um frið í Júgóslavíu. Carrington fer í sína friðarför í framhaldi af þeirri ákvörðun EB-ríkjanna að viðurkenna Slóve- níu og Króatíu sem sjálfstæð ríki um miðjan næsta mánuð að upp- fylltum vissum skilyrðum. Hefur komið á óvart hvað viðbrögð Serba eða stjómvalda í Belgrad við yfír- lýsingunni eru hógvær, hingað til hafa þeir mótrhælt harðlega því, sem þeir kalla „tilraunir til að sundra sambandsríkinu". Vla- dislaV Jovanovic, utanríkisráð- herra Serbíu, sagði um yfirlýsingu EB-ríkjanna, að með henni væri ekki verið að hjálpa Júgóslavíu en taldi annars of snemmt að túlka hana nánar. Carrington sagðist í gær ekkert sjá því til fyrirstöðu að sjálfstæði Slóveníu yrði.viðurkennt,j)ar væru engir minnihlutahópar. I Króatíu eru 10% íbúa Serbar. Milan Kuc- an, forseti Slóveníu, sagði fyrir fundinn með Carrington, að hugs- anleg tengsl milli júgóslavnesku lýðveldanna í framtíðinni réðust eingöngu af gagnkvæmum hags- munum þeirra, um náið samband gæti ekki orðið að ræða. Sagði hann, að með hernaðinum í land- inu að undanfömu væri búið að fyrirgera því trausti, sem áður hefði ríkt. Tveir serbneskir drengir reyna að halda á sér hita i frostinu. Þeir eru frá þorpinu Mirkovci sem varöliðar Króata réðust á með sprengjuvörpum. anna. Jevgeníj Shaposníkov, varn- armálaráðherra Sovétríkjanna, sagðist í fyrradag búast við því að verða yfirmaður herafla sam- veldisins. Vesselovskjj hafnaði slíkum hugmyndum alfarið: „Við höfum Kravtsjúk og þurfum eng- an annan,“ sagði Vesselovskjj og vísaði til þess að Leoníd Kravt- sjúk, forseti Úkraínu, hefur lýst því yfir að hann sé yfirmaður herafla lýðveldisins. Kravtsjúk ít- rekaði þau ummæli á blaðamanna- fundi í gær. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti viðræður við Kravtsjúk í Kíev í gær og kvaðst „mjög ánægður" að þeim loknum, samkvæmt líeuters-fréttum. Á blaðamannafundi með Baker sagði Kravtsjúk að Úkraína myndi styðja alla alþjóðlega afvopnunarsamninga sem Sovétríkin hefðu undirritað. „Við viljum að Úkraína verði gott fordæmi og sýni hve hratt og örugg- Iega sé hægt að eyða kjarnavopn- um“. Ágreinings verður nú vart milli fyrrum Sovétlýðvelda um framtíð og hlutverk samveldisins sem stofnað var í Minsk í Hvíta-Rússlandi fyrir tíu dögum. Rússneska stjórnin vill að allur heraflinn verði áfram undir einni stjórn og enn er óljóst hverjir muni að lokum ráða yfír kjarnavopn- um Sovétríkjanna. Rússar hafa gefíð til kynna að annaðhvort verði vopn- unum eytt eða þau geymd í Rúss- landi. Kravstjúk sagði í gær að þótt Rússar vildu ráða áfram yfir kjarna- vopnum myndu Úkraínumenn eftir sem áður láta eyða þeim sem væru á úkraínsku landsvæði. í fyrrakvöld sagði forseti Kazakhstans, Núrsúltan Nazarbajev, á hinn bóginn að ef Rússar ætluðu að halda í kjarnavopn- in þá hlytu Kazakhar að gera það líka. Rússar hafa einnig látið í það skína að þeir taki við fastasæti Sovét- ríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Vesselovskíj lagði áherslu á að þetta væri óútkljáð mál og Rússar hefðu formlega ekki gert kröfu um slíkt. Nazarbajev hefur tekið illa í þessar hugmyndir Rússa. En klofningur er einnig innan rík- isstjómar Rússlands. í viðtali við blaðið Nezavisimaja Gazeta, sem tek- ið var 5. desember en birtist í gær, lét Alexander Rútskoj, varaforseti Rússlands, þung orð falla um sam- starfsmenn sína og sagði að þeir kölluðu stjórnleysi og öngþveiti yfír landið. Hann var einkum harðorður í garð Gennadíjs Búrbúlis og Jegors Gajdars, náinna aðstoðarmanna Bor- ís Jeltsíns Rússlandsforseta. Óráð- legt væri að gefa verðlag fijálst 2. janúar eins og boðað hefur verið. Fyrst yrði að einkavæða ríkisfyrir- tæki, skipta upp opinberum jörðum og gera breytingar á fjármálakerfi landsins. Rútskoj sagði að það hefðu verið mistök hjá Jeltsín að taka ríkis- stjórnina í sínar hendur og heita því að segja af sér ef umbæturnar tæk- just ekki. Hann gaf til kynna að Jeltsín hefði færst of mikið í fang; þótt hann væri hraustur að upplagi væri hjartað farið að bila. Rútskoj, sem er 44 ára, yrði arftaki Jeltsíns ef heilsa hans brysti en Jeltsín er liðlega sextugur. Edúard Shevardnadze, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, varaði við því í gær að nýtt valdarán af ein- hveiju tagi kynni að vera í aðsigi. Hann sagði að frjáls verðlagning um áramótin myndi auka upplausnina. Sjá fréttir á bls. 40-41.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.