Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 46

Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 Deilt um afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins - óvíst um þinghlé Afgreiðsla á fjárlagafrum- varpi og tengdum fylgi- og tekjuöflunarfrumvörpum er að venju mál málanna á Alþingi rétt fyrir jól. Og þykir ekki annað við hæfi en að þau séu afgreidd áður en Alþingi er fre- stað og hlé gert á þingstörfum. Stjórnarandstæðingum sýnist að sljórnarliðið vanvirði bæði þingsköp og gott verklag nú síðustu dagana. Mál séu keyrð áfram af slíku ofurkappi að minnihluta nefnda gefist ekkert ráðrúm til að athuga nýjustu útgáfu af sljórnarfrumvörpum og skila sínu áliti. Svavar Gests- son (Ab-Rv) lýsti því yfir að ekki væri hægt að vænta neins samráðs af hálfu sljórnarand- stöðunnar um afgreiðslu þing- mála þegar gengið væri yfir hana. Á þingfundi í gær ræddu þing- menn og þá einkum stjórnarand- stæðingar gæslu þingskapa. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu mjög meint ofríki, flýti og flaust- ursleg vinnubrögð stjórnarliðsins. Mál væru keyrð áfram og lítill tími til þess ætlaður að leita álits ýmissa aðila sem fyrirhugaðar lagabreytingar vörðuðu. Klukkan tíu í fyrrakvöld var útbýtt breytingartillögum frá meirihluta efnahags- og viðskipta- nefndar um frumvarp um ráðstaf- anir í ríkisfjármálum á árinu 1992. Einnig breytingartillögum frá meirihluta sjávarútvegsnefndar um frumvarp um breytingar á lög- um um Hagræðingarsjóð. Þeim þótti og með ólíkindum að leggja fram prentaðar og frágengnar til- lögur nokkrum mínútum eftir að fundi í nefnd hefði lokið. Talsmenn stjórnarandstöðu fundu að því að þessi mál væru strax komin á dagskrá. Minnihluta nefndanna væri lítill tími eða enginn gefinn til að athuga mál og skila sínu áliti. Þeir gagnrýndu það einnig að stjórnaliðið skilaði sínum tillög- um seint og illa. Og væri þetta fádæmi ef ekki einsdæmi. Einnig létu stjórnarandstæðingar þess getið að fyrirhuguð 3. umræða um fjárlagafrumvarpið í dag, fimmtu- dag, væri í hinni mestu óvissu. Enn væri beðið eftir tekjuöflunar- frumvörpum frá nefndum, og einnig væri lögfest í þingsköpum að efnahags- og viðskiptanefnd skyldi gera grein fyrir áhrifum skattalagabreytinga á tekjur ríkis- sjóðs fyrir 3. umræðu. Formönnum þingflokka stjórn- arinnar, Geir H. Haarde (S-Rv) og Össuri Skarphéðinssyni (Á-Rv), sýndist þetta ástand ekki vera svo dæmalaust sem stjórnarandstæð- ingar vildu vera láta. Þingflokks- formennirnir hvöttu til þess að menn settust niður og semdu um afgreiðslu mála, ef vilji væri fyrir hendi væri hægt að ljúka þing- störfum í þessari viku. Vegna fundarhalda í þingflokk- um og fagnefndum var þingfundi frestað síðdegis í gær en framhald fundarins boðað kl. 20.30. Var þess vænst að þau mál sem beðið væri eftir yrðu þá framlögð; breyt- ingatillögur við íjárlagafrumvarp- ið, nefndarálit og breytingatillögur við ýmis fylgi- og tekjuöflunar- frumvörp, t.d. um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt. Þess var vænst að 3. umræða um frumvarp til íjárlaga fyrir árið 1992 gæti farið fram í dag, fímmtudag. Óvíst var hvenær unnt yrði að gera hlé á störfum Alþing- is, en einstaka menn voru með getspár, virtust flestar ágiskanir falla á tímabilið frá kl. 14.00 til kl. 20.30 næstkomandi laugardag. Rannsóknir í bleikjueldi í LOK árs 1988 tók Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins (RALA) á leigu Straumfræðistöð Orku- stofnunar á Keldnaholti. 1 fram- haldi af því gerðu RALA, Veiði- málastofnun og Búnaðarfélag Islands með sér samkomulag um rannsóknir í fiskeldi á stöðinni. Markmiðið var að leggja höfuð- áherslu á rannsóknir og tilraunir í bleikjueldi til að afla grunns að ieiðbeiningum til þeirra ein- staklinga og fyrirtækja sem hyggja á fjárfestningar í þessari grein. Síðan 1989 hafa verið gerðar rannsóknir og tilraunir í rannsókna- stöðinni með samanburð á bleikju- stofnum; áhrifa tímabundins sveltis á kynþroska hjá bleikju; áhrif mis- munandi hitastigs á vöxt bleikju; styttingu ættliðabils og útvals- möguleika í kynbótum á eldislaxi og alkön sem merkiefni við rann- sóknir á meltanleika og nýtingu á fóðri fyrir bleikju. Þessar rannsókn- ir hafa verið styrktar að stórum hluta af Rannsóknasjóði Rann- sóknaráðs ríkisins, Náttúruvísinda- deild Vísindaráðs og Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Utanaðkomandi aðilar geta feng- ið aðstöðu í rannsóknastöðinni til rannsókna og tilraunastarfa sem tengjast bleikjueldi. (Úr fréttatilkynningu KALA) Fjórðungur af heimildum Hag- ræðingarsjóðs til byggðaaðstoðar Breytingatillaga frá meirihluta sjávarútvegsnefndar Meirihluti sjávarútvegs- nefndar hefur skilað áliti og breytingatillögum um frumvarp sjávarútvegsráðherra um Ha- Stuttar þingfréttir: Umboðsmaður Alþingis Gaukur Jörundsson var end- urkjörinn sem umboðsmaður Alþingis í gær. Gaukur var kjör- inn til þessa embættis frá 1. janúar 1992 til 31. desember 1995. Lánasjóður íslenskra námsmanna Frumvarpi til laga um Lána- sjóð íslenskra námsmanna var dreift á þingfundi kl. 22 í fyrra- kvöld. Frumvarpið er, ásamt fylgiskjölum, töflum, og sérálit- um 101 blaðsíða. Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir að námsíán beri 3% vexti en séu vaxtalaus á námstíma. Endurgreiðslur hefjist ári eftir námslok í stað þriggja. Hætt verði að lána til sérnáms sem ekki sé á háskóla- stigi nema lánþegi verði 20 ára á því almanaksári sem lán er veitt. Felld verði niður öll ákvæði um námsstyrki en gert verði ráð fyrir því að Vísinda- sjóður verði efldur í þessu skyni. Sjóðnum verði heimilt að inn- heimta lántökugjöld til þess að greiða reksturskostnað. í greinargerð með frumvarp- inu segir m.a: „í frumvarpi þessu er lögð áhersla á að LÍN geti áfram auðveldað fðlki að afla sér menntunar með því að veita hagstæð lán jafnframt því sem lánareglur verði á þann veg að hvatt sé til ráðdeildar af hálfu námsmanna og framlög úr ríkissjóði minnki með því að endurgreiðslur lána standi í rík- ari mæli undir útlánum." græðingarsjóð sjávarútvegsins. Meirihlutinn leggur til að sjóðn- um verði heimilt að verja allt að fjórðungi þeirra aflaheimilda sem honum hefur verið úthlutað til eflingar f iskvinnslu í byggðar- lögum er standa höllum fæti. Þingmönnum Kvennalistans f innst þessar tillögur vera blekk- ingar og sýndarmennska. Frumvarp Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra gerði upp- haflega ráð fyrir að Hagi'æðingar- sjóði skuli á hveiju fiskveiðiári úthlutað aflaheimildum er næmu 12.000 þorskígildum í lestum talið og öllum tekjum Hagræðingar- sjóðs af ráðstöfun þessara afla- heimilda skuli varið til að standa straum af kostnaði við Hafrann- sóknastofnunina. Meirihluti sjávarútvegsnefndar gerir tillögu um að: „Sjóðurinn skal koma til aðstoðar einstökum byggðarlögum með því að efla vinnslu sjávarfangs á þeim stöðum þar sem straumhvörf hafa orðið í atvinnulífi vegna sölu fiskiskips. í því skyni getur sjóðurinn framselt tímabundið aflaheimildir, enda verði aflanum landað til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi." fliMnci Breytingatillagan gerir ráð fyrir að allt að fjórðungi aflaheimilda sjóðsins verði varið til þessa, og hafi þá byggðarlög í erfiðleikum forkaupsrétt að þeim hluta afla- heimilda sjóðsins. Össur Skarp- héðinsson (A-Rv), sem nú gegnir formennsku í sjávarútvegsnefnd í forföllum Matthíasar Bjarnasonar, taldi breytinguna ótvírætt til bóta, og bera vitni þeirri viðleitni stjóm- arinnar að treysta byggð í landinu. Anna Ólafsdóttir Björnsson (SK-Rv) taldi hins vegar þessa aðstoð vera algjörlega ófullnægj- andi og það sem verra væri, þess- ar tillögur væru þannig orðaðar að menn gætu auðveldlega fallið í þá gryfju að ætla að um aðstoð væri að ræða. En það væri öðru nær; í lagatextanum stæði m.a: „Endurgjald skal miðað við al- mennt gangverð á sams konar heimildum að mati ráðherra." Breytingartillögfur við frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum ’92 „Bandormurinn" svonefndi, þ.e. frumvarp til laga um ráðstafan- ir í ríkisfjármálum á árinu 1992 breytist ekki mikið í meðförum efnahags- og viðskiptanefndar. En af breytingatillögum nefndar- innar má þó nefna að þær útfæra nánar hvernig fyrirkomulagi varðandi Ábyrgðarsjóð launa skuli háttað og einnig varðandi kostn- að vegna tannlækninga barna. Breytingartillögum frá meiri- hluta efnahags- og viðskipta- nefndar var dreift til þingpnanna kl. 22 í fyrrakvöld. Frumvarpið um ráðstafanir í ríkisfjármálum gera ráð fyrir að margvísleg laga- ákvæði komi ekki til framkvæmda. En breytingatillögur meirihlutans gera m.a. ráð fyrir að ákvæði í grunnskólalögunum um aðsstoð- arskólastjóra og grunnskólaráð geti komist til framkvæmda. í tillögum nefndarmeirihlutans er einnig gert ráð fyrir að ráð- herra ákveði nánar með reglugerð hvaða vinnulaunakröfur njóti for- gangs hjá fyrirhuguðum Ábyrgð- arsjóði launa en tilgreind eru þó ákveðin lágmarksréttindi og einn- ig er lagt til að skorti ábyrgðar- sjóðinn reiðufé til að standa við skuldbindingar sínar skuli sjóðs- stjórn þegar í stað tilkynna það ráðherra. Ríkissjóður skuli útvega það fé sem sjóðinn vantar og skal það gert með láni etir nánari ákvörðun ríkisstjórnarinnar hveiju sinni. Lánið skal endurgi'eitt með álagningu sérstaks aukagjalds á næsta almanaksári. Lagðar eru til breytingar varð- andi tannlækningar barna og unglinga 15 ára og yngri. Sjúkra- tryggingar munu að fullu greiða skoðun og fyrirbyggjandi tann- lækningar barna og unglinga, en greiða 85% í öðrum almennum tannlækningum þessa hóps. Lagt er til að sérstakt vörugjald verði greitt fyrir afnot hafna og skal það renna í sérstaka deild við Hafnabótasjóð. Skal gjaldið vera sem svarar 25% álagi á vörugjöld, önnur en aflagjald. Hinir ýmsu kaflar í frumvarpinu um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1992 fóru til umfjöllunar í fagnefndum þingsins. Óg fengu jákvæða umsögn í öllum ijefndum nema einni. I landbúnaðamefnd stóð Egil Jónsson (S-Al) að meiri- hlutaáliti með fulltrúum stjórnar- andstöðu. Meirihluti landbúnaðar- nefndar telur breytingar á jarð- ræktarlögum ganga gegn sam- komulagi sem gert var við bændur á árinu 1989. Birgir Hallvarðsson, (t.v), tekur við orðunni úr hendi Othars Ell- ingsens aðalræðismanns. Hlaut norskan riddarakross BIRGIR Hallvarðsson ræðismað- ur Noregs á Seyðisfirði var ný- lega sæmdur riddarakrossi af 1. fokki hinnara konunglegu norsku þjónustuorðu, segir í frétt frá Norska sendiráðinu. Birgir Hallvarðsson hefur verið ræðismaður Noregs á Seyðisfirði frá árinu 1966. í ávarpi sendiherra Noregs við þetta tækifæri, þakkaði hann ágætt starf Birgis í þágu norkra málefna og Noregs. Athöfn- in för fram á heimili sendiherra- hjónanna Liv og Per Aasen. Othar Ellingsen aðalræðismaður Noregs afhenti Birgi orðuna. Reyklausar jólatrés- skemmtanir? TÓBAKSVARNARNEFND beinir þeim eindregnu til- mælum til samkomuhúsa og veitingahúsa, þar sem haldn- ar eru jólatrésskemmtanir, að kappkostað verði að hafa þær reyklausar. í tilkynningu frá nefndinni segir, að þeir, sem eru með börnum á slíkum samkomum ættu að telja sér Ijúft og skylt að auka ánægju barnanna af skemmtuninni með því að stuðla að því að þau geti verið þar í hreinu og góðu lofti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.