Morgunblaðið - 19.12.1991, Síða 53

Morgunblaðið - 19.12.1991, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 53 Jesúítareglan bætti kaþ- ólsku kirkjuna innan frá - segir Philip Caraman jesúítaprestur og höfundur bókar um Ignatius Loyola FYRIR skömmu var staddur hérlendis Philip Caraman, enskur jesúítaprestur sem jafnframt er sagnfræðingur og rithöfundur. Hann var um skeið ritstjóri enska guðfræðitímaritsins The Month og hefur skrifað fjölda sagnfræðibóka sem gefnar hafa verið út á fjölmörgum tungumálum. Ein bóka hans kemur út hérlendis fyrir jólin en það er ævisaga dýrlingsins Ignatiusar Loyola sem stofnaði fyrstu jésúítaregluna (kristmunkaregluna) fyrir réttum 500 árum. Þrátt fyrir að Caraman sé kominn yfir áttrætt er hann léttur á fæti og enn skrifandi en um þessar mundir er hann að ljúka bók um enska jesúíta á ofanverðri sextándu öld. Caraman segir að bókin sé gefin út á íslensku til að minnast þess að í ár eru liðnar fimm ald- ir frá fæðingu Loyola og 450 ár frá stofnun Jesúítareglunnar. „Tilgangurinn með för minni hingað er að auka áhuga á lífi og starfi Loyolas og reyna að benda á hvað við nútímafólk get- um lært af honum. Æviskeið Loyola var um margt merkilegt og alls ekki svipað því sem marg- ir gætu ímyndað sér um stofn- anda munkareglu þar sem mein- lætastefna er ástunduð. Sjálfur mátti Loyola ætíð hafa sig allan við að sigrast á eigin brestum og einbeita sér að trúarlegri köll- un sinni í lífinu. Hann fæddist árið 1491 í Baskahéraðinu Gu- ipúzcoa á Spáni og var af aðals- fólki kominn. Hann ólst upp í andrúmslofti þeirrar trúarlegu og menningarlegu endurreisnar sem ríkti á Spáni um þær mundir og leiddi meðal annars til landafund- anna miklu. Um hríð var Loyola hirðmaður Spánarkonungs en sneri síðar við blaðinu og gerðist prestur. Ekki leið á löngu uns Loyola hóf að predika upp á eig- in spýtur og safnaði um sig hópi fylgjenda sem voru flestir af lág- um stigum. Voru ýmsir kenni- menn kirkjunnar tortryggnir á skoðanir hans fyrst um sinn og efuðust jafnvel um rétttrúnað hans. Loyola hélt því þó statt og stöðugt fram að skoðanir hans væru í algjöru samræmi við kenningar kaþólsku kirkjunnar. Á þessum tíma átti kirkjan við miklar deilur og innbyrðis sundr- ungu að stríða. Margir prestar hennar, biskupar, og jafnvel sjálfur páfinn, voru sakaðir um margvíslega spillingu og fjár- plógsstarfsemi. Þetta ástand leiddi af sér kreppu innan kirkj- unnar sem lyktaði með hinum svokölluðu siðaskiptum í norðan- verðri Evrópu og stofnun lút- ersku kirkjunnar, en um svipað leyti eða árið 1541, stofnaði Loy- ola jesúítaregluna. Ég tel að Loy- ola hafi ekki verið sáttur við hvaða stefnu mál voru að taka innan kaþólsku kirkjunnar á þessum tíma og viljað bæta hana, en hann taldi best að bæta hana innan frá. I því liggur nú munur- inn á honum og Lúter. Lúter og Loyola sáu báðir nauðsyn endur- bóta innan kirkjunnar. Lúter yf- irgaf hana og stofnaði eigin deildir eftir sínu höfði en Loyola taldi best að breyta henni innan frá sem tók aftur á móti tíma og var mikið þolinmæðisverk. Hann samdi meðal annars eins konar handbók um trúarlegar athafnir sem er enn í fullu gildi meðal kaþólikka. Jesúítareglan óx brátt og dafnaði og við dauða Loyola hafði hún um 1.000 jesú- íta innan sinna vébanda," segir Caraman. Á þeim 450 árum sem liðin eru frá stofnun reglunnar hefur hún eflst jafnt og þétt og Cara- man segir að nú. séu um 22.000 jesúítar að störfum víðs vegar' í heiminum. „Jesúítar vinna að mannúðarmálum um allan heim í mjög breiðum skilningi. Trú- boðs- og hjálparstarf hefur ætíð skipað stóran sess innan reglunn- ar. Allir jesúítar eru skuldbundn- ir páfanum sérstaklega og fara hvert á land sem er samkvæmt boði hans. Þeir hafa meðal ann- ars látið mikið að sér kveða í Kína og Suður-Ameríku en í kvikmyndinni Trúboðsförinni, eða „The Mission", er byggt á raunverulegum atburðum í starfi jésúíta í þessum heimshluta. Á síðustu árum hefur reglan æ meira beitt sér fyrir hjálparstarfi í Indlandi og Austur-Evrópu og stundum er sagt að þar sem neyðin er mest, sé jesúíti aldrei langt undan.“ „Við jesúítar höfum einnig ætíð lagt mikla áherslu á mennt- un og vísindi í starfi okkar. Marg- ir skólar voru stofnsettir af regl- unni fyrr á öldum og á tímum frönsku byltingarinnar voru flestir franskir skólar og margir þýskir undir stjóm jesúíta. Þessir skólar lögðu grunninn að rann- sókna- og skólastarfi í norðan- verðri Evrópu á þessum árum og ótrúlega margt af vísindaarfleifð þessa tíma, til dæmis í stjörnu- fræði, má rekja til þeirra.“ Caraman hefur víða farið og þjónað en til dæmis var hann um sjö ára skeið sóknarprestur í Jesúítapresturinn Philip Cara- man. Noregi. Þar vann hann við sagn- fræðirannsóknir og að kynning- arstarfi fyrir kaþólsku kirkjuna og sendingu trúarrita til Sovét- ríkjanna. „Sjálfur reyndi ég einu sinni að komast til Sovétríkjanna en var hafnað um landvistar- leyfi. Nú sjáum við hrun þessa heimsveldis og neyðin innan þess blasir alls staðar við. Hið eina sem fólkið á eftir er trúin og hún mun hjálpa því í gegnum þessar þrengingar sem við blasa. Trúar- sannfæring fólks kemur hvað best í ljós þegar það á við hörm- ungar að stríða og það verðum við jesúítar ekki hvað síst varir við á ferðum okkar og í starfi víðs vegar um heim. Sem betur fer búa flestir Vestur-Evrópubú- ar við góð kjör og þurfa ekki að kvíða morgundeginum en þrátt fyrir það á kristinn boðskapur fullt erindi til þeirra. Ævisaga Loyola ætti að vera öllum kristn- um mönnum holl lesning því í henni er sagt frá því hve boð- skapurinn virkaði sterkt á hann og hve mikið hann var reiðubúinn að leggja í sölurnar til þess að sem flestir fengju að njóta hans,“ sagði Philip Caraman að lokum. KMJA Þjóðþrif hirða dósir o g flöskur ÞJÓÐÞRIF, sem er í eigu Banda-- lags íslenskra skáta, Hjálparstofn- unar kirkjunnar og Landsbjargar, landssambands björgunarssveita, safnar umbúðum undan gos- drykkjum, öli og víni til ágóða fyrir starsemi sína. Fólk getur skilað umbúðunum í söfnunarkúlur, sem eru við allar bensínstöðvar og víðar, svo og í söfn- unargáma sem eru í öllum gámaport- um Sorpu. Þá sækir Þjóðþrif umbúð- ir heim til fólks á höfuðborgarsvæð- inu alla laugardaga. Hægt er að’ hringja í síma 23190 og 621390 til að fá umbúðir sóttar heim. Tekið skal fram að sótt verður heim til fólks bæði 21. des. og 28. desember. ----------» ♦ ---- ASN harmar getuleysi í vaxtamálum - segir í ályktun MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ^ Norðurlands harmar vilja- og getuleysi ríkisvaldsins til að taka á vaxtamálum þjóðarinnar, með það að markmiði að lækka vexti á eðlilegt stig og greiða þannig fyrir samningum segir í ályktun Álþýðusambands Norðurlands frá því 13. desember sl. „Náist ekki að aflétta því okur- vaxtaálagi sem nú er að sliga bæði fjölskyldur og fyrirtæki er ekki von til þess að launafólk sætti sig við „hógværa" kjarasamninga. Hið háa vaxtastig hefur þrengt mjög afkomu . margra fyrirtækja í framleiðslu- greinum sem gerir þeim erfiðara en ella að mæta kauphsékkunum. Jafn- framt setur það vinnu fólks og lífsaf- komu í hættu, ekki síst á landsbyggð- inni. Því skorar miðstjórn ÁN á stjórnvöld að grípa nú þegar til raun- hæfra aðgerða til lækkunar vaxta. Slík vaxtatækkun er forsenda samn- inga sem tryggja áframhaldandi stöðugleika." Kennarafélag Reykjavíkur; Ahyggjur vegna fjölgunar leiðbeinenda EFTIRFARANDI ályktanir voru samþykktar á fundi stjórnar Kennarafélags Reykjavíkur 2. nóvember 1991: „Stjórn Kennarafélags Reykjavík- ur lýsir yfir þungum áhyggjum vegna Ijölgunar leiðbeinenda í grunnskólum Reykjavíkur. Þegar skólar tóku til starfa í haust hafði ekki tekist að ráða kennara í allar kennarastöður og því var ýmist gripið til þess ráðs að ráða leiðbeinendur eða senda nem- endur heim. Á skólaárinu 1990-1991 voru 24 leiðbeinendur í grunnskólum Reykjavíkur en eru 52 á þessu skóla- ári. Það er því ljóst að kennaras- korturinn sem ríkt hefur á lands- byggðinni hefur teygt sig inn í skóla höfuðborgarinnar. Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur Bandarískt rokk á Tveim- ur vinum BANDARÍSKA rokkhljómsveitin „The Russtics“, sem er frá Fílad- elfíu spilar í kvöld í Tveimur Vin- um og spila þeir „Rokkabilly". Hljómsveitin hefur nýlega verið á ferðalagi víða um Bandaríkin, en þeir hafa einnig fárið í hljómleika- ferð um Evrópu. Hún er nú fyrsta sinni hérlendis. I kvöld verður hljóm- sveitin með sérstaat dansleikjadag- skrá. Næstkomandi laugardag mun „Loðin rotta“ skemmta á Tveimur vinum og sunnudags- og mánudags- kvöld munu Bandaríkjamennirnir aftur troða upp. mótmælir því harðlega að í frum- varpi til laga um ráðstafanir í ríkisfj- ármálum á árinu 1992 er gert ráð fyrir að fresta eða fella úr gildi ákvæði um málsverði í skólum, fjölg- un vikulegra viðmiðunarstunda nem- enda og fækkun nemenda í bekkjar- deildum. Kennarar fögnuðu nýjum grunnskólalögum í vor, m.a. vegna þessara ákvæða því þar með var komið til móts við breyttar þarfir nútímaþjóðfélags. Stjórnin mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum sem felast í því að samþykkja lög á einu þingi og ógilda á því næsta. Slík vinnubrögð eru ekki til að styrkja skólastarfið. Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur heitir á alþingismenn að standa vörð um skólastarfið í landinu og tryggja að grunnskólar starfi í anda laga um grunnskóla frá 1991.“ björn lóðs sjósettur. Hornafjörður: Morgunblaðið/Albert Kemp Nýr lóðsbátur sjósettur Sjósettur var 30 rúmlesta lóðs- bátur, sem byggður er hjá Vél- smiðju Seyðisfjarðar fyrir Höfn í Hornafirði, síðastliðinn föstudag. Lóðsbáturinn, sem fengið hefur nafnið Björn lóðs, er 16.5 m stál- skip. Hann er með tvær aðalskrúfur, tvær hliðarskrúfur, tvö stýri og skrúfuhringi; í honum er 2 caterpill- ar aðalvélar, 260 kílóvött hvor. Björn lóðs er 31. báturinn sem Vélsmiðja Seyðisfjarðar smíðar og annar báturinn á árinu. Stefán Jó- hannsson, eigandi Vélsmiðjunnar, sagði að hinn báturinn hefði fengið nafnið Baldur og væri gerður til sjó- mælinga fyrir Landhelgisgæsluna. Nú taka við bátaviðgerðir í smiðj- unni. Albert. Kemp Morgunblaðið/Silli Væntanlegpr stúdentar ásamt Björgvin Leifssyni, kennara. Framtíðarhorfur Fram- haldsskólans á Húsavík Húsavík. SKÓLAMEISTARI og skóla- nefnd Framhaldsskólans á Húsavík hefur unnið áætlun um starfsemi og uppbyggingu skólans næstu tíu árin. Þar er gert ráð fyrir að 1996, verði fjöldi nemenda orðinn 220 og 265 árið 2004, en nemendur eru nú 159 við skólann. Gert er ráð fyrir að árið 2000 verði risið nýtt heimavistarhús fyrir 100 nemendur en undanfarin ár hef- ur Hótel Húsavík hýst heimavist- arnemendur til bráðabirgða. Þá eru settar fram hugmyndir um nýjar námsbrautir við skólann. Þar er lögð áhersla á verklegar greinar svo sem hefðbundnar tré- og málmiðngreinar, mat- vælagreinar og þjónustustörf. Að sögn skólameistara Guð- mundar Birkis Þorkelssonar er enn mikil vinna eftir við að full- móta þessar hugmyndir. Þá hafa viðbrögð menntamálaráðuneyt- isins og fjárveitingavalds mikil áhrif á hvernig til tekst með framkvæmd þessarar sóknará- ætlunar, en þær eru ekki kann- aðar. Nú á haustönn ljúka átta nem- endur stúdentsprófi á þremur og hálfu ári og má af því sjá að dugnaður og metnaður til að standa sig vel er enn til staðar hjá æsku Húsavíkur. Jafnframt verða útskrifaðir tólf nemendur af ýmsum öðrum greinum. - Fréttaritari.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.