Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 63

Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 63 1 I I ) I I ) ) ) ) ) ) I I l' í hófi „samvinnunefndar samgöngumála" um 1954. Ljóðabók eftir Rögnu Sigurðardóttur UT ER komin hjá Máli og menn- ingu ljóðabókin 27 herbergi eft- ir Rögnu Sigurðardóttur. í kynningu útgefanda segir: „Þetta er allóvenjuleg ljóðabók því hún hefur að geyma ljósmyndir sem tengjast ljóðunum á margvís- legan hátt og mynda sérstæða heild. Þannig er bókin verk ljóða og mynda enda höfundurinn bæði myndlistarmaður og skáld.“ Ragna Sigurðardóttir býr í Hol- landi og starfar sem myndlistar- maður. Bókin var prentuð í Arn- hem í Hollandi. Ragna Sigurðardóttir Eiríkur Einarsson alþingismaður frá Hæli minnist á þetta í vísu- korni: Þeir sem eiga á þingi sess og þurfa að eta verða að beygjast eins og ess en ekki seta. Þrátt fyrir allt man ég ekki eft- ir sérstökum fjárhagserfiðleikum hjá sjálfum mér þessi ár. En mað- ur sló ekki um sig í höfuðstaðnum og borðaði fremur ódýrt í Næp- unni og á Skálanum. Hugsa ég með velþóknun til heilsufæðis á Skálholtsstíg 7 og glænýrrar ýsu í Austurstræti, að ógleymdum ánægjulegum borðnautum og líf- legu umhverfi sem ég kunni mæta- vel við. Stöku sinnum tókst mér að lokka með á Skálholtsstíginn þing- menn sem ég vissi að kunnu betur við kjarnafæðuna líkt og Bjartur í Sumarhúsum forðum. Af lélegu innræti skemmti ég mér síðan vð að sjá þá geifla á káli og krúsku (sem Eiríkur Þorsteinsson kallaði upp frá því taðgraut). Klifbrekkan var ekki árennileg Af þessari upprifjun allri má ráða að ekki var alltaf hægt um vik og að einatt gætti nokkurrar tregðu, bæði innan sveitar og utan, þegar brotið var upp á nýjungum. Og staðhættir voru óþjálir á ýmsa lund, ekki síst til vegagerðar. Um það vitnar lítið atvik sem ég hafði raunar gleymt en Helgi Hallgríms- son yfirverkfræðingur minnti mig á ekki alls fyrir löngu. Helgi var þá fjórðungsverkfræð- ingur á Austurlandi og var sendur til Mjóaíjarðar sjóleiðis að mæla verstu brekkurnar upp úr Fjarðar- dalnum. Fleiri voru með í förinni. Ég ók komumönnum á „Rússan- um“ mínum inn undir Klifbrekku, hæsta hjalla í dalnum, og lengra varð ekki komist akandi. Þar gafst á að líta. Þvert yfir dalbotninn lá klettabelti í sveig svo þröngum, að vandséð var hvernig ná mætti nægilega hallalitlum sneiðingum án þess að kostnaður yrði okkur óviðráðanlegur. „Öllum kom í stans,“ skrifaði Jón Indíafari. Og okkur varð orða vant. Loks á ég að hafa snúið mér að Helga og spurt varfærnislega: „Hvar sýnist þér nú best að fara?“ Helgi svaraði seint og heldur tómlega: „Hér sýnist mér' nú best að fara hvergi.“ Enn varð þögn uns ég sagði með hægð: „Ætli þú ráðir því nú.“ Helgi kvaðst stundum hafa hugsað um það seinna að hlutverk verkfræðings væri víst jafnan ekki að segja fyrir um hvort vegur yrði lagður heldur hvernig. — Og það gerði hann vissulega þarna. Hygg ég að mæling hans í Klifbrekkunni gildi þótt margar atrennur hafi verið gerðar áður en fært þótti að ná vatni af vegi og forma hann í líkingu við forsögn Helga, aldar- fjórðungi eftir að hann kom með kíkinn. GUÐMUNOUR L. FRiBFtNNSSON, EGILSÁ t>OR MagNÚSSON «S*WAV0® RITAR FORMAla ’ Tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Merk og vöndub bók I! „Það mætti vel segja mér að bók þessi væri sannkallaður stórreki á fjörur Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafnsins og eins þykir mér líklegt að þeir sem orðurn halda til haga á vegum Þjóðháttadeildar eða fjalla um íslenskt mál finni hér margt nýtilegt..Ég óska höfundi og útgefanda til hamingju með þessa stórmerku og vönduðu bók sem seld er í fallegri gjafaöskju." Albert Jóharinsson, DV í desember 1991. „Frágangur bókarinnar er með hinni mestu prýði. Eiga allir aðstandendur þessa merka og fallega rits þakkir og lof skilið. Hinum aldraða höfundi óska ég til hamingju með unnið stórvirki." Sigurjón Björnsson, Morgunblaðið í desember 1991. ORN OG 1$ ORLYGUR Síbumúli 11, 108 Reykjavík 684866

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.