Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 ólýsanlega drukkin, og þar sem landgöngustiginn hallaðist um 45 gráður var það hreinlega krafta- verk, að enginn varð fyrir alvar- legu siysi, þegar menn komu nið- ur af bryggjunni á þilfarið, slag- andi og hávaðasamir. Skipshund- urinn og skipskötturinn voru á þilfari til að fagna sjómönnunum, og var sem Syndaflóðið hefði ver- ið sett á svið, þar sem syndararn- ir og spottararnir iðrast á síðustu stundu og halda um borð í Örk- ina. .. . Skipstjórinn, sem var einn af örfáum ódrukknum, stóð úti í horni káetu sinnar algerlega afskiptalaus, en áhöfnin hrópaði og öskraði út í loftið með flöskur í höndum og beið eftir því, að röðin kæmi að þeim næsta að vera studdur til að skrifa nafn sitt í skráningarbókina. Forstjór- inn, sem var útkeyrður eftir að hafa smalað saman hópi skipveija á þekktum knæpum, lokaði loks- ins bókinni mðð auðsæjum létti og flýtti sér í land. ... Ég missti af þeirri venju að bíða um borð fyrir utan höfnina eftir því að síðustu slóðunum væri safnað saman og fluttir út í skip- ið á báti, en við urðum að snúa aftur til hafnar eftir tuttugu mín- útur til að sækja einhverja véla- varahluti, sem höfðu gleymst. Þessi óvænta koma til Reykjavík- ur sannfærði einn skipverja um, að veiðiferðinni væri lokið. Það var aðeins með fortölum, munn- legum og líkamlegum, að unnt var að koma í veg fyrir að hann yfirgæfi skipið. Ekki er sanngjarnt að dæma heila stétt manna eftir lýsingum sem þessum. Ástandið hefur eflaust ver- ið mjög misjafnt eftir skipum og útgerðarstöðum. Togaraskipstjórar halda því yfirleitt fram, að þeir hafi haft sæmilegan mannskap, og þegar verst lét, góðan kjarna, sem hélt tryggð við togarana í gegnum þykkt og þunnt. Þó er næsta víst, að lýs- inguna um brottför Egils Skalla- grímssonar má að einhveiju leyti hafa til marks um ömurlega stöðu útgerðarinnar á þessum árum. Eins og nærri má geta var tog- araútgerðin ekki eins mikilvæg á sjöunda áratugnum og hún hafði áður verið. Stórfelldur aflasam- dráttur og minni togarafloti segir sína sögu. Á sjötta áratugnum báru togararnir kringum helming botn- fiskaflans að landi, en eftir 1960 var hlutfallið oftast í kringum 20%. Hlutdeild togaranna í heildarverð- mætum botnfiskaflans og heildar- fiskaflans var í fullu samræmi við aflann; ekki nema svipur hjá sjón, miðað við fyrri tíma. Og afli togar- anna skipti minna máli fyrir fisk- vinnsluna, sem reiddi sig nú að lang- mestu leyti á bátaaflann. Aflasam- drátturinn einn segir þó ekki alla söguna. Siglingar togaranna á ís- fískmarkaðina í Bretlandi og Þýska- landi fóru vaxandi eftir 1960. Þótt ótrúlegt megi virðast hafði hnignun togaraútgerðarinnar furðu lítil áhrif á afkomu þjóðarinnar fyrst um sinn. Stórfelldur og ört vaxandi bátafloti stundaði botnfískveiðar og síldveiðar með góðum árangri, þannig að gjaldeyristekjurnar fóru vaxandi á sama tíma og togaraút- gerðin var að hruni komin. Það var því engin furða, þótt margir drægju þá ályktun að slík útgerð væri úrelt fyrirbæri. Þær raddir gerðust há- værari á sjöunda áratugnum, að hana bæri að leggja niður. En svo kom að því, að togaraút- gerð var hafin til vegs og virðingar á nýjan leik. Árin 1967-1968 var síldarævintýrið á enda. Síldarstofn- inn var uppurinn eftir gegndarlausa veiði í nokkur ár. Við tók atvinnu- leysi víða um land og miklir erfíð- leikar í efnahagslífi þjóðarinnar. Þá fyrst var farið að ræða af fullri al- vöru um endurnýjun togaraflotans. Allra augu beindust nú að nýrri skipagerð, skuttogurum, sem fyfst kom fram á sjónarsviðið skömmu eftir 1950 og hafði sannað gildi sitt með tíð og tíma. Þessi nýju skip áttu eftir að leggja grunninn að stórkostlegum framförum á íslandi á næstu áratugum, en það er önnur saga. Síðutogararnir voru hins veg- ar búnir að lifa sitt fegursta í atvinn- usögu þjóðarinnar. íslensk togaraútgerð Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef- ur gefíð út bókina „íslensk togara- útgerð 1945—1970“ eftir Þorleif Óskarsson. Hún er gefín út í ritröð- inni „Sagnfræðirannsóknir“ og þar íjallað um uppbyggingu togaraflot- ans, sem hófst með nýsköpuninni. Hér á eftir verður birtur kafli úr bókinni „Útgerð í öldudal 1960- 1970“: Margar raddir heyrast nú um það, að togararnir eigi ekki rétt á sér sem framleiðslu- og atvinnu- tæki; þeir séu baggi á þjóðinni, sem rétt sé að losa sig við sem fyrst. Þannig skynjaði Loftur Bjarna- son, formaður Félags íslenskra botnvörpuskipaeigenda, andrúms- loftið í þjóðfélaginu árið 1961. Við- horfín þurfa ekki að koma á óvart: Þá þegar blasi við stórfelldur afla- orestur og bullandi taprekstur. En ,bagginn“, sem sumir töldu að þjóð- n hefði á sínum herðum, varð lík- ast til léttari innan tíðar; að minnsta kosti skrapp flotinn saman um helm- ing. Á árunum 1960-1970 hrundi togaraútgerðin nánast til grunna. Þegar árið 1962 var svo komið, að togarar voru aðeins gerðir út frá fímm stöðum á landinu, samanborið við 13 árið 1959. Skipum í fullri útgerð fækkaði úr 45 árið 1960 í 22 árið 1967. Þau fyrirtæki, sem héldu áfram að gera út togara, löptu dauðann úr skel. Botnvörpuskipaeigendur Iíktu rekstrargrundvellinum við botnlaust fen. Opinberar nefndir, sem rannsökuðu hag útgerðarinnar, höfðu ekkert út á þá líkingu að setja. í samræmi við niðurstöðumar var togurunum haldið gangandi á styrkjum. Meginorsök umskiptanna var samfelldur aflabrestur árið 1960- 1966. Eftir það fór afli að glæðast á ný, þótt ekki kæmist hann í hálf- kvisti við það, sem verið hafði á árum áður. Tvennt skiptir mestu máli, þegar skýra á aflabrestinn. í fyrsta lagi var ördeyða á fjarlægum miðum og á djúpmiðum umhverfís ísland mest allan sjöunda áratuginn. Þar á ofan misstu togaramir 60-70% af hefðbundnum miðum sínum hér við land, þegar landhelgin var færð út í 12 sjómílur árið 1958. Kjartan Thors, formaður Félags íslenskra botnvörpuskipaeigenda, 'reyndist sannspár þegar hann fjall- aði um stöðu togaranna innan land- helginnar og líklegar afleiðingar árið 1959. Augljóst væri, að aflinn á heimamiðum mundi ganga mjög til þurrðar og stjórnvöld tefldu nú á tæpasta vað. Mér virðist þetta mjög hættuleg stefna, og má í því sambandi minna á, að togaramir skila lang- mestum verðmætum á land, mið- að við starfsmannafjölda ... Einnig má hiklaust fullyrða að hingað til hafa togaramir reynst ódýmstu framleiðslutækin, miðað við aflamagn, enda hefur þeim ætíð verið stórlega mismunað í verðuppbótum, samanborið við önnur veiðiskip. En öllu má of- bjóða. Réttindi togaranna innan nýju fískveiðilögsögunnar vom svo tak- mörkuð, að Ólafur Thors lagði til á Alþingi, að togveiðar yrðu algjör- lega bannaðar innan 12 mílna mark- anna. Hann benti á, að andúðar gætti á togveiðiheimildum jafnt inn- anlands sem utan. Tillagan væri flutt til að sýna umheiminum, að íslendingar teldu sérhveija fóm litla, sem gæti stuðlað að fullnaðar- sigri í baráttunni fyrir framtíðartil- vem þjóðarinnar. Fórnin var reynd- ar ekkert stórkostleg að dómi Olafs Thors. Hann hafði það eftir reynd- um sjómanni, að togumnum væri eingöngu leyft að veiða á þeim svæðum, þar sem engan físk væri að fá. Tillagan fékk hins vegar Iítinn hljómgmnn. Stjómvöld höfðu tekið þá afdrifa- ríku ákvörðun, að gera togaraflot- ann nánast útlægan úr landhelg- inni. Tvennt vó þar þyngst; fyrir það Allt snerist í kringum síldina. Margir togarar voru hins vegar lítið sem ekkert gerðir út árum saman. Þar á meðal var Þorsteinn þorskabítur SH 20, sem notaður var til síldarflutninga í tilraunaskyni árið 1965. Hér landar hann í síldarbænum Siglufirði. fyrsta friðun fískistofnanna, en hitt skipti eflaust mestu máli að sýna átti svart á hvítu, að ísléndingum væri full alvara með friðunaraðgerð- unum. Ekki væri eingöngu verið að koma í veg fyrir togveiðar útlendra skipa. Nánast hið sama skyldi yfír íslenska togaraflotann ganga. Með þessu var gert ráð fyrir að áróðurs- staðan út á við yrði mun sterkari. Útfærslan varð útgerðinni þung- bær og samtök togaraeigenda háðu áralanga baráttu fyrir auknum veið- iréttindum, en töluðu fyrir daufum eymm. Þeir töldu málið ekki „físki- fræðilegt", heldur fyrst og fremst pólitískt og höfðu orð sérfróðra manna fyrir því, að „fráleitt" væri „að rýmka ekki heimildir togaranna innan fískveiðitakmarkanna." Botn- vörpuskipaeigendur vöruðu við þeirri hreppapólitík, sem væri nú að bera útgerðina ofurliði. Loftur Bjarnason, formaður samtaka tog- araeigenda, komst svo að orði árið 1966: Islenska þjóðin hefur ekki efni á að gera þessi afkastamiklu at- vinnufyrirtæki að hornrekum vegna-hreppapólitíkur'og ímynd- aðra hagsmuna vissra landshluta. Á Alþingi var hins vegar enginn meirihluti fyrir því að rýmka heim- ildirnar. Ört vaxandi bátaútgerð út um allt land átti méira fylgi að fagna meðal þingmanna. Togaraútgerðin, þetta fyrrum óskabam landsbyggð- arinnar og margra alþingismanna, átti sér nú formælendur fáa, enda heyrði hún sögunni til, víðast hvar. En togarafélög lögðu ekki bara upp laupana vegna aflabrests. Mik- ill vöxtur hljóp í bátaflotann undir lok sjötta áratugarins. Þá streymdu til landsins nýir bátar og mun stærri en áður höfðu tíðkast. Aukin bátaút- gerð olli því m.a. að víða varð tog- araútgerð á vegum sveitarfélaga ekki eins mikilvæg og áður. Sum fyrirtæki, eins og t.d. Bæjarútgerð Neskaupstaðar og Austfirðingur hf., gáfust upp þegar árið 1960, áður en aflabresturinn skall á af fullum þunga. Með vaxandi báta- flota gátu sveitarfélögin hætt tog- araútgerð og þar með áralangri skuldasöfnun, án þessa ð eiga bein- línis á hættu að leggja heilu byggð- arlögin í rúst. Gífurlegur vöxtur bátaflotans á sér ýmsar skýringar. Á sjötta ára- tugnum hafði bátagjaldeyriskerfið glætt áhugann á slíkri útgerð. Út- færsla landhelginnar árið 1958 gerði svo útslagið. Þá var fyrirsjáan- legt, að bátaflotinn mundi sitja svo til einn að landhelginni. Upp úr 1960 hófst svo uppgripasíldveiði og bátaútgerð varð gróðavænlegri en nokkru sinni fyrr. Það var ekki bara fískurinn sem forðaðist togarana á sjöunda ára- tugnum. Stjórnmálamenn voru ekki uppveðraðir af þeim lengur og al- menningsálitið var fjandsamlegra en nokkru sinni. Alvarlegast var þó, að margir sjómenn höfðu snúið við þeim baki, en vinnuaflsskorturinn var vitanlega bein afleiðing af slæmri stöðu útgerðarinnar. Á hon- um hafði reyndar þegar farið að bera á sjötta áratugnum, en ástand- ið varð enn verra á þeim sjöunda. Sjómennska á togurum var orðin ígripavinna hjá mörgum vegna lé- legra launa og stórfellds aflabrests. Bregðum okkur um borð í togara árið 1960: 110 af hásetunum komu nýir um borð þennan túr, nær allt bráðung- ir piltar ... Nær helmingur háset- anna var einhvers konar mennta- fólk, þar af tveir barnakennarar, færeyskur háskólanorrænunemi, ungverskur fyrrverandi bílaiðnað- armaður, ungur lögfræðingur, þrír gagnfræðaskólanemendur. Það kostaði tveggja daga samfelldan auglýsingaáróður í ríkisútvarpinu að hóa saman í þennan ágæta hóp, á einn af glæsilegustu togurum íslenska flotans! Óregla og drykkjuskapur meðal togarasjómanna fór vaxandi. Tryggvi Ófeigsson var ómyrkur í máli þegar hann fjallaði um ástand- ið í endurminningum sínum. Mis- notkun áfengis hafi verið mikil hörmungarsaga, sem ekki megi falsa. Á köflum hafí engu verið lík- ara, en togararnir væru „drykkju- mannahæli fyrir Reykjavíkurborg". Stundum er sagt að glöggt sé gests augað, en skiptar skoðanir eru um það, sem annað. Ungur Breti, sem dvalið hafði á íslandi um all- langt skeið, segir af kynnum sínum af togarasjómennsku í Lesbók Morgvnblaðsinsarið 1965. Þetta var í desember. Togarinn, að öllum lík- indum sjálfur Egill Skallagrímsson, átti að vera úti um jól og áramót. Bretinn var að fara sinn fyrsta túr og kannski þann síðasta líka. Að- koman var ekki glæsileg, að minnsta kosti ekki fyrir viðvaninga. Við komum til sögunnar þegar sjómenn- irnir eru að tínast um borð. Heita mátti að öll áhöfnin væri Afli togaranna á sjöunda áratugnum var lélegur. Hér er verið að landa úr Hvalfelli RE 282 vorið 1965. Það ár varð meðalafli togaranna aðeins 2.110 tonn, en hafði verið um 4.500 tonn tíu árum áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.