Morgunblaðið - 19.12.1991, Síða 71
Kveðjuorð.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991
Kjartan Guðnason
Það kom mér á óvart er ég fletti
síðum blaðsins hinn 3. desember sl.
að þar gat að líta minningarorð um
Kjartan Guðnason, en ég hafði ekki
haft af því spurnir að hann væri
allur. Það var svo stutt síðan hann
lét af störfum hjá Tryggingastofn-
un ríkisins kominn hátt á áttræðis-
aldur eftir langan og óvenju heilla-
dijúgan starfsferil hjá stofnuninni.
Mér er ljúft og skylt að minnast
þessa látna öðlings með nokkrum
síðbúnum orðum.
Ég kynntist Kjartani fyrst fyrir
réttum 30 árum þegar þáverandi
bæjarfógeti á Akranesi, Þórhallur
Sæmundsson, réði mig á skrifstofu
embættisins til þess að annast um
tryggingaumboðið. Ég kom til
þessa starfs beint frá prófborði í
Samvinnuskólanum reynslulaus og
fákunnandi um innviði þess marg-
þætta málaflokks, sem ég átti að
sinna. Ekki var þá, fremur en nú,
völ á neinskonar undirbúningsnámi
fyrir störf á þessu sviði. Það kom
sér því vel fyrir nýgræðinginn að
geta leitað til manns eins og Kjart-
ans Guðnasonar, enda kom maður
þar ekki að tómum kofunum og ljúf-
mannlega brást hann ætíð við. Um
þær mundir var einmitt verið að
koma í kring meiriháttar breyting-
um í almannatryggingum, rýmka
bótarétt og stórauka við bóta- og
lífeyrisgreiðslur.
Samskipti umboðsmanna út um
land við Tryggingastofnun ríkisins
og starfsfólkið þar eru mjög mikil
og getur þar reynt á ýmsa mann-
lega eiginleika. Ekki er ofsögum
sagt að í þeim efnum hafi Kjartan
verið réttur maður á réttum stað.
Mest voru samskiptin símleiðis og
með tímanum urðu þau að nánu
trúnaðarsambandi og vináttu og
veit ég fyrir víst að svo var einnig
um aðra, sem unnu við umboðin.
Fyrir okkur var ómetanlegt að hafa
sem tengilið hjá Tryggingastofnun-
inni mann á borð við Kjartan Guðn-
ason. Hugur starfsfólks umboðanna
til Kjartans kom og vel fram á einu
af reglubundnum náskeiðum á veg-
um Tryggingastofnunar fyrir fáein-
um árum er hann steig í pontu,
orðinn nokkuð ellilotinn en glað-
beittur að vanda, til að ávarpa við-
stadda, og var hylltur vel og inni-
lega.
Kjartan var sérlega viðræðugóð-
ur maður, glaðvær og skilningsrík-
ur. Skopskynið var græskulaust,
leiftrandi og lýsti vel næmi og
nærfærni hans gagnvart þeim
mannlegu vandamálum, sem sífellt
eru viðfangsefni þeirra, sem við
almannatryggingarnar vinna.
„Kjartan hér,“ heyrðist í símum
umboðanna og oft kvað við dillandi
hlátur og spurt var hvað væri að
frétta áður en komið var að alvöru
tilefnisins. En þá var iðulega verið
að fá skýringar eða upplýsingar til
glöggvunar við úrlausn á málefni
einhvers, sem leitað hafði til trygg-
inganna.
Þegar Kjartan Guðnason er fall-
inn frá minnumst við, sem höfum
starfað við tryggingaumboðin og
sjúkrasamlögin utan Reykjavíkur,
góðs samstarfsmanns. Kjartan var
gæddur þeim persónulegu eiginleik-
um að ekki var annað unnt en að
láta sér þykja vænt um manninn.
Hann átti að baki einn lengsta
starfsferil að almannatryggingum
hér á landi.
71
Er hann áreiðanlega í hópi þeirra
manna, sem einna mest hafa af
mörkum lagt í daglegri umsýslu til
þess að tryggja að sá hlutur, sem
almannatryggingunum hefur verið
ætlaður til létta byrgðar þeirra, sem
minnst mega sín, kæmist réttlát-
lega í hendur þeirra.
Ég er forsjóninni þakklátur að
hafa fengið að kynnast Kjartani
Guðnasyni og njóta handleiðslu
hans og leiðbeiningar, er ég var að
feta fyrstu skrefin á starfsbraut-
inni. Fjölmargir skjólstæðinga al-
mannatrygginganna áttu hauk í
horni, þar sem hann var, ávallt
reiðubúinn að líta með fullri velvild
á hvert það vandamál, sem til kasta
hans kom. Þeir eru því margir, sem
eiga Kjartani þökk að gjalda við
leiðarlokin.
Ástvinum Kjartans Guðnasonar
færi ég samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning hans.
Guðmundur Vésteinsson
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát mannsins míns,
sonar, bróður og mágs,
PÁLS JÓHANNSSONAR,
Hrafnhólum 6.
Ragna Finnbogadóttir,
Jóhann Pálsson, Guðmundur Jóhannsson,
Steinar Jóhannsson, Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Arnfríður Aradóttir, Haukur Matthiasson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓSEFÍNU ÞORLEIFSDÓTTUR,
Ægisgötu 17,
Akureyri.
Kristín Pálsdóttir,
Sigurhelga Pálsdóttir,
Erling P. Pálsson, Guðmunda Ingólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför,
MARTEINS JÓHANNSSONAR,
Bakkakoti.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Vífilsstaða-
spítala fyrir góða umönnun.
Bára Marteinsdóttir,
Sigriður Þóra Reynisdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Sigurgeir Jóhannsson,
Guðlaug Jóhannsdóttir,
Sigurður Jóhannsson,
Margrét Bjarnadóttir,
Erla Guðmundsdóttir,
og fjölskyldur.
Reynir Eggertsson,
Jóhann Grétar Sigurðsson,
Guðrún Gísladóttir,
Páll Jóhannesson,
Gunnar Pálsson,
Pétur Björnsson,
Sigurður Vilhjálmsson
f
Sigurður Kári
Pálmason - Kveðja
Fæddur 10. júní 1964
Dáinn 22. nóvember 1991
Með fátæklegum orðum langar
okkur æskufélagana að minnast
vinar okkar og félaga sem með svo
sviplegum hætti fórst í hörmulegu
sjóslysi með Eldhamri GK 13 þann
22. nóvember sl.
Það er kannski ekki óeðlilegt að
okkur sem rétt erum að byija að
stíga fyrstu sporin í lífinu finnist
eitthvað óréttlátt hafa gerst, eitt-
hvað sem er ijarri hugsun okkar
og þeim væntingum sem í lífinu
hljóta að leynast.
Við ólumst öll upp í góðu og fal-
legu umhverfi sem gaf góðar vonir
og miklar væntingar um framtíð-
ina. Þar fannst okkur gott að gleðj-
ast á góðri stund í glaðra vina hópi,
en samt sem áður höfum við þurft
að horfa á eftir allt of mörgum fé-
lögum og vinum í blóma lífsins
hverfa yfír móðuna ókunnu.
Það er margs að minnast og upp
hrúgast minningarbrot, brot um
augnablikin sem eru okkur svo mik-
ils virði, augnablik glaðværðar og
ánægju þess að vera til og eiga svo
ótal margt eftir að gera saman.
Einn í hópnum okkar var hann Siggi
Kári.
Siggi Kári ólst upp á Knútsstöð-
um í Aðaldal á bökkum perlunnar
okkar, Laxár. Eins og kitlandi árn-
iður Laxár var Siggi, glaðvær og
góður félagi sem aldrei sveik vin
sinn og var ætíð til staðar þegar á
þurfti að halda. Þau eru ófá augna-
blikin og ánægjustundirnar í eld-
húskróknum hjá henni Guðnýju á
Knútsstöðum', þegar við krakkarnir
frá Húsavík söfnuðumst þar saman
í gáska þess sem er ungur og öll
tilveran brosti við okkur. Að heim-
sækja Sigga á Knútsstöðum var
eitt af þessum augnablikum sem
gleymast seint og ekki má gleyma
Guðnýju móður Sigga sem með við-
móti sínu bauð okkur ávallt velkom-
in, skildi æskuna og hversu augna-
blikið var dýrmætt, það sjáum við
nú.
En árin liðu og unglingarnir sem
safnast höfðu saman í eldhúskrókn-
um á Knútsstöðum varð fullorðið.
Fólk sem tvístraðist í allar áttir.
Siggi fór suður í sjómennsku, sett-
ist að í Grindavík og stofnaði þar
heimili með henni Hörpu sinni. Þau
eiga saman tvo syni, þá Arnþór og
Fannar Geir. Aðeins fáein spor
höfðu verið stigin í lífi ungrar ijöl-
skyldu, skref sem samt sem áður
hafa markað sín spor. Á slíkum
stundum eru orð kannski lítils
megnug en samt sem áður er vert
að minnast góðs félaga og vinar.
Hver veit nema að við æskufélag-
arnir sem hittumst á bökkum Lax-
ár, á gáskafullum stundum ungl-
ingsáranna hittumst aftur og rifjum
upp ánægjustundir og minningar-
brot hins liðna.
Við sendum Hörpu og litlu
drengjunum tveim, fjölskyldunni á
Knútsstöðum, Pálma og fjölskyldu
innilegar samúðarkveðjur.
„Það skilur enginn aupablik, fyrr en það
er farið. Það skilur enginn nýja sköpun fyrr
henni er lokið. Og enginn þekkir stund ham-
ingjunnar, fyrr en hún er liðin.“
(Gunnar Dal)
Ásgerður, EUa,
Gunna, Oli Björn,
Ingi og Siggi.
+
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför eigin-
konu minnar og móður okkar,
GUÐNÝJAR BJÖRNSDÓTTUR,
Borgarnesi.
Halldór Magnússon,
og dætur hinnar látnu.
t
Þökkum innilega samúðarkveðjur, blóm og vinarhug við andlát
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR SVEINSDÓTTUR
frá Viðfirði,
sem lést þann 23. nóvember.
Börn hinnar látnu.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNU JÓNSDÓTTUR
frá ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 5-B, öldrunardeild Borg-
arspítalans, fyrir góða umhyggju.
Guð blessi ykkur öll.
Ása Fanney Þorgeirsdóttir, Páll Lúðvíksson,
Ólafur Þorgeirsson,
Jóhann Þorgeirsson, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Þorgeir Pálsson, Hildur Pálsdóttir,
Páll Reynir Pálsson
og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug yið andlát og útför ástkærr-
ar stjúpmóður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og systur,
KATRÍNAR SVÖVU
ALEXANDERSDÓTTUR,
Ofanleiti 21,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki fyrir góða umönnun,
svo og stofufélögum hennar fyrir einstakan hlýhug.
Elín Áróra Jónsdóttir,
Margrét Halla Jónsdóttir, Hörður Skarphéðinsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hinnar látnu.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður, fóst-
urföður og afa,
JÓNS KR. ÍSFELD,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Óskum ykkur öllum blessunarríkrar jóla-
hátíðar.
Auður H. ísfeld,
Haukur ísfeld, Kristín G. ísfeld,
Auður Björnsdóttir
Lárus, Jón Haukur, Guðmundur Fjalar og Eva.