Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 72

Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 72
72 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 Éf ASKO að þvo upp? Sennilega ekki, nema þú eigir eina af nýju uppþvottavélunum frá ASKO, þá horfir málið öðruvísi við. tavélin er Nýja ASKO-ASEA uppþvotta\ fyrirferðarlítil, rúmgóð, vandvirk, fljót og pögul, aðeins 41 dB(A). Rúmar 6-manna borðbúnað og 8 bolla eða glös. Þvær “hraðþvott" á 25 mín. og notartil þess aðeins 11 Itr. af vatni og 0,4 Kwst af orku. Frábær hönnun, að utan sem innan. Frístæð eða innbyggð. Veldu um 5 gerðir sænsku ASKO-ASEA uppþvottavélanna á verði frá kr. 51.960 (staðgreitt) Góðir greiðsluskilmálar, t.d. VISA og EURO raogreiðslur til allt að 18. mánaða, án útborgunar. /?anix Hátúni 6a • Sími 91-24420 Gafakortin okkar eru góó, hentug og vinsœl gjöf Sendum í póstkröfu. 5% staógreiósluafsláttur. tískuverslun, Kringlunni, sími 33300. fclk f fréttum VESTMANNAEYJAR: 90 ára afmæli Isfélags Vestmannaeyja Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Eyjólfur Martinsson, framkvæmdastjóri, Tryggvi Sigurðsson, vél- stjóri, sem starfað hefur hja'fyrirtækinu í 44 ár, og Magnús Kristins- son, sljórnarformaður, en Tryggvi var heiðraður fyrir vel unnin störf. Isfélag Vestmannaeyja varð 90 ára 1. desember sl. Félagið fagnaði þessum tímamótum á ýmsan hátt. Gefið var út veglegt afmælisrit þar sem saga félagsins í 90 ár er rakin. Boðið var til afmælisveislu á skrif- stofu félagsins og einnig var öllu starfsfólki fyrirtækisins boðið til veg- legrar afmælisveislu í Samkomuhús- inu í Eyjum. Margt gestavar í afmælisveislunni á skrifstofu ísfélagsins. Forráða- menn Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, Tryggingamiðstöðvarinnar, þingmenn Suðurlands, sjávarútvegs- ráðherra, forystumenn frystihúsanna í Eyjum og margir fleiri. Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Is- félagsins, bauð gesti velkomna og rakti síðan sögu félagsins stuttlega. Sagði Magnús að á 90 ára ferli hefði fyrirtækið vaxið úr því að vera kælig- eymsla fyrir beitu í að verða eitt stærsta og öflugasta frystihús lands- ins. Magnús sagði það hafa verið stórhuga og framsýna menn sem stofnuðu fyrirtækið á sínum tíma og hluthafar í því hafi verið margir því 45 manns hafi átt hlut í því við stofn- un sem var um 10% íbúa Vestmanna- eyjabæjar. Hann sagði að þrátt fyrir að nú syrti í álinn í íslenskum sjávar- útvegi hefðu Isfélagsmenn þ'á trú að þeir kæmust yfir þá erfiðleika sem að steðjuðu og starfsemi fyrirtækis- ins myndi áfram markast af þeim stórhug og dugnaði sem einkenndi stofnendur fyrirtækisins fyrir 90 árum. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, og Árni Johnsen, alþingis- maður, fluttu ávörp og óskuðu af- mælisbarninu og forsvarsmönnum þess til hamingju með áfangann. Arnar Sigurmundsson flutti kveðju frá hinum frystihúsunum í Eyjum og færði félaginu málverk að gjöf frá þeim og einnig flutti Bragi I. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, ávarp og færði félaginu að gjöf sögu Vestmannaeyjabæjar. Starfsfólki fyrirtækisins var boðið til matarveislu og dansleiks í Sam- komuhúsinu í tilefni afmælisins. Þar voru margir starfsmenn heiðraðir fyrir vel unnin störf við fyrirtækið. Nokkrir hlutu viðurkenningu fyrir 20 ára, 25 ára og 30 ára starf hjá fyrirtækinu. Tryggvi Sigurðsson, vélstjóri, var sérstaklega heiðraður, en hann hefur unnið hjá fyrirtækinu í 44 ár, sem er lengsti starfsaldur allra starfsmanna fyrirtækisins. í tilefni afmælisins lét ísfélagið skrásetja sögu fyrirtækisins og gaf hana út í myndarlegu riti sem Her- mann Einarsson ritstýrði. - Grímur Helga á Felli og Elli Bergur hafa lengi unnið í ísfélaginu. Hér slá þau á létta strengi. kr. 5.100,- BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 677230. Þrir ættliðir sem allir starfa í ísfélaginu. Frá vinstri Halldóra Hall- bergsdóttir, Þórdís Andersen og Þuríður Jónsdóttir. COSPER Nú hefur Pétur Iitli fest sig einu sinni enn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.