Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsætisráðherra um hækkanir tryggingafélaganna Hefur efasemdir um forsendurnar Davíð sagði einnig að trygginga- félögin hefðu verið að byggja upp sjóði sína sem væru orðnir gríðai'- lega öflugir. Þau miði við árið 1993, en hafí samt sem áður talið sig hafa efni á að lækka gjöld sín mjög verulega þegar þau hafi lent í óvæntri samkeppni að þeirra eigin áliti, þannig að þetta séu ekki mjög sannfærandi tölur. „Og það var skaði að þegar alþingismenn ósk- uðu eindregið eftir því við laga- setninguna að fá forsendur trygg- ingafélaganna þá fengust þær ekki hvemig sem eftir því var leitað. Og það var mikill galli í öllu málinu," sagði Davíð Oddsson, forsætisráð- herra einnig. Eignarhald og veðsetn- ingar flækja málið „ÞRÁTT fyrir spurningar um eign- arhald og veðsetningu, töldu menn skynsamlegast að Kaupfélag Eyfirð- inga yfirtæki mjólkursamlagið, því það tryggði viðunandi stöðu fram- leiðanda til lengri tíma og væri við- unandi fyrir þróun mála í héraði, sagði Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Það sem flækir málið er tvennt. I fyrsta lagi liggur fyrir lögfræðiálit Þorgeirs Órlygssonar, þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að bænd- ur eigi samlagið en ekki kaupfélagið. í öðru lagi er ágreiningur um veð- setningar, en lögfræðingur Búnað- arsambandsins, Ástráður Haralds- son, kemst að þeirri niðurstöðu að kannski hafi samlagið ekki verið veðsett nema að hluta fyrir eignum, þ.e.a.s. að það hafi alls ekki verið veðsett í botn og þá skiptir máli hvort mjólkursamlagið er eign bænda eða hluti af eigum kaupfé- lagsins, þar sem eigur kaupfélagsins eru í uppnámi," sagði Ari. Hann sagði að á Norðurlandi hefðu verið í gangi umræður um sameiningu í mjólkuriðnaðinum og að til að tryggja framtíð iðnaðarins á Norðurlandi hefði verið samið við KEA. Að sögn Ara þá stendur sam- lag af þeirri stærðargráðu, sem mjólkursamlag KÞ er, mjög veikt, einfaldlega vegna þess að rekstrar- kostnaðurinn er of hár. Hann sagði að ef selja ætti samlagið eitt og sér væri það væntanlega ávísun á seinni tíma vandræði. „Það er skoðun mjólkurframleið- enda, ekki bara á Islandi, heldur einnig í löndunum í kringum okkur, sérstaklega í Noregi og Danmörku, að rekstri á svona afurðastöðum eins og mjólkurbúum sé best fyrir komið hjá framleiðendasamvinnufé- lögum.“ Starfsmenn í ferðaþjónustu á Mallorca boða verkföll STARFSMENN í ferðaþjónustu á Balear-eyjum við Spán, meðal annars Mallorca, hafa boðað verkföll á há- annatíma í sumar. Um 2.500 íslend- ingar hafa bókað far til Mallorca frá 25. júní til 3. ágúst sem er það tímabil sem verkfallsaðgerðimar eiga að ná til. Samkvæmt frétt AP-fréttastofunn- ar ætla barþjónar, þjónustustúlkur á hótelum og þjónar á veitingastöðum að leggja niður vinnu fjórum sinnum, þrjá daga í senn, til að fá launakröf- um sínum framgengt. Talið er að að- gerðir þeirra geti haft áhrif á 2.000 hótel, veitingastaði og krár á eyjun- um. Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram- leiðslustjóri hjá Örvali-Útsýn, segir að Boeing 747-þota frá Air Atlanta muni fljúga vikulega í sumar til Mall- orca fyrir ferðaskrifstofumar Úrval- Útsýn og Samvinnuferðir-Landsýn. Samtals megi búast við að um 2.500 Islendingar muni halda þangað í sumarleyfi á ofangreindu tímabili. Búa sjálfir um rúmin „Við verðum að sannreyna þetta og ræða við okkar umboðsaðila," segir Guðrún. „Þetta myndi þýða að menn yrðu að búa um rúmin sín sjálfir, kaupa bjórinn í matvöruversl- unum og drekka hann á svölunum. Okkar fólk er yfirleitt aldrei á hótel- um með fæði heldur með íbúðir þar sem það getur eldað sjálft, þannig að enginn myndi svelta." Guðrún segist halda að íslenskir Mallorca-farar muni ekki láta það á sig fá þótt þeir þurfi að búa um rúm- in sjálfir í þrjá daga. „Lífið snýst ekki um það, heldur að komast út í sólina og fríið.“ Starfsfólkið sem ætlar í verkfall krefst 10% launahækkunar á tveim- ur árum en vinnuveitendur hafa boð- ið 3%. Samningafundur hefur verið boðaður í næstu viku. Allt að 400 þúsund ferðamenn eru á Balear-eyj- um í einu á háannatíma. Flamencó í Reykja- víkurhöfn GRÍSKA skemmtiferðaskipið Flamenco Iagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn í fyrrakvöld. Þetta er annað skemmtiferða- skipið sem kemur til Reykjavíkur á þessu sumri. Flamenco hafði stutta viðdvöl í Reykjavíkurhöfn og hélt áleiðis til Ákureyrar upp úr kl. 21 í gærkvöldi. Morgunblaðið/Kristinn DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagðist í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi hafa efasemdir um for- sendur fyrir hækkunum trygginga- félaganna á iðgjöldum bifreiða- trygginga og sagði að fara þyrfti betur ofan í þær. Forsendurnar fengust ekki „Tryggingafélögin hafa hækkað og segjast gera það vegna breyt- inga á lögum og taka útreikninga frá 1993 sem sínar forsendur, sem maður hefúr vissar efasemdir um reyndar, og þarf að fara betur ofan í,“ sagði Davíð í símaviðtali frá Portúgal. Olfklegt að sildin gangi í íslenska lögsögu „Sfldin hefur alltaf verið brellin“ VEIÐAR í Síldarsmugunni hafa gengið upp og ofan undanfarnar vik- ur en síldarskipin eru nú öll í höfn vegna sjómannadagsins. Nú hafa veiðst hátt í 90 þúsund tonn af 202 þúsund tonna kvóta íslendinga úr norsk-íslenska sfldarstofninum. Vík- ingur AK landaði um 1000 tonnum af sfld á Akranesi í gær og segir Sveinn Isaksson skipstjóri ólíklegt úr þessu að sfldin gangi inn í ís- lenska lögsögu. Sveinn segir erfitt að eiga við síld- ina nú, hún sé stygg og haldi sig jafnan á miklu dýpi. „Við höfum fengið góðan afla einn og einn dag en síðan er nánast engin veiði þess á milli. Við sjáum mikið af sfld en það er erfitt að ná henni. En svona er sfldin bara. Hún hefur alltaf verið brellin, blessunin.“ Heimsækir okkur ekki í ár Sveinn segir skipin hafa verið komin nokkuð norðarlega í Sfld- arsmuguna og sér virtist sfldin ekki á leið í átt að íslandi. „í síðasta túr vorum við að veiða sfld aðeins um 10 mflur frá landhelgislínunni en í þess- um túr voru um 70 mflur í línuna þar sem við veiddum. Sfldin fór mjög hratt í vesturátt fyrst í stað en tók síðan krappa beygju norður og virð- ist ætla að halda áfram í átt að Jan Mayen. Ég tel því ólíklegt að sfldin heimsæki okkur í ár, nema kannski ef hún kemur sunnan megin frá.“ Hann segir að auk íslensku skip- anna séu færeysk og norsk skip á miðunum. Þá séu einnig nokkrir tog- arar á miðunum sem sé mjög illa séð meðal nótaskipstjóra. Sjálfur segist hann þeirrar skoðunar að nótaveiðar og trollveiðar fari illa saman enda bendi margt til þess að troll dreifi sfldinni og styggi. „Við gátum veitt alveg fram í júlí á síðasta ári en það var reyndar dálítið sérstakt. Árin þar á undan gátum við aðeins veitt fram í miðjan júní. Menn eru því orðnir hræddir um að veiðin hætti alveg á næstu vikum en ég hef nú trú á að við náum að minnsta kosti einni veiðiferð eftir helgi. Von- andi verða þær fleiri en eins og alltaf í fiskveiðum getur brugðið til beggja vona,“ segir Sveinn skiþstjóri. Drengirnir frá Eyrarbakka Báðir komnir af gjörgæslu BÁÐIR drengimir frá Eyrar- bakka, sem brenndust á mið- vikudag er þeir voru að fikta með bensín og eldfæri, hafa nú verið útskrifaðir af gjör- gæslu Landspítalans, sam- kvæmt upplýsingum Þor- steins Svarfaðar Stefánssonar og eru þeir nú á barnadeild. í frétt hér í Morgunblaðinu í gær var sagt að annar drengjanna væri kominn heim. Það er ekki rétt og byggðist frásögnin á misskiln- ingi. Hann var hins vegar út- skrifaður af gjörgæslu í fyrra- dag og hinn drengurinn var útskrifaður þaðan í gær. Þeir liggja nú báðir á Bamaspítala Hringsins. Er beðist velvirð- ingar á þessari ónákvæmni í frásögninni. AKUUviU SSmM í ¥ ■—4 B n MOIK.IMII AIISINS 4 Mikilvægasti landsleikur Is- lands í háa herrans tíð/B1 Guðjón óhress með fram- komu Eiðs Smára/B3 . Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.