Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 5. JIJNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Kraftganga
HRESSAR eyfirskar konur og rakst á kraftgönguhóp Sigrúnar
nokkrir karlmenn hittast reglulega Jónsdóttur á fullri ferð eitt kvöldið í
til að hreyfa sig, en ljósmyndari vikunni og festi á filmu.
STÓRSÝNING
Bfla- og búvélasýningar
Ingvars Helgasonar og
Bflheima um landið
Laugardaginn 5. júní
Ásbyrgi................. 10-12
Þórshöfn................. 15-17
Vopnafjöróur............. 19-21
Sunnudaginn 6. júní
Egilsstaðir (bílasýning). 9-12
Egilsstaðir (búvélasýning)... 9-16
Neskaupstaður (bílasýning) 14-17
Breiðdalsvík..............19-21
Bílheimar ehf.
ScrvorMfOa 2a ■ Síml S2S 9000
www.bHheknar.it
Viðurkenn-
ing fyrir 25
ára starf
FIMMTÁN starfsmenn Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri fengu við-
urkenningu fyrir 25 ára starf við
sjúkrahúsið. Viðurkenningarnar voru
afhyntar á ársfundi FSA á dögunum.
Á myndinni eru frá vinstri: Sól-
veig Guðmundsdóttir, sjúkraliði,
Heiða Hrönn Jóhannsdóttir, sjúkra-
liði, Helga Tómasdóttir, sjúkraliði,
Kristjana Svavarsdóttir, gjaldkeri,
Svala Steinþórsdóttir, sjúkraliði,
Magnús Stefánsson, yfirlæknir, Val-
garður Stefánsson, innkaupafulltrúi,
Hildur Gunnarsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, Ásta Þorsteinsdóttir,
starfsstúlka, Eyrún Þórsdóttir,
sjúkraliði og Brynjólfur Ingvarsson,
læknir. Á myndina vantar þær Mar-
gréti Skúladóttur, meinatækni, Mar-
gréti Björgvinsdóttur, röntgen-
tækni, Sigríði Bemharðsdóttur,
sjúkraliða og Sigrúnu Kristjánsdótt-
ur, sjúkraliða.
Óskum ykkur til hamingju með
nýju tölvustýrðu vinnslustöðina.
£0 M WÉS&M M
Einkaumboðsaðili C scm á íslandi.
AKUREYRI
EIN BESTA STAFRÆNA MYNDAVÉLIN!
FUJIFILM
MX-700
STAFRÆN MYNDAVÉL
1.5 Mílljón Pixela CCÐ
1280 x 1024 Plxela upplausn
2" TFT sklðr
Endurtilaðanleg Uthium lon rafhlaða
Straumbreytlr
Snúrur oo hugbúnaður lyrlr PC og Mac
SmartMadla mf nnlskort lylglr
Frábærtverð
kr. 69.900
Sklpholtl 31, Síml 568 0450
Kaupvangsstræti 1, s. 4612850
Morgunblaðið/Kristján
Skipin
streyma
til hafnar
ÍSLENSKI fiskiskipaflotinn hef-
ur verið að streyma til hafnar
vegna sjómannadagsins og hafa
starfsmenn Krossaness ekki far-
ið varhluta af því. í gær og
fyrradag lönduðu 5 nótaskip sfld
úr Sfldarsmugunni í Krossanesi,
samtals um 4.200 tonnum.
Skipin eru öll í eigu ísfélags
Vestmannaeyja. Guðmundur VE
og Antares VE lönduðu bæði 800
tonnum í gær en í fyrradag lönd-
uðu Sigurður VE 1500 tonnum,
Gígja VE 700 tonnum og Heima-
ey VE 400 tonnum.
Jóhann Pétur Anderson, fram-
kvæmdastjóri Krossaness, sagði
að sfldin væri góð en full af átu
og færi öll til bræðslu. Tæplega
8.000 tonnum af sfld hefur verið
landað í Krossanesi á vertíðinni,
sem er heldur meira magn en á
sama tíma í fyrra.
Fyrsta
skemmtiferðaskipið
Fyrsta skemmtiferðaskip sum-
arsins, Ocean Majesty frá Grikk-
landi, kom til Akureyrar í gær.
Um borð voru um 490 farþegar
frá Bretlandi og 255 manna
áhöfn. Skipið hélt frá Akureyri í
gærkvöld áleiðis til Færeyja.
Skipstjórinn á Ocean Majesty,
Ioannis Ventooras, var að koma í
fyrsta skipti til Akureyrar og
tók Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri á móti honum ásamt
fríðu föruneyti og færði mynd af
Akureyri að gjöf.
Samlagið
Kynning
á verkum
Elsu Maríu
KYNNING á nýjum verkum eftir
Elsu Maríu Guðmundsdóttur verð-
ur opnuð í Samlaginu, Kaupvangs-
stræti 12 á
Akureyri, í dag,
laugardaginn 5.
júní.
Elsa María er
fædd árið 1973.
Hún útskrifað-
ist frá fagur-
listadeild
Myndlistarskól-
ans á Akureyri árið 1998 og hefur
starfað síðan sem leiðbeinandi við
Verkmenntaskólann á Akureyri.
Alls eru 13 verk á kynningunni,
einþrykk, öll unnin á þessu ári.
Kynningin stendur út júmmánuð
og eru bæjarbúar og ferðamenn
velkomnir. Samlagið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 14
til 18.
Háskolahátíð í
Glerárkirkju
100 kandí-
datar braut-
skráðir
HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður
haldin í Glerárkirkju á Akur-
eyri í dag, laugardaginn 5.
júní, en þar verða 100
kandídatar brautskráðir.
Úr heilbrigðisdeild verður
brautskráður 21 með BS-próf
úr hjúkrunarfræði, úr kenn-
aradeild verða 16 brautskráðir
með B.Ed.-próf í kennara-
fræði, 16 með B.Ed-próf í leik-
skólafræði og 28 með próf í
kennslufræði til kennararétt-
inda, úr rekstrardeild verða
14 brautskráðir með BS-próf í
rekstrarfræði og einn með
framhaldsnám í gæðastjórnun
og í sjávarútvegsdeild verða 4
brautskráðir með BS-próf í
sjávarútvegsfræði.
Háskólaárið 1998-1999 voru
sem fyrr fjórar deildir starf-
ræktar í Háskólanum á Akur-
eyri: Heilbrigðisdeild með 146
nemendur, kennaradeild með
197 nemendur, rekstrardeild
með 119 nemendur og sjávar-
útvegsdeild með 41 nemanda.
Samtals stunduðu því nám við
Háskólann 503 nemendur og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
Háskólinn á Akureyri
brautskráir nú í fyrsta sinn
leikskólakennara, 16 alls.
Nám fyrir leikskólakennara á
háskólastigi hófst fyrst hér á
landi við Háskólann á Akur-
eyri haustið 1996. Námið tek-
ur þrjú ár og því lýkur með
B.Ed.-gráðu. Mikill skortur er
á leikskólakennurum víða um
land og er því ljóst að mikil
þörf er á þessu námi.
vg> mbl.is
_ALL.7y\f= e/TTH\/a£) NÝTT