Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Brunavarnaæfing hjá borgarverkfræðingi SLÖKKVILIÐIÐ var með bruna- varnaæfingu í húsnæði borgar- verkfræðings að Skúlatúni 2 f gærmorgun í tengslum við brunavarnanámskeið sem haldið hefur verið fyrir starfsfólk að undanfbrnu. Eitt af því sem er æft á námskeiðinu er það hvern- ig húsið er rýmt ef um eld er að ræða, en þá eiga allir að yfirgefa húsið eftir ákveðnu skipulagi og þeir sem eru á efstu hæðinni fara út á svalir. Slökkviliðið kom með körfubíl á svæðið og flutti þá sem voru á svölunum niður í körfu. „Þetta gekk allt ljómandi vel og fólkið hafði bæði gagn og gaman af,“ sagði Björn Gíslason, varð- stjóri hjá slökkviliðinu, í samtali við Morgunblaðið um æfinguna. Gáfu Qórar milljónir króna SYSTURNAR Guðborg og Ing- veldur Einarsdætur hafa gefið Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna 4.000.000 króna eða megnið af andvirði íbúðar sem þær áttu í Reykjavík. I fréttatilkynningu frá styrktar- félaginu segir: „Hið rausnarlega framlag þeirra systra er gefið í trausti þess að fénu verði varið til að styrkja þá sem hjálpar eru þurfi vegna þess að þeir eiga krabba- meinssjúk börn eða börnin sjálf sem hafa fengið sjúkdóminn. Þess ber að geta að Ingveldur lést að morgni 4. júní síðastliðins og vilja forsvarsmenn SKB af þeim sökum koma á framfæri við að- standendur hennar innilegum sam- úðarkveðjum." Deila innan samstarfshóps um fjölmiðlakannanir Ekki gekk sam- an á fundi í gær EKKI gekk saman með mönnum á fundi samstarfshóps um fjöl- miðlakannanir og framkvæmd könn- unarinnar sem.SÍA og fjölmiðlamir eiga aðild að í gær. Halldór Gúðmundsson, formaður SÍA, viidi lítið láta hafa eftir sér um málið, „en það lítur ekki nægilega vel út á þessari stundu. Það náðist ekki samkomulag um framkvæmd könnunarinnar eins og að var stefnt“, sagði hann. Hins vegar sagði Halldór að þótt slitnað hefði upp úr í gærmorgun bjmdi hann enn vonir við að samkomulag tækist þannig að allir yrðu með í samstarfinu eins og verið hefur. Halldór segir að Frjáls fjölmiðlun hafi deilt við aðra í samstarfshópn- um um hvort afla eigi upplýsinga um hlutfall dagblaðalestrar á hvem ein- stakling og hve löngum tíma einstak- lingurinn ver til dagblaðalestrar á hverjum degi. Samkomulag um mælistokk Aðspurður hvers vegna samkomu- lag væri mikilvægt fyrir framkvæmd könnunar um notkun fjölmiðla í landinu sagði Halldór: ,Á undan- fömum ámm hafa menn komið sér saman um mælistokk sem allir nota. Sá er fyrst og fremst ávinningurinn af þessu. Það hefur þann kost að þá em menn að nota sömu mælingu og þá myndast ákveðin hefð um viðmið. Það er lakara ef það leysist upp og hver fer að veifa sínum könnunum vegna þess að þá geta legið ólíkar forsendur til gmndvallar." Halldór sagði að allir aðrir en Fijáls fjölmiðlun vildu fá þessum spumingum svarað. ,Auðvitað hlýtur vilji auglýsenda og auglýsingastofa að ráða talsverðu en það er með þetta eins og annað að menn verða að koma sér saman um hlutina," sagði hann. Marteinn Jónasson, framkvæmda- stjóri Dagsprents, útgáfufélags dag- blaðsins Dags, sagði að málið snerist um könnun, sem gerð hefur verið með ákveðnum hætti um langt ára- bil. „Það em komnar fram tillögur um að gera á henni breytingar og út frá faglegu sjónarmiði teljum við að þær breytingar skili engu og séu mjög villandi. Það hefur verið góð samstaða í mörg ár milli allra þess- ara miðla og samstarfs- og sam- keppnisaðila um könnunina. Út frá faglegum sjónarmiðum em þessar breytingar ekki góðar, að okkar mati,“ sagði Marteinn. Raunveruleg eftirtekt „Markmið okkar með þátttöku í könnuninni er að veita auglýsendum greinargóðar upplýsingar sem nýt- ast þeim við áætlanir um auglýsinga- birtingar. Það, hvað einhver maður úti í bæ er lengi að lesa leiðara Dags eða minningargreinarnar í Moggan- um, segir auglýsandanum ekkert um gildi auglýsingarinnar. Markmiðið hlýtur að vera að mæla raunverulega eftirtekt á þeim auglýsingum, sem birtast í miðlunum, og hjálpa þannig auglýsendum að meta auglýsinga- gildi viðkomandi miðils," sagði Mar- teinn. Hann sagði aðspurður að hann ótt- aðist ekki að þessar upplýsingar gætu rýrt auglýsingagildi miðla en að þær hjálpuðu ekki nokkram manni; ekki heldur auglýsendum. „Við emm allir af vilja gerðir að finna mælingar sem hjálpa aug- lýsendum en mælingar, sem era vill- andi, em ekki til bóta,“ sagði Mar- teinn. Hann sagði að á þeim erlendu blöðum, þar sem hann þekkir til, væm mælingar af þessu tagi ekki gerðar. „Menn em að mæla gæði lestrarins, hvað er mikið tekið eftir auglýsingunum. Við vildum gera það.“ Marteinn sagði að Frjáls fjölmiðl- un og tengdir aðilar greiddu fyrir meira en 70% af dagblaðahluta könnunarinnar og yfir 50% af prent- hluta hennar. „Ef auglýsingastofurn- ar telja sína viðskiptavini þurfa þess- ar upplýsingar verða þeir að afla þeirra. Við teljum að þetta muni ekki gagnast þeim,“ sagði Marteinn. Leikhússtjóri LR boðar til starfsmannafundar Tengist ekki uppsögnum STARFSMANNAFUNDUR var haldinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur í fyrradag, en Þórhildur Þorleifs- dóttir leikhússtjóri sagði að fund- urinn hefði ekki á neinn hátt tengst uppsögnum starfsmanna undan- fama sjö mánuði, en á þeim tíma hafa nokkiir starfsmenn ýmist lát- ið af störfum eða em að hætta hjá Leikfélaginu. „Tilefni fundarins var það að ég þurfti aðeins að tala við starfsfólk- ið,“ sagði Þórhiidur. „Svona fundir era haldnir alltaf öðra hvora og það em svo sem engar sérstakar fréttir af fundinum." Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra LR er ranninn út og sagði Þórhildur að líklega yrði ráðið í stöðuna um miðjan mánuðinn. Morgunblaðið/Þorkell AUÐUR niðurlút á meðan kærasti hennar, Broddi Sadó tannlæknir, þjarmar að Baldri Snæ sem ann henni hugástum: Þórunn Lámsdóttir, Valur Freyr Einarsson og Stefán Karl Stefánsson í hlutverkum sínum. Stj ar na fæðist LEIKLIST Leikfélag Reykja vfkur LITLA HRYLLINGSBÚÐIN Höfundur: Howard Ashman. Tónlist: Alan Menken. Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson. Þýðing söngtexta: Magnús Þór Jónsson. Leikstjóri: Kenn Old- field. Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson. Búningar: Una Collins. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Lýsing: Ög- mundur Þór Jóhannesson. Hljóð: Gunnar Árnason og Jakob Tryggva- son. Leikarar: Ari Matthíasson, Ás- björn Morthens, Eggert Þorleifsson, Hera Björk Þórhallsdóttir, Regína Ósk Óskarsdóttir, Selma Bjömsdótt- ir, Stefán Karl Stefánsson, Valur Freyr Einarsson og Þómnn Lárus- dóttir. Tónlistarmenn: Friðrik Sturlu- son, Jóhaim Rjörleifsson, Jón Elvar Hafsteinsson, Jón Ólafsson og Karl Olgeirsson. Föstudagur 4. júní. Á STÓRA sviðinu í Borgarleikhús- inu birtist íslenskum áhorfendum ný stjama, fullsköpuð eins og Aþena úr höfði Seifs, og áhorfendur hljóta að spyrja sjálfa hvar þessi stúlka hefur alið manninn til þessa og af hverju við höfúm ekki fengið að sjá hana fyrr. Þómnn Lárasdóttir fer með hlut- verk Auðar í söngleiknum, einfaldrar, brjóstgóðrar stúlku sem lífið hefur leikið illa enda þjáist hún ákaft af sjálfsmyndarskorti. Þórunn leikur sér að með einlægni, gífurlegri út- geislun, úthugsuðu látbragði og hnit- miðaðri tímasetningu að gera þessa heimsku ljósku að miðpunkti sýning- arinnar; persónu sem öðlast eiplæga samúð áhorfenda á meðan þeir hlæja innilega að hrakföram hennar. Söng- ur hennar er punkturinn yfir i-ið. Hún hefur háa og tæra rödd sem hún beitir af öryggi við að túlka vonir og þrár þessarar ógæfusömu stúlku. En fleiri hafa lagt hönd á plóginn til að koma persónu Auðar til skila til áhorfendanna. Má þar nefna fremsta í flokki Unu Collins búningahönnuð sem hannar á hana hvert glæsidress- ið á fætur öðm, hárgreiðslu- og föðr- unarfólk og svo leikstjórann Kenn Oldfield sem gerir Þómnni kleyft að sýna hvað í henni býr. Útlitið ér svo stílfært að það minnir á karl- skemmtikraft í kvenmannsklæðum. Að lokum má telja hér upp Jón Ólafs- son og Karl Olgeirsson sem leika snilidarlega á hljómborð undir ljúfsáram söng Þómnnar um framtíð- ardrauma Auðar. Stefán Karl Stefánsson er annar nýliði sem fær aldeilis að láta ljós sitt skína á þessari sýningu. Hann leikur af miklum krafti hlutverk Brodda tannlæknis sem finnur kvalalosta sín- um útrás í „ástar“sambandi við Auði. Hér er ekkert til sparað, enda tann- læknirinn afar ýkt persóna. Auk þess bregður Stefán sér í fjölmörg önnur gervi af mikilli snilld og útsjónarsemi. Valur Freyr Einarsson leikur hinn lánlausa Baldur Snæ, sem ann Auði hugástum en lendir í slæmum félags- skap plöntu nokkurrar sem ættuð er utan úr geimi. Valur er eiginlega ein- um of vel af guði gerður til að falla inn í hlutverkið en með gleraugum og púkalegum fötum er reynt að gera hann trúverðugri. Hann leikur vel og hefur tekið miklum framfömm í söng á síðustu ámm en röddin liggur lágt og sýndi þreytumerki áður en yfir lauk. Hera Björk Þórhallsdóttir, Regína Ósk Óskarsdóttir og Selma Bjöms- dóttir krydduðu verkið skemmtilega sem götustelpumar. Þar var vel að verki staðið bæði hvað söng og hi-eyf- ingar varðaði - og ekki skemmdu búningamir fyrir. Ásbjöm Morthens ljáði kjötætuplöntunni kröftuga rödd sína og eins og við mátti búast var túlkun hans sterkari í söng en tali. Ari Matthíasson gaf limi lyfjagrassins líf og vann þar auðsjáanlega þrek- virki. Eggert Þorleifsson lék Markús hryllingsbúðareiganda og vantaði töluvert upp á einbeitinguna í leikn- um og beinskeytnina í annars oft frá- bæram tilsvömm Gísla Rúnars þýð- anda. Söngtextar Magnúsar Þórs Jónssonar era auðvitað hrein snilld. Leikmynd Stígs Steinþórssonar er mjög skemmtilega teiknimyndaleg útfærsla á götumynd í fátækrahverfi í stórborg þar sem sjá má skýjakljúf- ana í baksýn. En fyrst textinn var staðfærður mátti þá ekki ganga alla leið og sýna okkur skuggahverfi Reykjavíkurborgar? Sýninguna skreytir stórfenglegt ljósles þai- sem reynt er að skapa stemmningu hryll- ingsmynda með fjölbreyttum skugg- um og vísa til söngleikjauppfærslna fyrri ára með því að beina þröngu kastíjósi að því sem hæst ber á svið- inu hverju sinni. Það tekst vel að koma stemmningunni til skila en það verður þreytandi til lengdar að horfa einungis á efri hluta einsöngvaranna í helstu tónlistaratriðunum. Kenn Oldfield hefur í samvinnu við tónlistarstjóra og útlitshönnuði skap- að skemmtilega sýningu með sérkennilega ýktan stfl. En sýning- arinnar verður lengi minnst fyrir hve skært hinir nýútskrifuðu leikarar Þómnn Lámsdóttir og Stefán Karl Stefánsson skinu frá upphafi. Sveinn Haraldsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.