Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 63
Heldur þú að
C-vítamm sé rióg ?
NATEN
-ernógl
BRÖÐARGjAFIR í
MIRLU ÖRVALI
BRÖÐARLISTAR
Ingólfsftrœti $
mbl.is
AFMÆLI
Höfum opnað verslun með vörum
úr breska hannyrðalistanum frá
CIflZ
Craft CoCCection
Hamraborg 7, Kópavogl
Síml/fax 564 4131
Opið í dag Irá kl.tO-lB
Þökkum frábærar
móttökur viö póstlistanum
á sl. árl!
GUÐMUNDUR
LÁRUSSON
GUÐMUNDUR Lárus-
son húsasmíðameistari
og athafnamaður er 70
ára í dag. Það er því í
alla staði við hæfi og
verðugt að færa honum
heillaóskir á þessum
tímamótum. Guðmund-
ur hefur mörgum góð-
um málum fylgt til sig-
urs um dagana. Hann
var til margra ára
burðarásinn í atvinnulffi
Skagastrandar og rak
þar trésmiðju og skipa-
smíðastöð. Hann stóð
fyrir því að hafin var
rækjuvinnsla á staðnum með miklum
myndarbrag og byggði verksmiðju
yfir þá starfsemi. Þar sýndi hann
mikla framsýni, því enn í dag er
þessi verksmiðja geysilega þýðingar-
mikill hlekkur í keðju atvinnulífs
Skagastrandar. Hún hefur nýlega
verið endurnýjuð og stækkuð og
verður væntanlega um ókomin ár trú
sínu stóra hlutverki.
Guðmundur var einnig í því ágæta
forystuliði sem stóð að stofnun
Skagstrendings á sínum tíma. Þar
munaði um Guðmund eins og alls
staðar þar sem hann kom við sögu.
Hann var lífið og sálin í því að
byggja upp og örva menn til dáða.
Aldrei taldi hann eftir sér að lið-
sinna öðrum og margur vandinn
hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar
hann lagði sín úrræði fram. Það er
gæfa hvers byggðarlags að eiga
menn eins og Guðmund Lárusson -
slíkir menn eru brautryðjendur allra
góðra mála. Ég tel Guðmund hik-
laust í hópi manna eins og Einars
Guðfinnssonar, Haraldar Böðvars-
sonar og Aðalsteins Jónssonar -
manna sem byggja upp og láta gott
af sér leiða.
Það er gaman að hugsa til baka og
hugleiða allt það mikla mannlíf og
alla þá dunandi drift sem var í skipa-
smíðastöðinni hjá Guðmundi á árun-
um eftir 1970. Bátarnir runnu fram
og voru sjósettir hver af öðrum, allir
gullfallegir, smíðaðir úr valinni eik.
Mannskapurinn var samhentur í þvi
að leggja metnað í smíðina og árang-
urinn var frábær. Guðmundur var á
ferð og flugi í kringum hlutina og
eins Olafur Guðmundsson skipa-
smiður, sem var hans helsti maður í
Stöðinni. Þarna mátti sjá marga
garpa Guðmundar ganga að verkum
með snerpu og snilli. Þarna voru auk
Óla skip, Tóti Flankur (Thor von
Flankenstein), Bjartur í Vík, Pálmi
Sig, Helgi Gunnars, Kári Lár, Eddi
Ingva, Ingi Gríms, Lúlli í Steinholti
(Ludvik von Steinholt), Gunnar AI-
berts, Kalli Gumm, Siggi í Fjalls-
minni, Bjössi Máni, Guðmundur Jóh.
og margir margir fleiri. Þetta var lið
sem lið var að. Og Guð-
mundur var ánægður
með sína menn og sýndi
það óspart. Já, þetta
voru merkilegir tímar
og vor í lofti, ekkert
eymdarvæl komið á
dagskrá um að ekki
væri lifandi á lands-
byggðinni. Slíkt væl
þrífst ekki í umhverfi
þar sem menn eins og
Guðmundur Lárusson
eru. Það var með ólík-
indum hvað yfirferð
Guðmundar var mikil,
hann kom alstaðar að
verkum, reiknaði og mældi, sagði
fyrir, greip í störfin og dreif hlutina
áfram. Vinnudagur hans hefur oft
verið langur og oft var lögð nótt við
dag þegar þörf krafði.
Skagaströnd nýtur enn verka
Guðmundar Lárussonar og svo mun
lengi verða. Ég veit að starfsmenn
Guðmundar, allir fornir Birkibeinar,
munu innilega taka undir með mér
og óska honum hjartanlega til ham-
ingju með daginn. Og það á hann
skilið.
Að síðustu vil ég geta þess, að
Guðmundur hefur ekki staðið einn í
sinni lífsbaráttu. Erla konan hans
hefur staðið við hlið hans eins og
klettur og þau hafa verið samhent og
sigur þeirra er stór. Þau hafa komið
tíu börnum upp og má af því sjá að
Guðmundur hefur ekki vanrækt
heimaverkefnin þótt annir hafi jafn-
an verið miklar utan heimilisins. Ég
þakka Guðmundi vináttu og gróin
kynni og megi hann og hans fólk
njóta alls hins besta í lffinu um
ókomin ár.
Rúnar Kristjánsson
Orðsending frá Borgarbúðinni ehf.,
Kópavogi.
Þar sem við höfum nú hœtt rekstri búðarinnar eftir 42
ár, þá viljum við þakka með hrœrðum huga öllum þeim
fjölmörgu viðskiptavinum og fyrirtœkjum innilega fyrir
viðskiptin.
Með þakkarkveðjum og blessunaróskum,
Hulda og Jóhann Kristjánsson.
LÆKJASMARI 100
Opið hús á morgun, laugardag, milli kl. 13 og 16.
Skemmtileg 4-5 herb. íbúð með sérinngangi og góðu
útsýni. Þá fylgir rúmgott ris með tveim stórum
stafngluggum, risið er óinnréttað en með öllum
lögnum. Gott stæði í bílageymslu með
þvottaaðstöðu.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
LAUFAS
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 12
sím,5331111
fax 5331115
Póstsendum samdægurs
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
_________ Tegund: B73000
Tegund: 673002
Stærðir: 40-46. Svartir-loftbólstraðir-gúmmísóli
v
Halli Pé toifœrukappi býður
ímat
Sinnepslegið
lambalæri með
rósmarín kartöflum
Það lyftist heldur betur brúnin á
vöskum aðstoðarmönnum Halla Pé
þegar þeir voru að standsetja nýja
torfærubílinn fyrir keppni um daginn.
Kappinn tók sig nefnilega til og grillaði
svo gott lambalæri að þeir eru enn að
tala um það.
HalliPé
Aðferð
fetaostur
óltfur
avókadó
grillpinnar
Rauávfn: Torres Gran Coronas
Hörkuduglegir aðsloðarmenn: F.v. Jói G., Nonni, Ámi, Halli Pé og Jói W.
ÍSLENSKIR
SAUÐFJARBÆNDUR
V
mbl l.is LLTAf= T/TTH\SAT> /VÝI /