Morgunblaðið - 05.06.1999, Page 64

Morgunblaðið - 05.06.1999, Page 64
64 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HERRASKÓR í MIKLU ÚRVALI Götuskór - Spariskór , Stærðir 41 -46 HflPPY Verð frá kr. 6.990 Kringlunni 8-12, sími 568 9345. Kraftnkarlar, kolkrabbar og alvöru karlmenn í Kolaportinu Austurlensk trevaro raTtiadui Vorom að fá mikið úrval of FIIBU og Tommy fatnaði og fótboltatreyjum í öllum stærðum. Vorum að fó nýja sendingu af austurlenskri trévöru t.d. fílar, indíónar, grímur, geisladiska- standar, mótórhjól ó ótrúlega góðu verði. ^ MiUid •w urval Sonnir bókgunnendur þessa lands. ÆM8ík= @@J fedtafeásfliíflffQ á ©0®®8@Off® tkjymniiOff' d®0B áiresiD á IbátoainiMijfalS ostHa Dfl®0@j6oflao Strandamenn - Vestfirskar aettir - Bergsætt . Kjósamenn Kollsvíkurætt - Þjóðsögur - Sóknartýsing Vestmannaeyja Tíminn og votnið - Blanda - Vídalínspostilla, Hólaprent 1776 Svartar Ijaðrir - Árni Óln - Austurland - Vorlöng A móti Gullfalleg untikhúsgögn í svefnherbergið pylsuvagnmum og borðstofunu. Einnig bókuhillur og ntikið úrval af antikvöru. Candyfloss, blöðrur, hattar og fleira fyrir börnin. Dömufatnadur Mlkið úrval af dömufutnuði s.s. Við Kaffi Port Peysur frú kr. 1900, blússur frú kr. 1500, bolir frú kr. 990, núttföt frú kr. 1000 og gott úrval of barnufötum. Einnig útsöluhorn með vörum ú vorði frú kr. 200,- Kompudótið flæðir um allar götur og alltaf jafnskemmtilegt uð gramsa og leita. Notaða muni er að finna i miklu úrvali og oft hægt að goru ótrúlega góð kaup. LíHu við, sjón er sögu ríkuri! Kartöflur Síld jr, b Fiskur Flatkökur Sœlgœti Ostar m Hákarl^®^ Hangikjöt Rœkja Harðfiskur Hörpuskel há Sœlgœti^— Egg "rSilungur Kjötvara Hörpuskel Saltfiskur KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG í DAG VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sammála Sólveigu Rós ÉG ER mjög svo innilega sammála Sólveigu Rós, sem skrifar í Velvakanda 2. júní, að mun nær sé okk- ar gestrisnu þjóð að ganga í að kanna hvort kjör Taí- lendinga (og ef til vill fleiri aðfluttra) geti hugsanlega verið svo slæm að í ein- hverjum tilfellum neyðist þetta fólk til að hirða úr ruslafótum sér til framfær- is. Þótt staða öryrkja og ellilífeyrisþega hér á landi sé í mörgum tilfellum mjög slæm, þá hafa þessir hópar þó sín félög sem eru að berjast fyrir bættum kjör- um. Nýbúar, hvaðan sem þeir koma, hafa ekkert slíkt og eru heldur ekki í aðstöðu til að berjast. Þótt taílenskar stúlkur hafí ekki flust hingað til lands beinlínis sem flótta- menn er þó rétt hjá Sól- veigu að þær hafa komið í von um betra líf, fátækt og skortur á framfærslu- möguleikum í þeirra heimalandi er langt fyrir ofan okkar skilning og reynslu. Það er svo ör- ugglega allur gangur á hvernig þessum stúlkum - og börnum þeim sem þær svo eignast með ís- lenskum sambýlismönn- um eða eiginmönnum - reiðir af hér og hvort sambúðin endist. Þegar ég las greinina sem birtist nýlega í Vel- vakanda um viðbjóð kon- unnar, sem greinina skrif- aði, á þessu athæfi datt mér - eins og Sólveigu Rós - líka strax í hug, hvort þetta gæti ef til vill hafa verið fólk sem hreinlega neyddist til að fara í rusla- fötur í leit að einhverju að borða og flöskum til að selja. Sé svo þarf allt aðrar aðgerðir en að loka þess- um einu matarholum þessa fólks - og við Islendingar erum vonandi ekki þau lít- ilmenni að láta viðgangast að þessar stúlkur og börn þeirra séu á vergangi. Ég þakka svo Sólvéigu Rós fyrir að vekja máls á þessu máli. Guðrún Jóhannsdóttir, (öryrki á sjötugsaldri) Tal 12 VIÐ hjónin keyptum hjá Tal GSM-síma og kort, svokallað Tal 12, sem við gáfum dóttur okkar. En síminn eyðilagðist svo við ætluðum að kaupa nýjan síma hjá Tal en þá var okkur sagt að við þyrftum að kaupa aðra áskrift til að fá nýjan síma. Þurfum við þess vegna að kaupa rán- dýran síma til að geta not- að Tal 12 áfram. Tal er ekki með viðgerðarþjón- ustu fyrir síma, þannig að þeir sendu okkur annað með símann og vildu ekk- ert fyrir okkur gera. Það er alveg ljóst að við ætlum að beina viðskiptum okkar að Islandssíma þegar þess- ari Tal-áskrift er lokið. Guðmundur Þorsteinsson, Reykjabyggð 4. Um ofbeldi í kvikmyndum Vekvakanda barst eftirfar- andi: Mig langar að segja nokkur orð vegna þess sem Víkverji skrifaði í Mbl. í morgun, miðviku- daginn 2. júm', um ofbeldi í kvikmyndahúsum. Víkveiji segist vera sannfærður um að orsakanna að ofbeldi sé að einhveiju leyti að leita í þessum kvikmyndum. Ég er ekki sammála Víkverja - ég tel að fólk eigi að kenna bömum sínum muninn á réttu og röngu en ekki að kenna kvikmyndum um ef eitthvað fer úrskeiðis. Amal Rún. Hvar fæst ný sfld? AF hverju er ekki hægt að fá keypta nýja sfld í físk- búðum? Á vorin veiðist óskaplega fín sfld, Matjes- síld, sem þykir mikill herramannsmatur. Þessa sfld er mjög gott að steikja og ef maður leggur hana í marineringu er hún orðin beinlaus eftir tvo daga. Húsmóðir. Dýrahald Högni í óskilum FYRIR nokkru síðan sett- ist að hjá mér högni, hvít- ur og svartflekkóttur að lit. Hann er hugsanlega árs gamall eða nálægt því. Hann er ógeltur en virki- lega ljúfúr og bh'ður kött- ur, hreinlegur og kann alla þá mannasiði sem köttum ber að kunna. Vegna þess að ég bý í blokk og sökum reglna í fjölbýhshúsum er mér ekki unnt að halda kisa, þó svo ég gjarnan vildi. Ég sé fram á að innan skamms verð ég að senda Klóa, en það er nafnið sem ég gaf honum, upp í Katt- holt og eru þá örlög hans ráðin. Ef einhver getur séð sér fært að veita Klóa gott heimili væri ég þeim aðila þakklát. Ef einhver hefur týnt högnanum sín- um þá hafi hann samband við Kattholt eða við Brynju og Lýð í síma 895 8971. SKAK Hmsjón Margeir Pétnrssun STAÐAN kom upp á búigarska meistaramótinu í maí. Drenchev (2.370) hafði hvítt og átti leik gegn Mar- bolev (2.305) 31. Hxg7+ - Dxg7 32. De6+ - Kh8 33. Hf5 og svartur gafst upp. Petar Genov, Vladimir Georgiev og Vasil Spasov urðu jafnir og efstir á mót- inu með 10 v. af 15 mögu- legum, en sá fyrstnefndi var úrskurðaður sigurveg- ari á stigum. HVÍTUR leikur og vinnur Víkverji skrifar... SÖNGVAKEPPNI evrópskra sjónvarpsstöðva er enn að bögglast fyrir brjóstinu á Víkverja þótt vika sé nú liðin frá því keppnin var haldin í Jerúsalem. íslensku fulltrúamir stóðu sig með prýði og geta verið fullsæmdir af öðru sæt- inu, en Víkverji verður þó að játa að hann var dálítið sár þegar úrslitin lágu fyrir, því við vorum svo fjandi nálægt því að hreppa gullið. Vík- verji gerir sér þó grein fyrir að svona svekkelsi er ekkert annað en vanþakklæti, sem menn verða að vinna sig út úr. Annað sætið er auðvitað stórkost- legur árangur og svo má líka hugga sig við, eins og refurinn forðum þegar hann náði ekki í vínberin, að það er ákveðinn súrkeimur af fyrsta sætinu. Sú þjóð, sem vinnur Eurovision-keppnina, þarf nefnilega að halda hana að ári, með tilheyr- andi kostnaði og veseni, og við Is- lendingar eigum ekki einu sinni húsnæði undir svona keppni. Annað sætið hentar okkur því ágætlega og við getum vel við unað, ekki síst vegna þess að menn voru almennt sammála um að okkar lag hefði ver- ið best og við „áttum salinn“, eins og glöggt mátti heyra í sjónvarpsút- sendingunni. Það kemur líka dagur eftir þennan dag. Það vakti athygli Víkverja að nær eingöngu konur voru í hlutverkum flytjenda og í sjálfu sér ekkert við það að athuga enda viðurkennd sannindi að konur eru fremri körl- um á flestum sviðum. Eini karlmað- urinn, sem Víkverji man eftir í fljótu bragði frá keppninni í Jer- úsalem, er norski blökkumaðurinn sem flutti þama dæmigerða norska rapptónlist með miklum tilþrifum. Jú, þarna voru líka fjórir piltar frá Israel, sem Víkverja fannst að vísu dálítið gamaldags og hallærislegir. Stúlkumar sem komu þama fram voru hins vegar hver annarri glæsi- legri og Selma okkar var flottust. XXX VÍKVERJI hefur þó ákveðnar efasemdir um tilganginn með þessari keppni. Er hún haldin til að kynna tónlistarhefðir viðkomandi landa eða er hún eingöngu haldin til að koma þeim einstaklingum, sem taka þátt í keppninni, á fram- færi á hinum alþjóðlega tónlistar- markaði? Sé hið fyrmefnda til- gangurinn er ljóst að mönnum er farið að förlast og hafa greinilega misst sjónar á markmiði og leiðum. Á hinn bóginn fínnst Víkverja út í hött að ríkið sé að styrkja auglýs- ingastarfsemi einstaklinga í tón- listarbransanum. Sterk arabísk áhrif í mörgum lag- anna að þessu sinni vöktu Víkveija einnig til umhugsunar. Eftirminni- legasta dæmið um þetta er framlag Þjóðverja til keppninnar. Þjóðverj- ar tefldu fram tyrkneskum lista- mönnum, sem skiluðu sínu að vísu með ágætum, en tónlist þeirra átti ekkert skylt við þýðverska alþýðu- tónlist, eins og hún hefur hingað til hljómað í eyrum okkar. Fyrir bragðið áttu Tyrkir tvö lög í keppn- inni að þessu sinni. Hvað vakti fyrir Þjóðverjum með þessu útspili er ekki gott að segja. Hafi þeir ætlað að bæta fyrir slæma meðferð á tyrknesku farandverka- fólki í Þýskalandi, með því að leyfa þeim að taka þátt í keppninni fyrir sína hönd, orkar það tvímælis svo ekki sé meira sagt. Slíkt lyktar nefnilega af hræsni og er stundum kallað „að snobba niður fyrir sig“. Væri Þjóðverjum nær að gera ráð- stafanir til að draga úr atvinnuleys- inu meðal tyrkneskra farandverka- manna í Þýskalandi og greiða þeim, sem hafa einhverja vinnu, hærri laun. Víkverji telur þó ekki útilokað að með „tyrkneska trompinu" hafi Þjóðverjar verið að senda fólki dul- búin skilaboð, sem sé þau, að þeir séu endanlega búnir að „gefa skít“ í keppnina. Að það sé fyrir neðan virðingu hreinræktaðra Þjóðverja að taka þátt í þessari keppni, og að tyrknesku farandverkamennimir geti nú tekið við, eins og öðrum skítverkum, sem Þjóðverjar sjálfir vilja ekki vinna? Svíar héldu hins vegar í þjóðlegar hefðir og sigruðu með dæmigerðri sænskri ballöðu í anda ABBA- flokksins. Lagið er í skandinavísk- um sveiflutakti, ekki ósvipuðum þeim sem Geirmundur Valtýsson notar gjaman í „Skagafjarðarsveifl- unum“ sínum. íslendingar hafa hins vegar þráast við að senda tónsmíðar eftir Geirmund í Eurovision-keppn- ina og hefur það komið þeim í koll. Víkverji telur hins vegar að ekki sé fullreynt með Geirmund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.