Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 59
Sj ómannadagur
í Arbæjarsafni
BOÐIÐ verður upp á fjölbreytta
dagskrá í Árbæjarsafni sunnudag-
inn 6. júní. í tilefni sjómannadags-
ins munu íbúar Hábæjar og Ný-
lendu rifja upp vinnubrögð við salt-
fiskverkun og þurrkun. Fiskur
verður vaskaður og þurrkaður á
heimareit, ef veður leyfir.
Krúna, Skjalda og fína fjósið
Undanfarið hefur verið unnið að
endurbyggingu fjóssins í Arbæ.
Unnið var mjög nákvæmlega sam-
kvæmt gömlum hefðum. Ekki er
vitað með vissu hvenær núverandi
fjós var reist en að öllum líkindum
var það undir lok nítjándu aldar.
Nokkrum sinnum á þessari öld hef-
ur verið gert við torfhleðslu fjóssins
en nú var svo komið að veggir þess
voru að hruni komnir. Ekki er vitað
til þess að annars staðar en í Árbæ
séu torfhlaðin fjós enn í notkun,
segir , í fréttatilkynningu. Kýrin
Skjalda og kálfurinn Krúna hafa nú
komið sér fyrir í fjósinu og gestir
geta fylgst með mjöltum kl. 17 bæði
laugardag og sunnudag. Einnig eru
til heimilis á safnsvæðinu hryssan
Lóa, hesturinn Árni og óskírt folald.
Gestir mega gjarnan koma með til-
lögur um gott nafn á folaldið okkar.
Á sunnudaginn verða einnig bak-
aðar lummur í Árbænum, á bað-
stofuloftinu saumar Snæbjörg
roðskó og Sigurlaug stígur rokkinn.
Karl Jónatansson þenur nikkuna og
í smiðjunni verður eldsmiður við
störf. Börnin fá tækifæri til að
kynnast leikföngum og leikjum fyrri
tíma í Komhúsinu en þar verður
farið í leiki kl. 15. I Dillonshúsi
verður boðið upp á ljúffengar veit-
ingar.
1 IISl
-gj -i: l8p| iJB - '
JU t f
PRÁ Sjóminjasafni íslands.
Morgunblaðið/RAX
4
s
Opið alla daga í Sjóminjasafni Islands
Útilífsnám-
skeið að
hefjast
SKÁTAFÉ LAGIÐ Segull og ÍTR
minna á námskeið fyrir böm á aldr-
inum 9-12 ára sem felst í því að
takast á við krefjandi verkefni.
Námskeiðið hefst mánudaginn 7.
júní kl. 10 í skátaheimilinu að
Tindaseli 3.
Hvert námskeið stendur yfir í
viku og verður sigið, klifrað, fjalla-
hjólasport prófað, siglt, synt o.fl. Að
lokum verður farið í útilegu þar sem
gist verður í tjöldum og tekist á við
skáta- og útilíf. Um kvöldið verður
grillað og síðla kvölds tekur svo
kvöldvaka við með varðeld og söng.
Allar nánari upplýsingar era
veittar í félagsmiðstöðinni Mið-
bergi, Gerðubergi 1, þar sem skrán-
ing á námskeiðið fer fram.
Ársafmæli
Everest
EITT ár er liðið í dag, laugardaginn
5. júní, síðan útivistarverslunin
Everest var opnuð. „í tilefni tíma-
Imótanna verður sérstök dagskrá í
versluninni, Skeifunni 6 í Reykja-
vík, þar sem nokkur helstu vöra-
merki í útivistarbúnaði verða kynnt
auk afmælistilboða á fatnaði, skóm
og útbúnaði.
Eftir hádegi verður m.a. Jan Da-
vidson, hönnuður Cintamani-fatnað-
ar, með kynningu, Ferðafélagið
kynnir sumarferðir sínar og starfs-
fólk Everest aðstoðar afmælisgesti
við val á hentugum göngubúnaði.
IVerðbyltingin, 70% lægra verð á
vönduðum útvistarfatnaði frá
Sprayway og Skanda, heldur áfram
og 150 manna aftnælisterta verður
framreidd íyrir gesti og gangandi
klukkan 13 með orkudrykk frá
Leppin.
Verslunin verður opin afmælis-
daginn frá kl. 10-17,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Everest.
Esjudagur
SPRON og
Ferðafélagsins
ÁRLEGUR Esjudagur SPRON og
Ferðafélags íslands er á morgun,
sunnudag. Esjudagur 1999 hefst kl.
11 á bílastæðinu utan við Mógilsá
með stuttri athöfn.
Þaðan verður lagt í gönguferðir;
annars vegar leiða félagar FI
Igöngufólk á Esju og upp á Þver-
fellshorn og hins vegar býður
starfsfólk rannsóknarstöðvar
Skógræktarinnar á Mógilsá upp á
styttri gönguferðir um skógrækt-
arsvæðið.
1
Félagar í Flugbjörgunarsveit-
inni verða til aðstoðar eftir þörfum.
Sumardvalar-
ferð aldraðra á
Vestfjörðum
Á SÍÐUSTU 15-20 árum hafa
Rauða kross deildirnar á Vest-
fjörðum staðið fyrir sumardvalar-
ferð fyrir aldraða. Þessar ferðir
hafa verið afskaplega vinsælar og
vel sóttar. Gist hefur verið á hinum
ýmsu stöðum um land allt.
í ár er ferðinni heitið í Húna-
vatnssýslur 17.-23 ágúst, gist verð-
ur á Húnavöllum, skoðunarferðir
farnar og farið í heimsóknir um
sýslurnar. Nánari upplýsingar um
ferðina og bókanir era hjá þeim
Rauða kross konum Sigrúnu G.
Gísladóttur Sólbakka, Sigríði
Magnúsdóttur Kirkjubóli og Helgu
Jónasdóttur Tálknafirði.
Lyklakippur til
styrktar Björg-
unarbátasjóði
Á SJÓMANNADAGINN mun
slysavarna- og björgunarsveitar-
fólk standa fyrir sölu á lyklakipp-
um til styrktar Björgunarbátasjóði
Slysavarnafélags íslands.
„Félagið á níu björgunarskip
sem staðsett eru í öllum landshlut-
um, auk fjölda smærri báta, en
nýjasta skip félagsins kom til Gr-
indavíkur snemma á þessu ári.
Áhafnir skipanna eru alltaf í við-
bragðsstöðu, allan ársins hring.
Björgunarskipin eru nauðsynlegur
hlekkur í björgunar- og öryggis-
keðju sem félagið hefur byggt upp
um land allt“, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Slysavarnafélaginu.
„Lyklakippan verður boðin til
sölu víðast hvar á landinu og er sal-
an gerð í samráði við sjómanna-
dagsráð á hverjum stað. Verð
hennar er 500 kr. og rennur allur
ágóði sölunnar í Björgunarbáta-
sjóðinn sem stendur undir rekstri
skipanna."
GSM í Sádi-
Arabíu og
Egyptalandi
VIÐSKIPTAVINIR Landssímans
geta nú notfært sér GSM-þjónustu
í tveimur ríkjum til viðbótar í Aust-
urlöndum nær. Annars vegar varð
reikisamningur við farsímafélagið
MobiNil í Egyptalandi virkur 19.
maí sl, hins vegar geta viðskipta-
vinir Landssímans notað GSM-
þjónustu EAE-Aljawal í Sádi-Ara-
bíu frá og með 1. júní nk., segir í
fréttatilkynningu frá Landssíman-
um.
Yfirlit yfir reikisamninga Símans
SJÓMINJASAFN íslands, Vest-
urgötu 8, Hafnarfirði, er nú opið
alla daga frá kl. 13-17 fram til
30. september.
I safninu, sem er á þremur
hæðum, eru til sýnis munir og
myndir er tengjast fiskveiðum,
sjómennsku og siglingum fyrri
tíma þ.á m. landhelgisbáturinn
Ingjaldur, gömul sjóklæði úr
skinni, köfunarbúnaður, klipp-
urnar frægu úr þorskastríðinu,
skipslíkön, ýmis veiðarfæri,
áhöld og tæki. Boðið er upp á
SJÖTTA kynslóðin af Honda
Accord er nú komin til landsins
og verður hann sýndur laugar-
daginn 5. júní milli klukkan 10
ogl7.
I fréttatilkynningu segir:
„Honda Accord er nú fallegri,
þægilegri og skemmtilegri í
akstri en nokkru sinni fymr og
segir það ekki h'tið. Sem
GSM við erlend farsímafélög má
sjá á vefsíðum Landssímans:
http://www.gsm.is/notkun erlend-
is.htm
Lokafundur
Grænu
smiðjunnar
SÍÐASTI fundur Grænu smiðjunn-
ar á þessu misseri verður laugar-
daginn 5. júní kl. 15 í Tjarnarbíói í
Reykjavík. Kolbrún Halldórsdóttir
alþingismaður flytur inngangsorð
en á dagskránni eru tónlistaratriði,
tveir íyrirlestrar og ein náttúrulífs-
mynd.
Hugi Ólafsson, deildarstjóri í
myndbandasýningu á efstu hæð-
inni í sumar auk þess sem aldrað-
ir sjómenn kynna verklega sjó-
vinnu við sérstök tækifæri.
Á sjómannadaginn 6. júní verð-
ur opnuð lítil sýning í forsal
safnsins á hafrænum málverkum
eftir ýmsa íslenska listamenn.
Sýningin er samvinnuverkefni á
milli Sjóminjasafnsins og Hafnar-
borgar, menningar- og listastofn-
unar Hafnarfjarðar. Myndimar
era úr safni Hafnarborgar.
Sjóminjasafn fslands verður
tækninýjungar má nefna nýja
VTEC vél sem er sérstaklega
umhverfisvæn og sparaeytin en
skilar samt 136 hestöflum og
einnig hið nýja fjöðrunarkerfi (5-
link) sem gefiir bflnum einstak-
lega akstureiginleika og skapar
farþegum mikil þægindi.“
Verið velkomin í reynsluakst-
umhverfisráðuneytinu, flytur er-
indi sem nefnist „Alþjóðasamning-
ar í deiglu". Árni Bragason, for-
stjóri Náttúruverndar ríkisins,
flytur hitt erindið og nefnir það
Brýnustu verkefni í náttúruvernd.
Þá verður sýnd ný kvikmynd eftir
Magnús Magnússon sem heitir
Undir smásjánni: Mývatn, og fjall-
ar um lífríki vatnsins og kísilgúr-
námið. Magnús hefur gert fjöl-
margar myndir og stutta þætti um
íslenska náttúru en þessi kvikmynd
hefur enn ekki verið sýnd í sjón-
varpi.
Það er rappdúettinn Supah
Syndikal sem sér um tónlistina á
lokafundi Grænu smiðjunnar og
þangað eru allir velkomnir, segir í
fréttatilkynningu.
opið frá kl. 10-17 á sjómanna-
daginn og er aðgangur ókeypis í
tilefni dagsins eins og tíðkast
hefur frá því safnið var opnað ár-
ið 1986. Þórður Marteinsson leik-
ur á harmonikku frá kl. 13 og
Sigurbjöm Árnason skipsljóri
sýnir gömlu handbrögðin.
Sjóminjasafnið og Byggðasafn
Hafnarfjarðar hafa frá því í
fyrrasumar boðið upp á sameig-
inlegan afsláttarmiða sem gildir
að báðum söfnunum, Sívertsen-
húsi, Smiðjunni og Siggubæ.
Sýning véla-
deildar Heklu
STÓRSÝNING véladeildar Heklu
verður haldin helgina 5.-6. júní,
segir í fréttatilkynningu. Kynnt
verður starfsemi véladeildarinnar
og hin ýmsu tæki frá Caterpillar og
Scania verða á staðnum ásamt
vinnubflum frá Volkswagen, Mitsu-
bishi og Skoda.
Afhentm- verður 100. Scania-bíll-
inn, Magnús Ver mun reyna að
draga stærsta trakk á íslandi (36
tonn) kl. 14 á sunnudeginum. Boðið
verður upp á reynsluakstur á
Scania-bíl og margt fleira. Sýningin
verður laugardag og sunnudag kl.
12-17 báða dagana.
LEIÐRÉTT
Eggert í Hryllingsbúðinni
í UMFJÖLLUN um framsýningu
Litlu Hryllingsbúðarinnar í gær féll
niður nafn Eggerts Þorleifssonar
meðal leikenda í sýningunni. Egg-
ert leikur hlutverk Markúsar og era
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á
þessu. Þá vantaði nafn Gunnars
Ámasonar hljóðmeistara meðal að-
standenda sýningarinnar og er 1
beðist velvirðingar á því.
Nafn féil niður
í formála minningargreina um Sig-
urð Ámason á blaðsíðu 45 í Morg-
unblaðinu 3. júní féll niður nafn í
upptalningu barna hins látna, nafn
Rutar Sigurðardóttur, f. 7. ágúst
1960. Hlutaðeigendur era beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Misritun í formála
minningargreina
í formála minningargreina um Stef- *
aníu Guðmundsdóttur í Morgun-
blaðinu 4. júní í upptalningu systk-
ina hinnar látnu vantar kommu á
milli nafnanna Þorgeirs og Sig-
tryggs. Þorgeir, bróðir Stefaníu, er
meðal eftirlifandi systkina hennar
en Sigtryggur er látinn. Hlutaðeig-
endur era beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Ný Honda Accord
ur.