Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 29
Reuters
LIONEL Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, og Jacques
Chirac forseti á leiðinni á leið-
togafund ESB í Köln.
Yfirlýsing leiðtoga-
fundar ESB
Ekkert
minnst á
evruna
Köln. AFP, AP.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins
sögðu við lok tveggja daga fundar
síns í Köln í gær að þeir myndu
leggja kapp á að efla hagvöxt og at-
vinnusköpun með efnahagsstefnu
þar sem stöðugleikinn yrði í fyrir-
rúmi. Hækkaði gengi evrunnar lítil-
lega í kjölfarið en fyrr um daginn
náði hún sögulegu lágmarki á asísk-
um peningamörkuðum.
Athygli vakti að lögð höfðu verið
fram drög þar sem sagði að leiðtog-
arnir hefðu „alls engar áhyggjur" af
bágri stöðu evrunnar en að setning-
in var síðan máð út úr lokaályktun
fundarins. Leiðtogar ESB hafa sætt
vaxandi gagnrýni að undanfömu og
verið sakaðir um að ýta undir geng-
islækkun evrunnar gagnvart dollar
með yfírlýsingum sínum. Embættis-
menn sögðu að setningin um eyruna
hefði verið tekin út að beiðni Itala.
Þá voru Frakkar sagðir hafa orðið
þess valdandi að setning var tekin
út þar sem leiðtogamir hétu því að
auka trú markaða á evranni með
efnahags- og peningamálastefnu er
byggðist á „stöðugleika og umbót-
um“.
Einn embættismaður sagði að
ákveðið hefði verið að sleppa öllu
tali um evruna af ótta við að slíkt
myndi valda titringi á fjármála-
mörkuðum. Hefðu leiðtogarnir haft
áhyggjur af því að skrifleg yfirlýs-
ing yrði túlkuð sem svo að evran
ætti undir högg að sækja.
Á fimmtudag náðu leiðtogarnir
samkomulagi um að hraða þróun í
þá átt að sambandið gæti staðið að
hernaðaraðgerðum án aðstoðar
Bandaríkjanna. í yfirlýsingu sagði
að fyrir lok næsta árs skyldi vera
búið að hrinda í framkvæmd umbót-
um er myndu gera ESB kleift að
standa að t.d. friðargæslu. Þá
myndi ESB innlima Vestur-Evr-
ópusambandið í lok ársins 2000, en
tíu af fimmtán aðildarríkjum ESB
eiga aðild að VES. Hlutlausu ESB-
ríkin fjögur, írland, Svíþjóð, Aust-
urríki og Finnland, náðu því hins
vegar í gegn að innlimun VES í
ESB myndi ekki ná til 5. greinar
stofnsáttmála VES þar sem kveðið
er á um gagnkvæmar vamarskuld-
bindingar. Þar með er ESB ekki
breytt í varnarbandalag. Einnig var
í ályktuninni lögð áhersla á að með
þessu væri ESB ekki að reyna að
draga úr stöðu NATO sem helstu
tryggingar öryggis í Evrópu.
Kenneth Bacon, talsmaður banda-
ríska vamarmálaráðuneytisins,
fagnaði þessu skrefi og sagði Banda-
ríkin hafa hvatt til þess um langt
skeið að Evrópa gæti staðið að hern-
aðaraðgerðum upp á eigin spýtur.
Slíkt væri „viðeigandi og æskilegt11.
Skotið að mótmæl-
endum í Jakarta
Jakarta. AFP.
SVEITIR indónesísku óeirðalög-
reglunnar skutu í gær að fólki sem
safnast hafði saman í Jakarta, höf-
uðborg Indónesíu, til að mótmæla
sitjandi valdhöfum í Golkar-flokkn-
um, á síðasta degi opinberrar kosn-
ingabaráttu vegna þingkosninga er
fara fram á mánudag.
Ríkisútvarp landsins sagði frá
því að fimm manns hefðu særst í
skothríðinni en gat ekki staðfest þá
tölu. Kosningabaráttan hefur að
mestu farið friðsamlega fram.
Viðbrögð lögi-eglunnar komu í
kjölfar þess að æstur múgur
manna réðist að stuðningsmönnum
Golkar-flokksins sem vora á leið til
síðasta útifundar flokksins fyrir
kosningarnar.
Alls bjóða 48 flokkar fram til
þings, en ekki er útlit fyrir að
neinn flokkur hljóti afgerandi flest
atkvæði. Talið er að flokkur
Megawati Sukarnoputri, dóttur
Sukamos, íyrrverandi forseta,
muni fá mest fylgi.
Reuters
HÓPUR kvenna, er styðja Þjóðarvakningarflokkinn, kom til útifundar
í Pekalonganborg í Indónesíu í gær.
Franski gleraugnahönnuðurinn Alain Mikli verður í Linsunni í dag og kynnir nýja
hönnunarlínu í gleraugnaumgjörðum.
í nýju hönnunarlínunni eru umgjarðir í öllum stærðum, gerðum, litum og formum.
Þetta er einstakt tækifæri til að sjá meistarann og nýja hönnun hans. Við bjóðum
þér í Linsuna, Aðalstræti í dag, laugardaginn 5. júní.
LINSAN
Aðalstræti 9