Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
VERZIJL, forstjóri Forbo Krommenie B.V., Steinþór Eyþórsson, for-
maður Félags veggfóðrara- og dúklagningameistara og Birgir Rafn
Jónsson, framkvæmdastjóri Kjaran, með glerlistaverkin góðu.
Kjaran Gólfefni fagna aldarafmæli
gólfefnaframleiðanda
Einstætt samstarf
FJÖLMARGIR sóttu fagnað sem
Magnús Kjaran ehf. bauð til f til-
efni 100 ára afmælis Forbo
Krommenie B.V., stærsta fram-
leiðanda linoleum gólfefna í heimi,
og fram fór um síðustu helgi. Með-
al viðstaddra var Verzijl, forstjóri
hins erlenda fyrirtækis.
Verzjl sagði í ávarpi að Kjaran
væri elsti umboðsaðili fyrirtækis-
ins og rekja mætti samstarfið allt
aftur til 1930, er fyrirtækin gerðu
með sér samning. Birgir Rafn
Jónsson, framkvæmdastjóri Kjar-
an, sagði svo Iangt samstarf ein-
stætt í síbreytilegum heimi við-
skipta, en þess má geta að sam-
starfið er jafngamalt heildverslun-
inni Magnús Kjaran.
Steinþór Eyþórsson, formaður
Félags veggfóðrara og dúklagn-
ingarmeistara, flutti árnaðaróskir
og afhenti Kjaran og Forbo
Krommenie glerlistaverk eftir
Steindóru B. Fyrirtækin hafa
haldið ótal námskeið fyrir fagfólk
um tækni og nýjungar er snerta
gólfefni og gólflagnir og hafa ís-
lenskir dúklagningamenn sýnt það
í alþjóðlegnm keppnum að þeir
standa framarlega í verktækni og
verkvöndun. Steinþór segir gott
samstarf framleiðenda og fag-
manna undirstöðu verkgæða.
„Vistvænt skref til framtíðar"
Ný framleiðsluhna, Artoleum,
var kynnt við þetta tækifæri undir
kjörorðinu „Vistvænt skref til
framtíðar,“ en linoleum gólfefni
eru talin falla vel að umhverfinu
þegar tekið er tillit til þátta á borð
við áhrif af framleiðslu, notkun
orku og hráefna auk áhrifa gólf-
efnisins á heilsufar fólks og um-
hverfi eftir að notkun lýkur.
Linoleum gólfefni eru framleidd
úr náttúrulegum hráefnum, sem
eru endurnýjanleg að fullu. Linol-
ía er mikið notuð við framleiðsl-
una, en hún er unnin úr fræjum
hörjurtarinnar, sem áhugi er á að
rækta hérlendis.
Forbo Krommenie hefur gefið
út umfangsmikinn bækling um það
hvernig Marmoleum og Artoleum
gólfefni fyrirtækisins uppfylla
vaxandi kröfur í umhverfismálum.
Bæklingurinn er fáanlegur á ís-
lensku hjá Kjaran Gólfefni, Síðu-
múla 15.
Langur laugardagur
KAUPMENN við Laugaveg eru á
fullri ferð við að undirbúa laugardag-
inn, en þá er langur laugardagur og
búðir opnar til kl. 17.
í fréttatilkynningu frá kaupmönn-
um við Laugaveg kemur fram að
íþrótta- og tómstundaráð kemur í
bæinn og verður með kynningar á
sumarstarfi sínu víðs vegar um
Laugaveginn, en þar er að venju af
mörgu að taka, svo sem leikjanám-
skeið, siglinganámskeið, fjallahjóla-
námskeið, ævintýranámskeið og
sundnámskeið. Námskeiðin eru fyrir
Yörur frá Nu
Skin á markað
VÖRUR frá Nu Skin eru væntanleg-
ar á markað hér á landi. I tilkynn-
ingu frá Nu Skin segir að fyrirtækið
hafi frá stofnun árið 1984 haft það að
leiðarljósi að bjóða vörur, sem „end-
urspegla bestu eiginleika náttúrunn-
ar“. Nú Skin er rekið undir slagorð-
inu „Afi til góðs“.
I tilkynningunni kemur fram að
fyrirtækið starfrækir þrjár deildir
sem bjóða upp á yfir 100 vöruteg-
undir fyrir andlit, líkama, hár og
tennur, auk snyrtivara.
börn á aldrinum 6-14 ára. Starfsfólk
ÍTR veitir upplýsingar um nám-
skeiðin en þau eru haldin í öllum
hverfum borgarinnar sumarlangt.
„Laugaveginum verður lokað frá
Barónsstíg að Skólavörðustíg því
sumargrín ÍTR verður vítt og breitt
á Laugaveginum, en sumargrínið er
skemmtivagn fullur af leiktækjum
sem verður á ferðinni um alla borg í
sumar.
Meðal leiktækja sem verða eru;
dósakast, hringjakast, flugvélar,
jafnvægisbalar, stangartennis, stult-
ur, fjölfætlur, hoppdýna, fellispjöld,
mini-golf, trampólín, stultur o.fl. Að
auki má gera ráð fyrir að heyrist í
hljóðfæraleikurum hér og þar á
Laugaveginum.
Kaupmenn verða með ýmis kosta-
boð í gangi og margir ætla út með
vörur sínar til að skapa enn
skemmtilegra andrúmsloft.
Þótt Laugaveginum verði lokað
frá Barónsstíg að Skólavörðustíg
viija kaupmenn minna á að allar hlið-
argötur eru opnar og frítt er í öll
bílastæðahús á laugardögum, en frítt
í stöðu- og miðamæla eftir kl. 14.
I miðborginni eru um 300 verslan-
ir og ótrúlegur fjöldi veitinga- og
kaffihúsa," seigr orðrétt í fréttatil-
kynningunni.
FRIMERKI - UPPBOÐ
Thomas Höiland Auktioner a/s í Kaupmannahöfn er stærsta fyrirtækið
á Norðurlöndum með uppboð á frímerkjum og öðru skyldu efni.
Ráðgert er að fulltrúi frá fyrirtækinu verði á íslandi í lok júní til að
skoða, og eftir atvikum taka með sér, frímerkjaefni fyrir næsta uppboð,
sem verður í október nk.
Það, sem einkum er áhugavert í því sambandi, eru eidri frímerki, heil söfn, og
frímerkt umslög og póstkort frá þvf fyrir 1950.
Áhugi erlendis á íslensku frímerkjaefni er mikill um þessar mundir.
Þeir, sem vilja láta skoða efni til að koma á uppboð geta snúið sér til undirritaðs,
sem veitir allar frekari upplýsingar eftir kl. 17.00 á daginn.
Össur Kristinsson,
Miðvangi 73, Hafnarfirði, sími 555 4991.
Sumarsýn-
ing í Safni
Asgríms
Jónssonar
í SAFNI Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, var nýlega
opnuð sýning á verkum lista-
mannsins sem stendur til 29.
ágúst. I vinnustofu hans á efri
hæð eru landslagsmyndir sem
flestar eru unnar með vatnslit-
um, en meðal þeirra eru mynd-
ir sem listamaðurinn málaði á
ferðum sínum um Skaftafells-
sýslur. Á heimili hans á neðri
hæð eru myndir úr íslenskum
þjóðsögum, bæði vatnslita- og
olíumyndir auk teikninga. Með-
ARNARFELL, 1927, er meðal verka úr safni Ásgríms Jónssonar.
al þeirra eru nokkrar af þekkt- gríms. Safnið er opið alla daga,
ustu þjóðsagnamyndum Ás- nema mánudaga, kl. 13.30-16.
Morgunblaðið/Jim Smart
EVA Skotnes Vikjord og Gjer-
trud Hals vinna að uppsetningu
Cellulóse-sýningarinnar.
Verk úr
handgerðum
pappír í Lista-
safni ASÍ
SAMSÝNING fjögurra listakvenna
verður opnuð í Listasafni ASI í dag
kl. 16. Sýningin heitir Cellulose og er
farandsýning sem gerð er af
Skinn, samtökum um listmiðlun í
Norður-Noregi. Sýnendur eru Jane
Balsgaard frá Danmörku, Gabriella
Göransson sem fædd er á Italíu,
Gjertrud Hals og Hilde Hauan John-
sen frá Noregi. Þær hafa tekið þátt í
fjölda samsýninga, haldið einkasýn-
ingar og unnið að gerð listskreyt-
inga. Söfn víða um heim hafa keypt
verk þeirra.
I inngangi sýningarskrár segir
Eva Skotnes Vikjord, framkvæmda-
stjóri Skinn m.a.: „Cellulósi - listræn
tjáning á pappír - er heitið á sýning-
unni og vísar til hráefnisins sem for-
sendu fyrir hinni listrænu tjáningu
og sérkennum listaverksins. Lista-
konumar eiga það sameiginlegt, að
þær nota handgerðan pappír úr
plöntutrefjum og sjá möguleikana í
hinum einstöku eiginleikum sem efn-
ið býður upp á.
í hversdagslífinu notum við pappír
í ríkum mæli og við höfum meira eða
minna gleymt því að upprunalega
var pappír fáséð handgerð vara.
Pappír sem listrænn tjámiðill, leggur
áherslu á hið fagurfræðilega gildi
hins handgerða efnis. Pappír er sam-
settur flötur sem er gerður úr cellu-
lósa-trefjum. Trefjarnar eru til stað-
ar í öllum plöntum og hægt er að
nota allar pöntur til að framleiða
pappír.
Listamennimir sem eiga verk á
þessari sýningu nota fjölbreytilega
tækni og aðferðir. Þeir kynna jafn-
framt mismunandi notkun pappírs
sem við sjáum í ýmiss konar formum
og flötum í lágmyndum og skúlptúr-
um. Verkin bera þess vitni, að lista-
mennimir sækja innblástur úr ólík-
um áttum og hafa verkin einstaka
spennivídd.“
Sýningin stendur til 27. júní og er
opin alla daga nema mánudaga frá
kl. 14-18.
Þrjár listakonur í
Galleríi Listakoti
HERBORG Eðvaldsdóttir, Þóra
Sigurgeirsdóttir og Þórdís Aðal-
steinsdóttir opna sýningu á útskrift-
arverkum sínum í Galleríi Listakoti,
Laugavegi 70, í dag, laugardag.
Herborg og Þóra útskrifuðust
báðar úr leirlistadeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands í vor en Þórdís
úr grafíkdeild skólans.
Verk Þóra er innsetning á gólf.
Hún bergður á leik með skálaform
sem ýmist snúa upp eða em á hvolfi.
I sumum skálunum er hráefni til
matargerðar, s.s. egg og laukur, og
vatn er í fáeinum. Ljóð er á vegg og
leiðir það áhorfandann inn í verkið.
Herborg hannaði glös úr postulíni
sem sum hver era húðuð með latexi.
Hún vinnur þau í gifsmót en leikur
sér jafnframt með tilvitnun í austur-
lenskar aðferðir og hugmyndafræði
þar eð postulínið er talið eiga upp-
rana sinn þar. Stórmarkaðir og
sjálfsalar urðu svo kveikjan að upp-
setningu verksins. Þórdís sýnir
hluta af verki sem hún sýndi í út-
skriftinni í vor. Þetta eru skyggnur
af konulíkama, prentaðar á striga.
Gallerí Listakot er opið daglega
kl. 10-18 virka daga og kl. 10-16 á
laugardögum. Sýningin stendur til
19. júní.
Ljós yfír land 1 Hús-
inu á Eyrarbakka
Á SJÓMANNADAGINN, þann 6.
júní, kl. 13.30, verður sýningin
Ljós yfir land opnuð í borðstofu
Hússins á Eyrarbakka.
Á sýningunni eru ljósfæri
margskonar, m.a. eru ljósberar,
þ.m.t. ljósberi frá Bræðratungu
sem gefinn var Þjóðminjasafni Is-
lands árið 1912. í bókinni Ger-
semar og þarfaþing er greint frá
ljósbera þessum. Einnig eru sýnd
áhöld sem tengjast ljósanotkun í
kirkjum fyrrum, s.s. kertastjakar,
allt frá smáum altarisstjökum til
stórra ljósahjálma og ljósa-
skjalda. Elstu gripirnir eru frá 15.
öld en yngstu gripirnir voru í
notkun fram á þessa öld. Gripirnir
koma frá Þjóðminjasafni Islands
og Byggðasafni Árnesinga en
upphaflega voru þeir í kirkjum í
Árnessýslu.
Ljósberar, eða ljósker, eru
handluktir úr tré eða málmi sem
notuð voru til að bera ljós á milli
staða og voru þeir algengir fyrr á
öldum. Ljósberinn frá Bræðra-
tungu var kirkjulukt til að bera
ljós frá bæ út í kirkju er kveikja
þurfti. Hann er líklega frá 18. eða
19. öld. I kirkjuluktum var ætíð
haft kerti, sem fram á 19. öld var
munaðarvara og var notkun
þeirra einkum tengd kirkjunni og
kirkjulegum hátíðum. Notkun
ljósbera lagðist af þegar eldspýt-
ur urðu algengar skömmu fyrir
1900.
Sýningin Ljós yfir land, - ljós-
færi úr kirkjum í Árnesþingi, er
liður í kristnihátíð í Árnespró-
fastsdæmi og er samstarfsverk-
efni Byggðasafns Árnesinga og
Þjóðminjasafns íslands og lýkur
6. september.
Sýningin er opin frá kl. 10-18
alla daga í sumar. Sjóminjasafnið
á Eyrarbakka er opið alla daga kl.
13-18 og gildir sameiginlegur að-
gangseyrir að söfnunum.
Ljósmynci/ívar Bryiijólfsson
NOTKUN ljósbera lagðist af
skömmu fyrir 1900, en þessi er
meðal sýning£irgripa í Húsinu,
Eyrarbakka.
Ættarmunstr-
ið í Listasafni
Arnesinga
í LISTASAFNI Ámesinga á Sel-
fossi verður opnuð sýningin Ættar-
munstrið í dag, laugardag, kl. 14.
Sýningarárið 1999 er helgað Suður-
landinu og sunnlenskum listamönn-
um. Að þessu sinni sýna þær Stein-
unn Helga Sigurðardóttir og Inga
Jónsdóttir, sem báðar eiga rætur á
Suðurlandi og á Selfossi. Sýning
þeirra fjallar um formæðurnar og
það sem þegið var í arf frá þeim.
Innsetning Steinunnar Helgu
fjallar um íslenska sögu og minning-
ar. Síðastliðin sex ár hefur hún unnið
með gömul ísaumsmunstur, sem
erfðust í fjölskyldunni. Inga
Jónsdóttir mótar nöfn formæðra
sinna með rauðum lopa í þykkan
tólgarskjöld framan á stórum snigli
úr steinull, heyi og vikri. Inga notar
þessi efni vegna hlýrra tilfinninga
um afa sinn og ömmu.
Safnið er opið frá fimmtudegi til
sunnudags frá kl. 14-17 og lýkur
sýningunni 27. júní.