Morgunblaðið - 05.06.1999, Page 4
4 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RALF og Steffí ásamt Sina Wolf, dóttur Roland
Morgunblaðið/Jim Smart
og Githi Wolf, sem búa í húsbíl á tjaldstæðinu.
ANJA og Lars eru Danir en komu til landsins frá
Færeyjum þar sem þau dveljast um tíma.
og karríi. Þá fannst mér ég kynn-
ast iandinu. Við keyptum okkur
líka bita af reyktum laxi. Svo
opnuðum við umbúðirnar og þá
gaus upp svo þung brunalykt að
ég hélt að þetta hefði verið dreg-
ið upp úr einhverjum brunarúst-
um og rétt nartaði í laxinn. Dag-
inn eftir tók ég hann svo úr um-
búðunum og lét hann standa í
klukkutíma áður en ég borðaði
hann og þá var bragðið ekki jafn-
sterkt. Heima hjá okkur fáum við
líka lax en hann er miklu léttari,
íslendingar eru greinilega hrifn-
ir af þungu bragði; bragðmiklum
mat.“
Roiand segir að fjölskyldan hafí
viljað koma hingað á þessum árs-
tíma, í skólafríi barnaima, fremur
en um hásumarið á háannatíma
ferðaþjónustunnar. „Sundlaugin
hér er líka nýstárleg fyrir okkur,
sérstaklega krakkana. Heima er
venjulega svona 22 gráðu heitt
vatn í svona laug. Það munar
miklu þegar vatnið er orðið 33
gráðu heitt.“
Hann sagði að veðrið væri
nokkurn veginn eins og þau hefðu
búist við. „Hér erum við í 9 stiga
hita og það hefur rignt svolítið.
Heima í Þýskalandi er móðir nu'n
í 30 stiga hita. Hún þarf að vökva
garðinn sinn þrisvar á dag.“
Rúturnar fara alltaf
til Reykjavíkur
Anja og Lars eru frá Danmörku
en komu frá Færeyjum þar sem
þau hafa verið í nokkra mánuði.
Lars, er kennaranemi og í æfínga-
kennslu á eyjunum. Þau voru á
leið aftur tií Færeyja í gær loks-
ins þegar sumar var komið í loftið
í Reykjavík. Þau gistu fjórar næt-
ur í Reykjavík, voru nótt á Þing-
völlum, og við Gullfoss og Geysi
og svo framvegis. Þau sögðust
hæstánægð að öllu leyti með ferð-
ina en þó höfðu þau ekki komist
yfir eins stóran hluta landsins og
þau höfðu vonast til, m.a. af því
að eftir hverja ferð sneri rútan
aftur við til Reykjavíkur og
möguleikar á að ferðast milli
staða á landsbyggðinni voru ekki
nægilega miklir. „Ég vildi gjarn-
an sjá meira og við töluðum um
að koma aftur og hafa þá bíl og
ferðast á milli. Mig langar t.d. að
fara í Skaftafell. Eg hef heyrt að
það sé fallegt þar,“ sagði Anja.
Hvað halda þau að verði
sterkast í endurminningunni um
Islandsferðina. „Fyrir mig verður
það jarðfræðiminjarnar, Atlants-
hafshryggurinn á Þingvöllum,
Geysissvæðið og fleira „ sagði
Lars, „ég á líka eftir að tala um
það sem kennari."
Fyrstu sumar-
gestirnir mættir í
Laugardal
UM ÞAÐ bil 10 tjöld eru komin á
tjaldstæðið í Laugardal og þar er
alþjóðlegt samfélag fyrstu ferða-
manna sumarsins hér á landi.
Ralf er þýskur og er í sinni átt-
undu Islandsferð, kom fyrst sum-
arið 1993. Nú eru um þrjár vikur
síðan hann kom til landsins með
bíl sinn og mótorhjól í fyrstu fetju
sumarsins en kona hans, Steffí,
kom til landsins með flugi á
fimmtudag.
- Af hveiju kemur þú alltaf aft-
ur og aftur, Ralf? „Jú, það er t.d.
landið, náttúran og fólkið; það er
vingjarnlegt og alltaf tilbúið að
hjálpa manni ef eitthvað kemur
upp á.“ Hann tekur undir að hér
sé rýmra um mann en í miðju
Þýskalandi og svo er loftið heil-
næmt og frísklegt.
Vinmargur
Ralf hefur áður komið með
ferðamannahópa en er nú einn
með konu sinni. Hann ferðast um
á eigin pallbíl og á pallinum eru
tvö mótorhjól sem hann notar í
dagsferðir út og suður. A leiðinni
til Reykjavíkur ók hann suður
með landinu og skilaði m.a. af sér
vini, sem ætlar að vinna á bónda-
bæ í sumar. Það kemur á daginn
að Ralf er vinmargur maður hér á
landi, og á leiðinni norður í feij-
una ætlar hann að nota tækifærið
og koma við hjá íslenskum og
þýskum vinum. Hann er búinn að
vera á Ijaldstæðinu í Laugardal í
um viku og hefur ferðast víðs
vegar um landið á mótorhjóli eftir
sima
numer
ÚRVAL UTSYN
5854000
FERÐASKRIFSTOFA ÍSIANDS
RÁÐSTEFNUR
585 4400
að hann kom suður, t.d. til Mý-
vatns, um Reykjanes, Geysi og
Gullfoss, Elliðaárdalinn og Heið-
mörk.
„Eina vandamálið við Island er
lögreglan og mótorhjól. Þeir hafa
mikinn áhuga á mótorhjólum og
mega ekki sjá mótorhjól án þess
að horfa stíft á mann, snúa sér við
og spá í hvort maður sé að aka of
hratt.“
- Áttu þér uppáhaldsstað á Is-
landi?
„Það eru margir staðir. Fyrst
dettur mér í hug staður skammt
frá Seljalandsfossi þar sem er
tjaldstæði og sundlaug. Það er
fallegur staður," segir Ralf.
Roland Wolf er hér með eigin-
konu sinni og tveimur börnum.
Þetta er fyrsta Islandsferð hans
og hann kom til landsins á
fimmtudaginn í síðustu viku en
fer heim á mánudag. „Það hefur
verið draumur minn að koma til
íslands síðan 1977. Þá kom vinur
minn hingað með skátunum. Hann
sagði mér að Island væri land þar
sem maður gæti gengið í hvítri
skyrtu í viku án þess að það sæist
á henni svartur blettur, af því að
loftið væri svo tært. Það Iand
langaði mig strax að sjá,“ sagði
hann.
Reykjavík hefur verið nokkurs
konar miðstöð á ferð fjölskyld-
unnar um landið, en hún hefúr
húsbíl á leigu og hefúr farið á
helstu ferðamannastaði, svo sem
Geysi, Gullfoss og Þórsmörk en
Iíka verið á ferð utan alfaraleiðar
í félagsskap hins hagvana íslands-
fara og nágranna þeirra á tjald-
stæðinu, Ralf. „Hvar sem maður
er staddur, held ég að það séu
alltaf einhverjir staðir sem er
nauðsynlegt að sjá til þess raun-
verulega að skilja og sjá landið. í
París er t.d. Eiffel-turninn slíkur
staður," segir hann.
Reyktur lax og fískibollur í dós
En það er ekki bara landslagið
og náttúran sem kallar á athygli
Wolf-Qölskyldunnar. „Við höfum
kynnst ungri stúlku, sem hefur
búið hér um tíma og er að giftast
Islendingi. Hún hefur sagt okkur
ýmislegt fróðlegt um lífíð hér,
fólkið og venjur og viðhorf fslend-
inga. Ég vil ekki bara sjá sögu-
staðina og minnismerkin heldur
fá á tilfínninguna hvernig er að
lifa hér og búa; hvernig kaupa ís-
lendingar inn, hvað borðar venju-
legur maður.
í gær keyptum við okkur t.d.
rauða niðursuðudós með fiski-
bollum. Það voru bara íslenskar
leiðbeiningar og á tjaldstæðinu í
Þórsmörk fór ég að spyrja fólk
hvernig ætti að útbúa þetta.
Fyrst var hópur íslendinga að
grínast með okkur og sagði að
þetta borðaði ekki nokkur maður
en svo sögðu þau mér að þetta
væri mikið borðað af almenningi
hér á landi og að það væri gott
að elda þetta með hrísgrjónum
#
\ •
F ERÐASKR1FSTOFA ISIANDS
VIÐSKIPTAFEREMR
585 4400
FERÐASKRIFSTQFA ÍSIANDS
INNANLANDSDEILD
585 4300
Framkvæmdastjóri FÍB um breytingar á tryggingariðgjöldum
Getum alltaf far-
ið í útboð á ný
RUNÓLFUR Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir að félagið
eigi þess alltaf kost að leita hag-
stæðustu tilboða í ökutækjatrygg-
ingar fyrir félagsmenn sína með
nýjum útboðum á markaðinum.
FIB trygging hóf starfsemi sína
1996 í samstarfí við IBEX-Lloyd’s í
London að undangengnu útboði.
Ekki hafa enn borist upplýsingar
frá Lloyd’s um hækkun iðgjalda
FÍB-trygginga í kjölfar gildistöku
nýju skaðabótalaganna.
Aðspurður útilokar Runólfur ekki
að leitað verði hagstæðustu kosta
fyrir félagsmenn FÍB á trygginga-
markaðinum ef Lloyd’s hækkar ið-
gjöldin jafnmikið og stóru trygg-
ingafélögin hér á landi hafa gert, en
þau hafa tilkynnt 32-40% hækkanir
iðgjalda af ökutækjatryggingum.
í sterkari stöðu nú en 1996
„Við teljum okkur vera með
ákveðna aðferð til að hafa áhrif á
markaðinn í gegnum samkeppni,"
sagði Runólfur. Hann sagði að fé-
lagið væri í mun sterkari stöðu í dag
en 1996 þegar útboð bílatrygginga
fór fyrst fram, þar sem það væri nú
með um 6.000 vátryggingartaka á
sínum vegum og sá stofn færi
stækkandi. „Þannig að ef til þess
kæmi á hverjum tíma, höfum við
þessa aðlögunarhæfni að geta farið
út í útboð á ný,“ sagði hann.
„Við erum að vinna að hagsmun-
um okkar félaga og bifreiðaeigenda
í heild sinni vegna þess að lækkunin
1996 hefur haft áhrif á allan mark-
aðinn. Við notum ekki önnur ráð en
þau sem standa til boða í þessu
markaðsumhverfí. Við trúum því að
traustasta vopn neytenda í þessu
stríði sé eðlileg samkeppni þar sem
leikreglum samkeppninnar er fylgt
og menn eru ekki með nein bola-
brögð,“ bætti Runólfur við.