Morgunblaðið - 05.06.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 05.06.1999, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GRENJAÐU bara ómyndin þín, þú færð ekkert að leika þér með dótið þitt. Tuttugu punda hængur úr Þverá í Borgarfirði var opnuð í gærmorgun og fór veiðiskapur vel af stað. Sjö laxar voru dregnir á land á fyrstu vaktinni, en sex þeirra veiddust á sama veiðistaðn- um, Kirkjustreng hjá Norðtungu. Jón Ólafsson, einn af leigutökum árinnar veiddi þar 20 punda hæng á maðk og er það stærsti lax sum- arsins til þessa. Boltalaxar af því tagi eru nú að veiðast í hverri ánni sem opnar af annarri, en áður voru komnir 18 og 16 punda laxar úr Laxá á Asum og Norðurá. „Ég var svona hálftíma með hann og vissi strax að hann var stór, enda lagðist hann og ég gat varla haggað honum. Svo fór hann að gefa sig, en ég fór varlega. Maður veit aldrei hvemig stendur í þeim, en svo kom á daginn að hann var þræltekinn. Þetta var 20 punda hængur, lúsugur, og hinn fallegasti lax. Þó ekki minn stærsti, því árið 1974 veiddi ég 28 punda fisk í Ölfusá," sagði Jón Ólafsson, sem ásamt Sigurborgu konu sinni veiddi 4 laxa í Kirkju- streng. Hinir voru, 5, 12 og 12 pund. Jón Ingvarsson veiddi 15 punda hæng á sama stað, fyrr um morg- uninn og vár það fyrsti laxinn úr ánni í sumar. Laxinn tók rauða Frances númer 8 og dró Jón eina 400 metra niður með á áður en hann gaf sig. „Hann var erfiður. Maður finnur það alltaf strax þeg- ar stórir og erfiðir fískar eru ann- ars vegar. Ég var klár á því hvað í vændum var þegar ég setti í þenn- an,“ sagði Jón að viðureign lokinni. Jón fékk síðan annan lax, 12 punda og missti þrjá, en hann notaði ein- göngu flugu. Sjöunda lax morguns- ins, 13 punda, veiddi Ingvar Vil- JÓN Ingvarsson og Anna Sigtryggsdóttir með fyrsta Þverárlaxinn 1999, 15 punda hæng úr Kirkjustreng. LAXINN kominn í háfinn og þá er að koma sér á þurrt. hjálmsson í Klettsfljóti. Auk þess var sett í fisk í Galta, en sá hafði betur og slapp. Vatn var gott í Þverá í gær, en kalt og lofthiti var heldur ekki mik- ill í dagsbyrjun í köldum norðan- streng. Veislan heldur áfram í dag, en Blanda var opnuð í morgun. Á mánudag er það svo Kjarrá. Sjómanna- og hafnardagur sameinaðir Hátíð hafsins haldin 1 fyrsta sinn UM ÞESSA helgi er í fyrsta sinn hald- in hátíð hafsins. Hátíðin er samstarfsverk- efni Sjómannadagsráðs, Reykjavíkurborgar, Reykjavíkurhafnar og Út- vegsmannafélags Reykja- víkur. Á hátíð hafsins er hafnardeginum og sjó- mannadeginum fagnað sömu helgina. Dagurinn í dag er tileinkaður hafnai’- deginum en á morgun verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í 61. sinn. Guðmundur Hall- varðsson, formaður Sjó- mannadagsráðs Reykja- víkur og Hafnarfjarðar, var spurður um ástæðuna fyrir því að hafnardagur- inn og sjómannadagurinn eru sameinaðir með þess- um hætti. „í fyrsta lagi hefur sjómanna- dagurinn verið með hefðbundnum hætti síðan 1938 og við höfum séð á þessu 60 ára tímabili, bæði þeg- ar sagan er lesin og síðustu tvo áratugi, að áhugi fólks á sjó- mannadeginum hefur gengið í bylgjum og við töldum að það væri rétt nú við þessi tímamót og aldahvörf að gera breytingu á. Eitt af meginmarkmiðum sjó- mannafélaganna í Reykjavík og Hafnarfirði var að minna á mikil- vægi sjómannastéttarinnar, auk þess að byggja heimili fyrir aldr- aða sjómenn og sjómannsekkjur. Við töldum að ef við færum ekki nýjar leiðir, væri vandséð hvemig við ættum að halda þessum mark- miðum á lofti á komandi árum.“ - Hver er hugsunin á bak við samstarfið við höfnina? „Borgaryfirvöld hafa sagt í gegnum tíðina:“Hvað væri höfuð- borgin án hafnar?“ Höfnin er svo nátengd því hvemig Reykjavík breyttist úr bæ í borg, það er jú vegna sjósóknar og flutninga. Við höfum haldið upp á sérstakan sjó- mannadag til að minna á mikil- vægi sjómannastéttarinnar og hafnaryfirvöld hafa haldið sér- staka hafnardaga til að minna á mikilvægi hafnarinnar. Auðvitað eru mjög náin tengsl á milli þess- ara tveggja daga. Við töldum að með þessu samstarfi myndum við tengja saman þessa mikilvægu þætti í lífi íslendinga, sem em undirstaða efnahagslegs sjálf- stæðis, þ.e. sjávarútveg og sigl- ingar annars vegar og hafnimar hins vegar, en til þess að siglingar geti gengið þurfum við góðar hafnir.“ - Heldur þú að samstarfíð við Reykjavíkurborg muni hjálpa til við að gera hátíð hafsins að fóst- um lið í tilverunni, sem muni lifa inn í nýja öld? „Já, eitt af því sem tengist borginni er að við höf- um orðið varir við að erlendir ferðamenn hafa mjög oft komið niður að bryggju og fylgst með hátíðahöld- um dagsins. Þeir hafa líka komið um borð í þau skip sem við höfum haft til umráða á sjómannadaginn og hafa siglt hér um sundin blá. Eg veit að hótelin hafa verið að kynna sjómannadaginn fyrir er- lendum gestum sínum. Og síðast en ekki síst viljum við að þessi dagur verði rækilega skráður á spjöld ferðaþjónustunnar. Sjó- mannafélög Reykjavíkur og Hafnarfjarðar eiga aðild að Al- þjóðaflutningaverkamannasam- Guðmundur Hallvarðsson ► Guðmundur Hallvarðsson er fæddur í Reykjavík 1942. Hann starfaði á fiski- og kaupskipum frá 1957 þegar hann byijaði sem messagutti á Brúarfossi. Hann lauk stýrimannsprófi frá farmannadeild Stýrimannaskól- ans í Reykjavík 1966 og starfaði sem stýrimaður á vitaskipinu Árvakri frá 1965-1970. Frá 1972 var hann starfsmaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur og gjaidkeri stjórnar. Hann var formaður félagsins frá 1978- 1994. 1980-1987 vann Guð- mundur á kaup- og fiskiskipum sem háseti og stýrimaður. Hann varð varaformaður í Sjómanna- dagsráði 1985 og formaður 1993. Guðmundur hefúr verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá 1991. Hann er kvæntur Hólmfríði Maríu Óladóttur hár- greiðslumeistara og eiga þau þijú böm. Sjávarútvegur- inn og hafnirn- ar nátengd bandinu og fulltrúar þess, sem voru gestir okkar á sextíu ára af- mæli sjómannadagsins í fyrra, höfðu einmitt orð á því að einstakt væri að hér væri haldinn hátíðleg- ur sjómannadagur sem hefði ver- ið við lýði síðan 1938. Það er að- eins á tveim stöðum á jörðinni sem haldinn er opinber hátíðis- dagur sjómanna, þ.e. á íslandi og Filippseyjum.“ - Um 3600 sjómenn hafa fanst á þessari öld. Megum við ekki vænta þess að sjómennskan verði sjómönnum og þjóðinni léttbær- ari á nýrri öld, með tilliti til auk- ins öryggis? „Við eygjum þá von að slysum muni fækka. Það sést þegar á því að dauðaslysum á sjó hefur fækk- að verulega. Þegar skoðaðar eru myndir frá 1938 og fram eftir ár- um, þá var mjög algengt að það væru 20-30 og jafnvel á fjórða tug stjama í minningar- fánanum sem við ber- um inn í kirkju á sjó- mannadagsmorgni í minningarguðsþj ón- ustu sem haldin hefur verið í Dómkirkjunni en verður nú haldin í Fríkirkjunni. En það væri mikil gæfa þjóðarinnar ef slysum fækkaði verulega og dauðaslys hyrfu alfarið; því það er engin smá fóm sem Islendingar hafa þurft að færa í ljósi þess að 3600 manns hafa farist á þessari öld við að sækja þjóðinni björg í bú. Frá sjómannadeginum 1938 til þessa dags hafa farist 1346 sjó- menn, þar af 380 í seinni heims- styrjöldinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.