Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Nýir gaffallyftarar
Mitshubishi 1,5 t. bensín-dísel dkr. 94.000,-
Mitshubishi 2,5 t. bensín-dísel dkr. 115.000,-
Sími: (Danmörk) 0045 66 184120.
Fax: 0045 66180640.
garðhönnuður
veitir góð ráð í verslun
Skút uvogi, laugardaginn
5. Júní frá kl. 10-14.
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000
Stanislas Bohic
ÚR VERiNU
Framkvæmdastjóri Rauðsíðu segir atvinnuleysi blasa við
„Skuldir á við andvirði
kvótalítils smábáts“
STARFSFÓLK þriggja fískvinnslu-
fyrirtækja Rauðsíðu ehf. á Vest-
fjörðum fékk ekki greidd vikulaun
sín í gær og á því inni tveggja vikna
laun hjá fyrirtækinu. Lokið var við
að vinna það hráefni sem til var í
fyrirtækjunum um hádegi í gær og
hefur starfsfólki verið tilkynnt að
ekki verði unnið eftir helgi vegna
hráefnisskorts. Pví hefur ekki verið
sagt upp störfum en framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins segir atvinnu-
leysi hinsvegar blasa við fjölda fólks
á Vestfjörðum, bregðist Byggða-
stofnun ekki skjótt við varðandi af-
greiðslu gefins lánsloforðs.
Rauðsíða ehf. hefur einkum komið
að vinnslu á svokölluðum Rússafíski
og er stærsta einstaka atvinnufyrir-
tækið á Vestfjörðum en þar vinna
rúmlega 200 manns. Þar af vinna um
100 manns hjá Rauðsíðu ehf. á Þing-
eyri, um 50 manns vinna hjá Bolfiski
í Bolungarvík og um 60 manns hjá
Rauðfeldi ehf. á Bíldudal. Þá er
Rauðhamar ehf. á Tálknafirði eitt af
dótturfélögum Rauðsíðu ehf. en þar
hefur ekki farið fram vinnsla um
nokkurt skeið.
Skiptar skoðanir um
veitingu lánsins
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu segir Ketill Helgason,
framkvæmdastjóri Rauðsíðu,
áframhaldandi rekstur fyrirtækis-
ins velta á um 100 milljóna króna
láni sem vilyrði hafi fengist fyrir hjá
Byggðastofnun. Stjórn Byggða-
stofnunar hefur þegar samþykkt að
veita Rauðsíðu ehf. lán með tiltekn-
um skilyrðum sem Ketill segir fyrir-
tækið þegar hafa uppfyllt. Það sé
því nú aðeins í höndum forstjóra
stofnunarinnar að veita lánið. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
eru mjög skiptar skoðanir um hvort
stofnunin skuli veita lánið. Eftir því
sem næst verður komist felast skil-
yrði Byggðastofnunar einkum í að
samið verði við lánardrottna um
skuldbreytingar, að eigið fé fyrir-
tækisins verði aukið og sýnt verði
fram á að fyrirtækið verði þá komið
í rekstrarhæft ástand.
Ketill segir mikilvægt að ákvörð-
un liggi fyrii’ sem fyrst. „Hér blasir
við atvinnuleysi hjá á þriðja hundrað
manns í þremur sjávarplássum ef að
Byggðastofnun bregst ekki skjótt
við varðandi afgreiðslu gefins
lánsloforðs. Við höfum enn ekki
ákveðið hvort starfsfólkinu verði
sagt upp en við bíðum eftir við-
brögðum frá forstjóra Byggðastofn-
unar. Hvað tefur skal ég ekki segja
til um því heildarskuldir fyrirtækj-
anna fjögurra, að Rauðhamri ehf. á
Tálknafirði meðtöldum, eru varla á
við andvirði kvótalítils smábáts,"
segir Ketill.
Ekki úrkula vonar
Einar K. Guðfinnsson, alþingis-
maður og stjórnaiTnaður Byggða-
stofnunar, segir málið mjög alvar-
legt, enda sé hér um að tefla stærsta
einstaka atvinnufyrirtæki Vest-
fjarða með ríflega 200 starfsmenn.
Málið snerti atvinnulíf þriggja
byggðarlaga og staðan hafi því mikil
áhrif á afkomu starfsfólks, þjónustu-
aðila og fleiri sem eigi mikið undir
farsælum lyktum málsins. „Eg hef
beitt mér fyrir því við stjórn
Byggðastofnunar að þetta fyrirtæki
fengi fjárhagslega fyrirgreiðslu til
að lækka hjá sér greiðslubyrði og
koma rekstrinum í viðunnandi horf.
Eg er ekki úrkula vonar um að það
takist. Að öðrum kosti verða menn
að leita annarra úrræða. Það gæti
hinsvegar orðið mjög erfitt að finna
aðrar leiðir og þess vegna tel ég að
skynsamlegast væri að byggja upp
þá starfsemi sem fyrir er hjá þessu
fyrirtæki og hjálpa því út úr vand-
ræðunum," segir Einar.
Betri afkoma fyrstu
þrjá mánuðina
Sighvatur Björgvinsson, alþingis-
maður, segir tiltölulega stutt síðan
mikið atvinnuleysi ríkti á Þingeyri,
enda hafi allur kvóti farið úr pláss-
inu. Rauðsíðu hafi tekist að útvega
fólkinu atvinnu sem sé af hinu góða.
Sér sé hinsvegar ekki kunnugt um
stöðu fyrirtækisins. „Byggðastofnun
hefur lofað fjárhagslegri fyrir-
greiðslu gegn ákveðnum skilyrðum.
Að uppfylltum þessum skilyrðum sé
ég enga ástæðu til annars en að
veita fyrirtækinu lán. Mér skilst
ennfremur að í bráðabirgðauppgjöri
fyrstu þriggja mánaða ársins komi í
ljós betri afkoma en á síðasta ári
þegar fyririækið var rekið með
tapi,“ segir Sighvatur.
og Ferðafélags Islands
verður á morgun
Við bjóðum alla velkomna til þátttöku í Esjudegi 1999
sem hefst kl. 11:00 á bílastæðinu utan við Mógilsá
með lúðrablæstri og stuttri athöfn.
Þaðan verður lagt af stað og gengnar þrjár leiðir sem
liggja mishátt upp í Esjuna. Fararstjórarfrá FÍ verða með
öllum hópunum.
Ein leiðin er um skógræktina á Mógilsá undir leiðsögn
starfsfólks rannsóknarstöðvarinnar þar. Sú næsta er
hringleið sem liggur upp í mitt fjall. Þaðan er mjög
gott útsýni. Þriðja leiðin liggur alveg upp á
Þverfellshorn.
Félagar í Flugbjörgunarsveitinni verða til aðstoðar eftir
þörfum en annars ætti enginn að þurfa að láta þreytuna
yfirbuga sig því í upphafi göngu verður útdeilt Leppin
orkugeli sem sér mönnum fyrir orku alla leiðina.
Aú íjumju JuJíjmij
Jjui)i0 Ujjjj
á Mm - -
■ , '-■ •: ■-
riJiJiijyyyjg o<j
•■.'•::■■.■■■' '
LyjjjjJij dj'u'ii-wmim
spron
W SPARISIÓDUR KiYKJAVlKUK l
SPARISJÓDUR
.... 0B NÁGKSHNIS
www.spron.is