Morgunblaðið - 05.06.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 25
Sjómanna-
dagsblað
Snæfellsbæjar
komið út
ÚT er komið Sjómannadagsblað
Snæfellsbæjar 1999, en í þessu
blaði, sem er tæpar sjötíu blaðsíður
að stærð, er að finna fjölbreytt efni
í myndum og ritmáli sem tengist lífi
og starfi sjómannanna við Breiða-
fjörðinn.
Blaðið er gefið út af sjómanna-
dagsráðunum á Hellissandi og í
Ólafsvík og er það m.a. prýtt mynd-
um frá hátíðahöldum sjómanna-
dagsins á öllum þéttbýlisstöðunum
á Snæfellsnesi. Viðtöl eru í blaðinu
við starfandi sjómenn, sagt frá
stóru fiskverkunarfyrirtæki, þjón-
ustufyrirtækjum í sjávarútvegi og
fyrirtækjum sem þjónusta sjó-
menn.
Þá er einnig sögulegt efni þar
sem fjallað er um björgunarafrek,
sfldarárin og horfna atvinnuhætti,
en allt er blaðið skreytt fjölda ljós-
mynda, gamalla og nýrra. Þá er þar
frásaga sem rifjar upp gamla sigra
sjómanna úr Ólafsvík á knatt-
spyrnuvellinum.
Hugvekja og ýmis fróðleikur
Af andlegu efni má nefna hug-
vekju eftir sr Árna Berg Sigur-
björnsson, sem um nokkurra ára
skeið gengdi prestsþjónustu í
Ólafsvfloirprestakalli og stólræðu
sem sjómannskona flutti á sjó-
mannadaginn 1998 í Ólafsvíkur-
kirkju, og er þá ótalinn ýmiskonar
fróðleikur.
Þetta er í fimmta sinn sem sjó-
mannadagsblað Snæfellsbæjar
kemur út. Blaðið er prentað í Stein-
prent, Ólafsvík, en ritstjóri er Pét-
ur S. Jóhannesson.
Blaðið verður meðal annars selt í
Grandakaffi í Reykjavík.
Er óhætt fyrir
þungaðar konur
að taka lyfið inn?
hefur svariö
og einnig í Árnesapóteki, Húsavíkurapóteki
og Egilsstaöaapóteki.
Sj ómannadagsblað
Austurlands komið út
SJÓMANNADAGSBLAÐ Austur-
lands er nú komið út. Blaðið er mjög
fjölbreytt að efni, er um 100 síður og
inniheldur á þriðja hundrað ljós-
myndir og um 30 efnisgreinar.
Efnistökin eru fjölbreytt og
spanna allt frá hversdagsvísum til
sjóslysa, með mataruppskriftum,
gömlum sögum, vísindaumfjöllun og
viðtölum þar á milli. „Blaðið höfðar
þvi ekki aðeins till allra Austfirðinga
að þessu sinni heldur til landsmanna
allra. Meðal greinahöfunda í blaðinu
eru: Arni M. Mathiesen, sjávarút-
vegsráðherra, Bjarni Haíþór Helga-
son framkvæmdarstjóri, Anna
Ólafsdóttir, næringafræðingur,
Ragnar Ingi Aðalsteinsson og fleiri
og fleiri.
Utan Austurlandsfjórðungs er
hægt að nálgast Sjómannadagsblað
Austurlands í Bókaverslun Lárusar
Blöndal á Skólavörðustíg, bókaversl-
uninni Grímu Garðatorgi 3 í Garða-
bæ, bókabúð Jónasar á Akureyri,
bókaverslun Þórarins Stefánssonar
Húsavík, bókaverslun, Jónasar Tóm-
assonar Isafirði, auk ýmissa annarra
blaðsölustaða á höfuðborgarsvæðinu
og í Vestmannaeyjum.
Ritstjóri Sjómannadagsblaðs
Austurlands er Kristján J. Krist-
jánsson frá Sjónarhóli á Norðfirði,"
segir í frétt um útkomu blaðsins.
Kaupa Rússakvóta
NORÐMENN hafa nú keypt um
19.000 tonna kvóta af Rússum.
Um er að ræða 16.500 tonn af
þorski og um 2.600 tonn af ýsu.
Verð á hverju kflói er á bilinu 60
til 70 krónur. Norskum kaupend-
um að kvótanum er síðan heimilt
að endurselja hann öðrum norsk-
um útgerðum. AIls hafa Norð-
menn keypt heimildir af Rússum
til að veiða 130.000 tonn af þorski
og ýsu á þessum áratug.
Ný skipan er nú komin á þessi
viðskipti. Rússneska umboðsfyrir-
tækið Interbarents í Murmansk
sér nú um sölu veiðiheimildanna
fyrir hönd hins opinbera, en
norska fisksölufyrirtækið Höyskel
& Wennevold er mflliliðurinn í
Noregi. Aður voru þessi viðskipti í
höndum Sevryba og Ole Kristian
Ödegaard, umboðsmanns í Trom-
sö. Alls er það 41 togari og línu-
bátur, sem nýtur þessara veiði-
heimilda. Að loknum samning-
um um veiðar okkar Islendinga í
Smugunni og gerð tvíhliða samn-
ings við Rússa um samstarf á sviði
sjávarútvegs, opnast sömu mögu-
leikar fyrir okkur Islendinga til
kvótakaupa af Rússum. Engin slík
viðskipti hafa enn átt sér stað svo
vitað sé.
Heimild: Dagens Næringsliv
fimmtudag til sunnudags
Vlámaml -þor mn> summiS
10 ótjúpur
hreinir litir
399
20 ótjúpur
blandaðir litir
30 ótjúpur
blandaðir litir
999
www.lyfja.is