Morgunblaðið - 05.06.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 31
LISTIR
Úr Ferðabók
^ Eggerts
Olafssonar í
Þjóðarbdk-
hlöðunni
UNDIR bláum sólarsali - Eg-
gert Ólafsson skáld og náttúru-
fræðingur 1726-1768, heitir
sameiginleg sumarsýning
Landsbókasafns íslands, Há-
skólabókasafns og Þjóðminja-
safns Islands, sem opnuð verð-
ur í Þjóðarbókhlöðu í dag,
laugardag.
Sýndar verða frumgerðir og
eftirtökur_ mynda úr Ferðabók
Eggerts Ólafssonar og Bjarna
Pálssonar. Ferðabókin var eitt
merkasta vísindarit sem samið
hafði verið og birt á erlendri
tungu um ísland og íslendinga.
Hún var gefín út í Kaupmanna-
höfn 1772, en síðar var hún
þýdd á þýsku og gefin út 1774-
75, á frönsku 1802, og á ensku
1805. Fyrsta íslenska útgáfan
er frá árinu 1943 og var endur-
útgefin 1974. Allar þessar út-
gáfur eru til í Landsbókasafni
og eru til sýnis á sumarsýning-
unni. Einnig eru sýndar dag-
bækur Eggerts frá íslands-
ferðinni og handrit að ljóðum
hans sem varðveitt eru í hand-
ritadeild Landsbókasafns og
bækur úr þjóðdeild safnsins.
Opnunartími safnsins er kl.
9-17 mánudaga til föstudaga,
laugardaga frá 11-14. Sýningin
stendur til 31. ágúst.
Aukasýningar
á Krákuhöll-
inni
FIMM aukasýningar verða á
leikritinu Krákuhöllin eftir
Einar Öm Gunnarsson í upp-
færslu Nemendaleikhússins.
Sýning verður þriðjudaginn 8.
júní, miðvikudag 9. júní, mánu-
daginn 14. júní, þriðjudaginn
15. júní og miðvikudaginn 16.
júní, allar kl. 20 í húsnæði
Leiklistarskóla íslands í Lind-
arbæ.
Utskriftamemar em Egill
Heiðar Anton Pálsson, Hinrik
Hoe Haraldsson, Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir, Laufey Brá
Jónsdóttir, María Pálsdóttir,
Nanna Kristín Magnúsdóttir,
Rúnar Freyr Gíslason og Stef-
án Karl Stefánsson. Leikstjóri
er Hilmir Snær Guðnason.
Operusmiðja Austurlands setur upp Töfraflautuna á Eiðum
SJÁLFBOÐALIÐAR vinna við leikmynd og yngsta
kynslóðin lætur ekki sitt eftir liggja.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
KEITH Reed, listrænn stjómandi uppfærslu
Ópemstúdíós Austurlands á Töfraflautunni.
Fólkið gerir draum-
inn að veruleika
ÆFINGAR og annar
undirbúningur að uppfærsiu
Ópemstúdíós Austurlands á
Töfraflautunni eftir W.A. Mozart er
að komast á lokastig.
Frumsýningin verður á Eiðum 13.
júm' og óperan verður flutt alls
Qórum sinnum. Sýningin er liður í
tónlistarhátíðinni Bjartar nætur í
júm' en á henni verða flutt verk
eftir Mozart en hátíðinni lýkur með
flutningi Requiem í
Egilsstaðakirkju 20. júm'.
„Það er ótrúlegt að fólkið skuli
gefa sér allan þennan tíma til að
gera þennan draum minn að
vemleika," sagði Keith Reed,
listrænn stjómandi
Töfraflautunnar, þegar blaðamenn
litu við á æfíngu á Törfaflautunni í
húsnæði Alþýðuskólans á Eiðum.
Keith er ópemsöngvari og
deildarstjóri við Tónlistarskóla
Austur-Héraðs á Egilsstöðum.
Hann á hugmyndina að stofnun
Ópemstúdíósins og flutningi
Töfraflautunnar og hefur unnið
baki brotnu að því að hrinda henni
í framkvæmd en sýningin á Eiðum
verður fyrsta uppsetning ópem á
landsbyggðinni.
100 manna hópur
Þegar blaðamenn litu við á
Eiðum kvöld eitt í vikunni var verið
að smíða sviðsmynd og mála
myndir á veggi salarins. Keith
Reed var með nokkra söngvara á
æfingu, fór bæði yfir sönginn og
sviðsframkomuna. Hann sagði að
35 söngvarar lærðu þau sextán
hlutverk sem em í Töfraflautunni,
tveir lærðu hvert hlutverk. 35
manna hljómsveit leikur tónlistina
og 30 manns til viðbótar vinna að
sýningunni, þannig að alls vinna við
hana um 100 manns. Fólkið vinnur
í sjálfboðavinnu. Söngvaramir em
flestir búsettir á Austurlandi,
gjarnan fólk sem hefúr verið í
söngnámi en hefur vantað verkefni
til að fást við. Fá þurfti fólk lengra
að í einstaka hlutverk.
Hljómlistarmennimir koma af öllu
landinu. Undirbúningur hefúr
staðið frá því í haust og æfingar
hófust um áramót.
Keith sagði að stjórnendur
Óperustúdíósins hefðu verið að
skoða húsnæði á ýmsum stöðum,
meðal annars á Egilsstöðum,
þegar hugmyndin um Eiðar kom
fram. Öllum hafi fundist það
skemmtilegasti staðurinn. „Fólkið
kemur frá ýmsum stöðum og það
vilja allir hafa sýningarnar hjá
sér. Mér fannst fólk strax
tengjast vel hérna og þetta hefur
gengið vel. Við getum unnið
saman þótt við komum frá
mismunandi stöðum, það er
tónlistinni að þakka,“ sagði Keith
Reed. Um 170 gestir komast í
salinn og vonast Keith til að
Nýjar bækur
• YDD er Ijóðabók eftir Þórarin
Eldjárn. Þetta er 2. útgáfa bókar,
sem kom fyrst út 1984. Ydd kemur
út í ritröðinni Ljóðasafn Helgafells.
Ydd var fyrsta Ijóðabók Þórarins
með órímuðum ljóðum og vakti
mikla athygli á sínum tíma. Hér
sýndi Þórarinn á sér nýja hlið sem
ljóðskáld en framan af ferli sínum
orti hann rímað, undir hefðbundnum
Óperustúdíóið geti fengið þar
framtfðaraðstöðu.
Mozart-vika á Austurlandi
Þótt mikið sé unnið í
sjálfboðavinnu kostar óperusýnhig
mikla peninga. Kristján B.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Óperustúdíós Austurlands, kvaðst
vonast til að endar næðu saman.
Tekist hafi að fá stuðning opinberra
aðila og einkaaðila. Keith nefndi
einnig ómetanlegan stuðning frá
Islensku óperunni, sem lánar
búninga, og tónlistarskólunum.
Miðasala er hafin á Töfraflautuna
og aðra viðburði Mozart-vikunnar.
Miðarnir eru seldir í útibúum
Landsbanka íslands. Auk fjögurra
sýninga á Töfraflautunni og
flutnings Requiem í
Egilsstaðakirkju verða tveir
Mozart-tónleikar. Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Gerrit Schuil píanóleikari verða
með tónleika í Egilsstaðakirkju 14.
júm' og Gerrit Schuil og Stefán
Höskuldsson flautuleikari verða
með tónleika í Egilsbúð í
Neskaupstað 17. júm'.
háttum. Yrkisefnin
eru af fjölbreyttu
tagi, skáldið skoð-
ar umhverfi sitt,
mannlífið og sög-
una. Stíllinn er
yddaður, ljóðin
stutt en skörp.
Útgefandi er
Vaka-Helgafell.
Bókin er 56 bls., prentuð í Odda.
Kápu hannaði Wilfried Bullerjahn.
Verð 1.980 kr.
Konur með eld í hjarta
__________TONLIST______________
Digraneskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Kvennakór Reykjavíkur söng íslensk og erlend lög;
einsöngvari var Sigrún Hjálmtýsdóttir; pfanóleik-
ari Þórhildur Björnsdóttir og stjórnandi Sigrún
Þorgeirsdóttir. Fimmtudagskvöld kl. 20.30.
í NÆSTU viku heldur Kvennakór Reykjavíkur í
tónleikaferð til Bandaríkjanna. Þar mun kórinn
syngja í nokkrum borgum á austurströndinni, meðal
annars í Boston, Baltimore, New York og Was-
hington. Á tónleikum í Digraneskirkju á fimmtu-
dagskvöld gat að heyra þá tónlist sem kórinn syng-
ur í Ameríkureisunni, íslensk þjóðlög og nýrri kór-
lög, útlend þjóðlög og fleira. Einsöngvari kórsins
var Sigrún Hjálmtýsdóttir, Þórhildur Björnsdóttir
lék á píanó og stjómandi var Sigrún Þorgeirsdóttir,
sem nú hefur verið aðalstjómandi kórsins tvö síð-
ustu ár.
Það er Ijóst að Kvennakór Reykjavíkur er í upp-
sveiflu, og auðheyrt að ýmislegt hefur áunnist í því
að efta og bæta hljóm kórsins. Kórinn er mjög stór,
- eða um 70 konur, og það hefur bæði kosti og galla.
Það er engin smá vinna að halda saman svona stór-
um hópi og fá hann til að syngja „einum rómi“ ef svo
má segja. Á hinn bóginn hlýtur hvert frávik frá því
að valda minni röskun í svona stórum hóp. Kómum
er skipt í fjórar raddir, fyrsta og annan sópran og
fyrsta og annan alt. Jafnvægi milli raddanna er gott,
- og fyrsti sópran mátulega mikið fyrirferðameiri en
hinar raddimar. Með örfáum undantekningum
syngur kórinn klukkuhreint. Það sem helst mætti
finna að söng kórsins er að raddimar syngja of h'tið
út; hljóma ekki nóg miðað við þennan fjölda - þær
halda of mikið aftur af sér, era of hógværar. Nokkr-
ar loðnar og óöruggar innkomur hefðu átt að vera
óþarfar þar sem kórinn virtist kunna eftiisskrána
mjög vel. Þama vantar herslumun, þótt mjög mikið
hafi áunnist. Með sama dug og atorku, verður kór-
hljómurinn smám saman fyllri, hljómmeiri og ör-
uggari, allt tekur þetta tíma og endalausa vinnu.
Kvennakór Reykjavíkur hefur á síðustu misser-
um náð að byggja upp sterkan prófQ, með fjöl-
breyttu eftiisvali sem spannar allt frá einfóldum
þjóðlögum til viðameiri, andlegra tónverka, og frá
verkum meistaranna til dægurlaga og léttrar tón-
listar. Það sem mestu skáptir þó er að söngur kórs-
ins er ákaflega músíkalskur, og auðheyrt að túlkun
hvers lags er úthugsuð og að unnið er markvisst að
því að hugmyndir að músíkalskri útfærslu lifni í
söngnum.
Fjölbreytt og viðamikil eftiisskrá kórsins reis
hæst í þjóðlegum lögum og þjóðlögum, bæði þeim
íslensku og þeim ensku og amerísku. Gráglettnu
vísumar í útsetningu Áma Harðarsonar á laginu
Tíminn hður, trúðu mér voru vel sungnar, með
kerskni og léttleika. Velska lagið All through the
night var afar fallega flutt, og sömuleiðis Scar-
borough Fair í óvenju góðri útsetningu. Einsöngur
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur þar var virkilega fínn, -
og ekki var hún síðri í ensku og amerísku þjóðlögun-
um sem hún söng ein með píanóleikaranum. Diddú
hefur orðið sér út um veralega amerískan framburð
sem hún beitti fimlega í amerísku vögguvísunni um
Litlu hestana, og ekki ættu Ameríkanamir að velkj-
ast í vafa um upprana þess lags. Síðustu tvö lögin á
efnisskránni, Shenandoah og minstrel söngurinn
Ching-A-Ring Chaw vora glæsileg í flutningi
Kvennakórs Reykjavíkur. Nýtt íslenskt lag var
frumflutt á tónleikunum, bamagæla eftir Ólaf Ax-
elsson við ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur. Lagið
sver sig í ætt íslenskra kórlaga og var prýðilega
sungið af kómum.
Það var mildð klappað fyrir Kvennakómum, ein-
söngvaranum, píanóleikaranum og kórstjóranum í
tónleikalok og mikil stemmning í salnum. í aukalög-
unum, sem vora dægurlög úr bíómyndum, náði kór-
inn sér á flug, lét vaða, kastaði af sér öllum fjötrum
og söng af ólgandi gleði og innileik og með eld í
þjarta.
Bergþóra Jónsdóttir
bómull f
HREYSH
Full búð af
bómullarfatnaði á
fínu verði
kr. 1.790
kr. 495
kr. 1.990
kr. 990
kr. 990
Stuttbuxur
kr. 1.490
Buxur
kr. 1.990
Barnapeysa
kr. 1.490
Barnabuxur
kr. 1.490
RUSSELL
ATMLETIC
• I E K IX E E S
OPIÐ
laugard. kl. 10-16
sunnud. kl. 12-16
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
--Skeifúnni 19 - S. 568 1717-
í