Morgunblaðið - 05.06.1999, Page 36
36 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
• 2ja hausa myndbandstæki
• Scart tengi • Fullkomin fjarstýring
• NTSC afspilun • Barnalæsing
Þýskt gæðatæki • 28" Black FST
myndlampi • Nicam Stereo 2 x 20 w
• Sjálfvirk stöðvaleit
» 29" Super Trinitron myndlampi
• Nicam Stereo 2 x 20 W
• 2 x Scart tengi ofl. ofl.
Ferðageislaspilari með LCD skjá.
Heyrnartól fylgja.
ARS201A
Stereo ferðatæki með kassettu og
FM/AM útvarpi á BT verði!
Öflug 1200 w
Fimm filtera
0
PC
STRIKE
GÓÐIR PC leikir á ótrúlegu verði:
DUNE 2000: Herkænskuleikurinn
SIN: Geðveikur skotleikur.
Dúndur pinni fyrir PC.
Tveggja hnappa pinni sem
hentar í alla hasarleikina.
Armageddon er loksins
komin á DVD. BT verð
er betra verð!
I Stylus Color 440
Flottur 15° skjár
366 Mhz Intel Pentium CeleronA
32 MB innra minni
4,3 GB Fujitsu diskur
8 MB Matrox Productiva skjákort
40 x Samsung geisladrif
16 bita BTC hljóðkort __________
Tveir 80 W hátalarar I
33,6 KB mótald \i\i
2ja mánaða internetáskrift ft^T
Windows lyklaborð og mús 1
Windows 98 uppsett og á CD
lekhylki • 720 pát.
bls. á mín í svörtu.
2,5 bls. mín I lit.
H
!-■ Otrúlegt ]
pakkaverði
36 bita litadýpt
600x1200 pát raunupplausn
Allt sem þú þarft i myndvinnsluna: \ ?
Öflug tölva, myndlesari og Ijósmyndaprentari
Frábeer
' sumartilboð. '
Komdu i BT um helgina
, og gerðu ótrúleg
kaup!
Opid laugardag 10:00-16:00
Opid sunnudag 13:00-17:00 BT Skeifunni
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
Fréttir á Netinu
<g> mbl.is
-ALLTAF eiTTH\SA{3 NYTT
MARGMIÐLUN
Sviptingar á
hraðlamarkaði
neo pn-
rir
MIKLAR sviptingar eru á þrívídd-
arhraðlamarkaði, fremstu framleið-
endur dagsins í dag lenda á ösku-
haug sögunnar á morgun þegar ný
kort koma fram með nýja örgjörva
og nýja tækni. 3Dfx hratt þrívíddar-
bytingunni af stað með því að vera
með rétta tækni á réttum tíma
en uggði ekki að sér.
Voodoo-kortin sem
byggðu á sam-
nefndum örgjörva frá
3Dfx ollu straum-
hvörfum í þrívíddar-
grafík fyrir al-
menna tölvunot-
endur á sínum tíma;
kort frá ýmsum fram-
leiðendum með Voodoo-gjörvum í
voru hraðvirk og ódýr og skiluðu
miklum myndgæðum. Aðrir fram-
leiðendur áttu ekki svar við tækn-
inni, ekki síst þegar 3Dfx-menn
voru fyrstir á markað með þrí-
víddar forritunarskil fyrir
Quake. Keppinautarn-
ir á þeim tíma voru
helst S3, sem fram-
leiddi útbreiddasta skjá-
hraðall heims, nánast ein
göngu sem örgjörva á móður-
borði, og Matrox,
sem framleiddi
bestu tvívíddar-
kortin. Pau fyr-
irtæki áttuðu
sig þó ekki á breyttum tímum og
þegar þau heyktust á að senda frá
sér almennileg þrívíddarkort misstu
þau fótanna og hafa ekki náð sér al-
veg enn. Fleiri eru og um hituna,
nVidia, ATI og VideoLogic, svo
nokkrir þeir helstu séu nefndir.
Á eftir Voodoo-skjáhraðli 3Dfx
kom Voodoo2, sem var enn hrað-
virkara og hægt að tvöfalda hrað-
ann með því að hliðtengja tvö
Voodoo2-kort með svonefndum
SLI-kapal. Með þessu sló 3Dfx
flesta keppinauta sína út af laginu
og hélt enn yfirburðastöðu sinni á
markaðnum. Aðrir sátu þó ekki að-
gerðalausir og nVidia var fyrst til
að svara Voodoo2 með Riva TNT
skjáhraðlinum. Gott TNT-kort var
nánast jafn hraðvirkt og tvö
Voodoo2 kort, kostaði minna og tók
aðeins eina rauf, AGP-rauf, á meðal
SLI-tengd Voodoo2 kort þurfa 2
PCI-brautir. Svar 3Dfx við þessú
var ný gerð af Voodoo, Voodoo3,
sem var þó langt í frá eins mikið
stökk og 2-gerðin var framúr fyrstu
gerð, hraðaaukningin er ekki nema
10-15% að sögn. Fyrir vikið má
segja að 3Dfx hafi misst tökin á
markaðnum; nýtt kort frá nVidia,
TNT2, er það hraðvirkasta fyrir al-
menna noktun í dag og ekki útlit
fyrir að það breytist í bráð.
3Dfx missir af Iestinni
Ýmsar skýringar eru á því hvers
vegna 3Dfx hefur misst af lestinni,
/2VIDIA
helst vitanlega sú að fyrirtækið hef-
ur ekki haldið í við tæknina. Þannig
er ekki almennilegur AGP-stuðn-
ingur í örgjörvasettinu, nokkuð sem
skipti ekki máli framan af, þar sem
fátt kallaði á APG á annað borð, en
æ meira máh eftir því
sem tækninni fleygir
fram. Einnig er
ókostur að kortin
ráða ekki nema við
16-bita lit sem gef-
ur eðlilega minni
myndgæði.
Hr aðvirkasta
kortið á almennum
markaði í dag er
TNT2. TNT2 heit-
ir svo til að undirstrika að það er
byggt á TNT-hraðlinum sem náði
talsverðri hylli. Það er þó sitthvað
breytt, hraðvirkara minni og meira
af því, talsvert hærri
tiftíðni og svo má telja.
Að öllu jöfnu ætla þeir
sem um hafa fjallað að
hraðaukningin sé frá 50
upp í 70% og jafnvel
rneiri.
Þó hér hafi verið
fjallað um skjá-
hraðlana sem slíka
geta þeir birst á
kortum frá mörg-
UJa framleiðend-
um. Þannig voru
algengustu Voodoo-kortin á mark-
aði hér sennilega Diamond Monster
og Creative Graphics Blaster. Svo
er því einnig háttað með TNT-hrað-
alinn, það örgjörvasett er til frá
mörgum framleiðendum, til að
mynda Creative með 3D Blaster,
Diamond með Viper, Hercules með
Dynamite og svo má telja. 3Dfx fór
aftur á móti þá leið að kaupa korta-
framleiðanda, STB, og taka upp á
þvi að framleiða eigin kort. Fyrir
vikið lenti fyrirtækið í erfiðleikum
með dreifingu á Evrópumarkaði og
hefur ekki gengið sem skyldi vestan
hafs. Svar við því hefur verið að
selja tölvuframleiðendum kort til að
setja í vélar sínar, sérstaklega í
Evrópu, og ef til vill verður það til
þess að kortin verði útbreiddari er
virtist í fyrstu.
í Ijósi hinnar hörðu samkeppni á
markaðnum er ekki auðvelt að velja
sér skjákort. TNT2 er besti hraðall-
inn, en Voodoo3 3500 er einnig mjög
góður. Fleiri eru um hituna, kort
með Savageá frá S3 eru góð og
einnig kort með PoverVR hraðli frá
VideoLogic, en það íyrirtæki hefur
nánast helst úr lestinni vegna anna
við smíði á hraðli í Dreamcast-
leikjatölvu Sega. Nokkra framleið-
endur til viðbótar má tína til, en
einnig skiptir miklu máli hvemig
kortaframleiðendur setja saman
skjákort sín, hversu mikið minni er
á kortinu og hvaða hraði er á því og
svo má telja.
Hvað með Glide?
EITT af því helsta sem 3Dfx hefur
haft framyfir aðra skjáhraðlafram-
leiðendur og reyndar það sem reið
baggamuninn varðandi Quake-
stuðninginn, er forritunarskil sem
kallast Ghde. Aðrir hafa ekki boðið
upp á Glide-stuðning, enda staðall í
eigu 3Dfx, en það kann að vera að
breytast.
Á Netinu má víða fínna það sem
kallast Glide Wrapper, sem er eins-
konar Glide-hermir og gerir kleift
að keyra Glide-leiki á kortum sem
ekki styðja staðalinn. Þannig er til
að mynda hægt að keyra N64-
herminn UltraHLE á nánast hvaða
skjákorti sem er, en hann er gerður
fyrir Glide-stuðning eingöngu.
Þetta hefur þann ókost helstan að
vinnsla verður eðlilega hægari, en
Creative kynnti á dögunum svar við
því, hugbúnað sem íyrirtækið kallar
Unified og er sérsaminn til að veita
TNT-kortum Glide stuðning.
I fréttatilkynningu frá Creative
kemur fram að Unified, sem komið
er í beta-útgáfu, felur í sér hugbún-
aðarlag sem túlkar jafnharðan öll
Glide-tengd köll í viðkomandi leik
eða hugbúnaði og snýr í Direct3D
forritunarskil. Einnig er í Unified
stuðningur við sitthvað sem mönn-
um þótti vanta í Glide en TNT-kort
ráða hæglega við. Að sögn Creative-
manna er það gert til þess að þeir
forritarar sem kjósa að nota Glide
geti nýtt sér viðbætumar ef leik-
andinn er með TNT-kort í vél sinni.
Eins og getið er er Unified enn í
betaútgáfu en væntanlegur er
stuðningur við ýmislegt eins og lesa
má á slóðinni www.creati-
ve.com/unifled. Þar geta eigendur
TNT-skjákorta frá Creative einnig
sótt sér betaútgáfuna sér að kostn-
aðarlausu.
|
I