Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 37

Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 37 Snúist til varnar ÓLÖGLEG fjölfóldun hugbúnaðar er mikið og sívaxandi vandamál. Fyrir- tæki hafa reynt ýmsar leiðir tU að bregðast við þessu, en tæknin er alltaf feti framar; ekki er fyrr búið að koma vöm íyrir í hugbúnaði, en einhver er búinn að fínna leið fí-amhjá henni. Microsoft hefur beitt sér mjög fyr- ir því að ólöglegri fjölfoldun hugbún- aðar verði útrýmt og náð ágætum árangri. Mikið er í húfi fyrir fyrir- tækið, enda er enginn hugbúnaður meira afritaður ólöglega en frá Microsoft. Nýjasta nýtt í þessari baráttu er samningur sem Microsoft undirritaði fyrir skemmstu við íyrir- tækið Macrovision. Macrovision hefur þróað tækni sem fyrirtækið kallar SafeDisc og byggist á því að á hverjum geisladisk með hugbúnaði er stafrænt „vatns- merki“ sem verður að vera til staðar til þess að hægt sé að setja viðkom- andi forrit inn á tölvu. Ekki er hægt að afrita þetta vatnsmerki með öðru sem á disknum er og því verður hug- búnaðurinn ónothæfur af afritinu. Kostur við þessa tækni, til viðbótar við það að ekki sé hægt að afrita vatnsmerkin, er að löglegir notendur verða ekkert varir við þessa vöm og þurfa ekki að halda upp á flóknar talnarunur til að setja hugbúnaðinn upp aftur; nóg er að hafa undir hönd- um upprunalega diskinn. Til að byrja með hyggst Microsoft nota SafeDisc-tæknina á leiki, fræðsluefni og fjármálaforrit. Ýmsir hugbúnaðarframleiðendur hafa nýtt sér tæknina, þeirra á meðal Acti- vision, Eidos og GT Interactive. ------------------------ Fyrsti flug- bíllinn FYRSTI flugbíllinn tekst á loft síðar í mánuðinum ef áætlanir framleið- enda standast. Bíllinn, sem kallast Skycar, mun kosta í kringum sjötíu milljónir króna vestan hafs. Hönnun fyrsta flugbílsins sem ætlaður er fyrir almennan markað er komin á lokastig. Framundan eru ýmsar próafnir og viðbætur, til að mynda hvað varðar öryggisatriði, en ekki er búist við að bíllinn komi á markað fyrr en eftir tvö til þrjú ár í fyrsta lagi. Skycar er fjögurra manna og tekst á loft og lendir lóðrétt líkt og Harrier- þotur breska flughersins. I bílnum em átta hreyflar og með þeim nær bíllinn um 560 kílómetra hraða á flugi og kemst um 1.500 kílómetra á hverj- um tanki. Hreyflamir nýta venjulegt bensín og þurfa ekki hærri oktantölu en heimilisbíllinn. Einnig getur hann nýtt dísilolíu, matarolíu, nánast allt sem brennur. Bíllinn er eins og hver annar bíll á milli þess sem hann flýgur um loftin blá, en heldur stærri um sig. Fyrsta flugferðin verður síðar í mánuðinum og þá án flugmanns. Ekki er búist við að reynsluflug með flug- manni hefjist fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Fljótlega eftir það færi bíllinn á markað ef flugmálayfirvöld leyfa það. Fyrirtækið sem framleiðir bílinn hef- ur þegar gert Qölþættar tilraunir með frumgerð hans og gengið að óskum. Tilvonandi ökumenn munu vænt- anlega þurfa að hafa flugpróf til við- bótar við bílprófið, en framleiðendur nefna að hugsanlega verði bíllinn tölvustýrður sem geri kleift að fljúga hvert á land sem er með óvana öku/flugmenn og nýta GPS-staðsetn- ingartækni til að rata rétta leið. Skycar getur flogið á tveimur vélum og einnig lent þannig, en þá þarf sér- staka braut eða auðan veg til að lenda á. Einnig mætti nota fallhlífamar tvær sem eru staðalbúnaður. Á undirvagni eru líka loftpokar til að mýkja lengd- inguna. Siglingatæld eru ekkert á við það sem þarf í flugvélum, en þó ýmis- legur búnaður eins og innrauðir skynjarar til að auðvelda mönnum að ferðast um í þoku og slagviðri. Ekki treystir framleiðandi sér til að segja fyrir um verð fyrstu Skyc- ar-bílanna, enda er mikil vinna eftir og margt getur breyst, en spáir því að það verði í kringum sjötíu milljón- ir króna. og ekki er hægt að slökkva á tónlist- inni án þessa að öll venjuleg hljóð leiksins hverfi með henni. Það er þó lítið gjald fyrir frið frá endalausum fjörugum takti tölvunnar. Vopn leiksins eru fá og lítilfjör- leg, endalaust magn virðist vera af köttum og veiðimönnum sem elta Bugs og vopnin duga engan veg- inn til að losa sig við alla óvini í hverju borði. Spilandinn er því stanslaust á flótta sem gerir leik- inn mun erfiðari og skemmtilegri. Crasy Castle 3 er einn full- komnasti og stærsti Color Game Boy-leikur sem komið þessa og skipar strax á bekk með ekki minni leikjum en Zelda: Links Awakening og Super Mario Bros. Ingvi Matthías Árnason Bugs Bunny Crasy Castle Nintendo gaf nýlega út nýjustu við- bót sína í sívaxandi safn leikja fyrir hina vinsælu Color Game Boy hand- tölvu, leikurinn ber heitið Bugs Bunny Crasy Castle 3 og er framhald Bugs Bunny Crasy Castle 2. Bugs Bunny Crasy Castle 2 stát- ar af einföldum söguþræði sem passar ágætlega fyrir leik af þessari gerð; Bugs þarf að komast í gegn- um stóran kastala sem er umsetinn óvinum. Ovinirnir eru að þessu sinni fyrrum vinir Bugs sem nomin Hazel hefúr hneppt í öflug álög, meðal óvinanna eru Elmer Fudd (veiðimaðurinn), Sylvester og Tweety. Útlit og markmið leiksins er dæmigert fyrir Game Boy. Einung- is sést hlið Bugs og markmiðið er að finna risastóra gulrót í enda kastal- ans. Til þess þarf Bugs að safna átta lyklum í hverju einasta af sextíu borðum leiksins. Oft getur verið nokkuð flókið að komast að lyklun- um, sérstaklega í seinni hluta leiks- ins. Leikurinn státar af afbragðs grafík, litir eru ekki eins ýktir og þeir eiga til að verða í Color Game Boy-leikj- um og per- sónur leiks- ins sjást afar greinilega. Leik- urinn býður upp á fimmtíu og tvo liti sam stundis á skjánum og er það nokkuð góð nýting. Aðra sögu er þó að segja um tónlistina, sama lagið virð- ist endurtekið í tug- um mismunandi útgáfna Stanslaus flótti LEIKIR „...við ætlum að láta sverfa til stáls og sækja stigin þrjú. Til þess þurfum við stuðning áhorfenda og ég bind vonir við að fólk sjái sér fært að styðja okkur í leiknum." - Guðjón Þórðarsson KSI Evrópukeppni landsliða á Laugardalsvelli í dag kl. 16:00. Miðaverð: Sæti 1: 2.000,- Sæti 2: 1.500,- 16 ára og yngri: 500,- Nú er boðið upp á fjölskyldu- og barnahólf þar sem foreldrar og börn geta setið saman. Miðasala á Laugardalsvelli frá kl. 10:00. Furstarnir, ásamt Geir Ólafssyni, skemmta fyrir leik og í hálfleik. Happdrætti - Hver aðgöngumiði er tvöfaldur happdrættismiði I hálfleik er dregið úr afrifum aðgöngumiða um raftæki frá Electric, raftækjaverslun Heklu. Munið að skoða númer miðans þegar dregiö verður I hálfleik. VW Generation Golf - Glæsilegur happdrættisvinningur Með því að merkja stofn aðgöngumiða og skila honum I sérmerktan kassa við útgöngudyr Laugardalsvallar í leikslok tekur áhorfandi þátt í happdrætti þar sem vinningurinn er Generation Golf að verðmæti 1.390.000 kr. Haustið 1999, að loknum síðasta heimaleik (slands í forkeppni Evrópumótsins, verður dregið úr öllum miðum sem borist hafa. Þeir sem mæta á alla 5 heimaleiki (slands í forkeppni Evrópumótsins og skila miðum í pottinn í hvert sinn styðja ekki aðeins landsliðið okkar heldur auka þeir um leið llkur sínar á vinningi í þessu glæsilega happdrætti. Samstarfsaðilar KSÍ eru: HEKLA SJMMAi-.MENN.AR (fsso FLUGLEIÐIR BUNAÐARBANKINN Olíufélagið hf GOTT FÓLK nPGlálÐAHÓTELHF Mæting kl. 15:30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.