Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AUGLÝSINGA
ATVINNU-
AUGLÝSIN6AR
u
Wiirth á Islandi ehf
Wiirth verslar með rekstrarvöru og verkfæri
fyrir fagmenn. Vörunúmer á lager skipta
þúsundum.
Rekstur á mötuneyti
í Molduhrauni, Garðabæ
Við hjá Wurth á íslandi ehf., Vesturhrauni 5
í Garðabæ höfum yfir að ráða mötuneyti. Við
erum 20 til 30 sem borðum þar að meðaltali
og við viljum fá aðila, sem vill sjá um mötu-
neytið okkar. Við erum reyklaus vinnustaður.
Við teljum að mötuneytið geti haft marga
möguleika þar sem það er vel staðsett og það
er mjög stórt bílastæði.
Við erum opnir fyrir öllum mögulegum hug-
myndum um samstarf hvers konar:
• Heilt starf eða hlutastarf.
• Útleigu á salnum og kaup á mat á móti.
• Verktöku við matsöluna.
• Heimsendan mat.
• Annað.
Viljir þú vita meira um málið, þá getur þú
hringt í síma 896 5353, talað við Björn og
fengið frekari upplýsingar.
Ef þú hefur áhuga á slíku verkefni, sendu þá
skriflega þínar hugmyndirtil okkar:
Wiirth á íslandi ehf.,
Vesturhrauni 5,
210 Garðabæ,
sími 530 2004,
fax 530 2001.
Skólastjóri og kennari
óskast að Laugagerðisskóla á
Snæfellsnesi.
Staða skólastjóra Laugagerðisskóla er laus til
umsóknar. Umsóknarfresturertil 13. júní nk.
Skólinn er um 120 km frá Reykjavík, nemendur
eru um 45, allir í heimanakstri. Kennsluaðstaða
er góð, vel búnar rúmgóðar kennslustofur,
íþróttahús og sundlaug. Skólastjórabústaður
er einbýlishús með frírri hitaveitu.
Ennfremur vantar kennara í hlutastarf í hand-
og myndmennt og heimilisfræði.
Upplýsingar veita Sigrún Ólafsdóttir í síma
435 6631 og Guðbjartur Alexanderson í síma
435 6685. "
Blaðberar
Blaðbera vantar í Vatnsendahverfi. Þarf að
hafa bíl
^ | Upplýsingar gefnar í síma 569 1122
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Hjúkrunarfræðingar
og móttökuritari!
Á toppnum
í Domus Medica (6. hæð) óskast
samstarfsfóik
Læknahúsið ehf.:
Tvær stöður skurðstofuhjúkrunarfræðinga í
80—100% stöður.
Ein staða móttökuritara í 60% stöðu.
Laserlækning ehf.:
Ein staða hjúkrunarfræðings í 60% stöðu.
Lysthafendur leggi inn umsókn með upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf á afgreiðslu
Mbl. fyrir 9. júní, merkta: „Lækna-Laser".
Sendiráð Frakklands
leitar að starfsmanni
Skrifstofustarf er laust til umsóknar í sendiráði
Frakklands. Áhugasamir eru beðnir um að
senda inn yfirlit um reynslu og fyrri störf til
Bernard Cocquebert, Sendiráði Frakklands,
Túngötu 22, B.P. 1750, 121 Reykjavík.
Skilyrði fyrir ráðningu er góð frönsku-
og íslenskukunnátta. Staðan er laus nú þegar.
Trésmiðir
Smiðir óskast við mótauppslátt og almenna
smíðavinnu. Framtíðarvinna.
Næg verkefni framundan.
sími 893 5610, Jóhann,
sími 898 1773, Finnur.
Trésmiðir
Óskum eftir trésmiðum til starfa sem fyrst.
Framtíðarvinna.
Upplýsingar í símum 511 1522 og 892 5606.
Eykt ehf
Byggingaverktakar
Grindavíkurbær
Tónlistarskólastjóri
— kirkjuorganisti
Grindavíkurbær og sóknarnefnd Grindavíkur-
sóknar óska eftir að ráða skólastjóra við Tón-
iistarskólann og organista við Grindavíkur-
kirkju.
Umsækjandi þarf að hafa haldgóða tónlistar-
menntun, réttindi til kennslu í tónlist og góða
færni sem organisti og kórstjóri. Umsækjandi
þarf að geta hafið störf sem fyrst til að undir-
búa skólastarf á næsta skólaári og kórstarfið
í kirkjunni.
Launakjör við tónlistarskólann fara eftir kjara-
samningum Launanefndar sveitarfélaga og
Félags tónlistarkennara og samkomulagi við
sóknarnefnd.
Upplýsingar um starfið veita Jón Hólmgeirs-
son, formaður sóknarnefndar og bæjarritari,
og Einar Njálsson, bæjarstjóri, á bæjarskrifstof-
unni í síma 426 7111.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna á
Víkurbraut 62 eigi siðar en föstudaginn 18. júní
1999.
Formaður sóknarnefndar Grindavíkursóknar.
Bæjarstjórinn í Grindavík.
Alþjóðlegt stórfyrirtæki
verður opnað formlega á íslandi 12. júní.
Bráðvantar dreifingaraðila.
Einstakt tækifæri. Góð laun fyrir duglegt fólk.
Aðeins áhugasamir hafi samband.
Upplýsingar eru veittar í síma 555 1746,
e-mail hronni@hotmail.com.
Laghentur
— sumarvinna
Þjónustufyrirtæki í Reykjavík leitar eftir lag-
hentum manni í sumar á aldrinum 23 til 30 ára,
til viðhaldsvinnu, uppsetningu á sýningum
og margskonar störf, ásamt ungum manni á
aldrinum 18 til 20 ára.
Allar upplýsingar gefur Magnús í síma
568 9200.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Leiguhúsnæði
— samstarfsaðili óskast
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir
leiguhúsnæði undir vínbúð í Grindavík.
Stærð húsnæðis, sem þarf að vera unnt að
loka frá annarri starfsemi, sé um 50 m2.
Verslunin þarf að hafa góða aðkomu fyrir fatl-
aða. Greiður aðgangur sé til vörumóttöku, en
vara verður flutt að versluninni á vörubrettum.
Leitað er eftir rými samtengdu húsnæði sem
í er atvinnurekstur, er getur átt samleið með
rekstri vínbúðar, hvað snertir hreinlæti og um-
hverfi.
Húsnæðið verður að hljóta samþykki bygg-
ingafulltrúa, vinnueftirlits, brunaeftirlits og
heilbrigðiseftirlits. Samþykkis lögreglu á stað-
setningu verslunarinnar verður óskað og leyfis
sveitarstjórnar til að reka verslunina.
Það verðurforsenda leigusamnings að um
semjist við leigusala að hann veiti ÁTVR ýmis
konar aðstoð við rekstur verslunarinnar, t.d.
við móttöku vöru, aðstoð við verslunarstjóra
ÁTVR á annatímum og í forföllum hans.
Það er ætlun ÁTVR að opna verslunina
24. nóvember 1999. Við val samstarfsaðila
mun ÁTVR leitast við að raska ekki verulega
samkeppnisstöðu fyrirtækja í bænum.
Gögn, er lýsa nánar óskum ÁTVR um ástand
húsnæðis og um þjónustu, iiggja frammi á
bæjarskrifstofu Grindavíkur, Víkurbraut 62.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Steinsson
í síma 560 7700.
Leigusali/samstarfsaðili skal með svari sínu
láta fylgja upplýsingar um atvinnuferil sinn.
Sé um fyrirtæki að ræða, óskast upplýsingar
um fyrirtækið, hvenær það var stofnað, stjórn-
skipulag og nöfn eigenda. Gefa skal upp nöfn
starfsmanna sem hafa má samband við um
mál þetta.
Ársreikningur síðasta árs skal fylga með svari.
Einnig staðfest vottorð frá viðkomandi yfir-
völdum um skil á opinberum gjöldum. Jafn-
framt staðfest vottorð frá lífeyrissjóðum starfs-
manna um skil á iðgjöldum.
Með allar upplýsingar sem óskað er eftir verð-
ur farið sem trúnaðarmál.
Tilboð, er greini hvenær leigutími geti hafist,
stærð húsnæðis, leigu- og þjónustugjöld,
berist skrifstofu Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins eigi síðar en 1. júlí 1999.
Reykjavík, 28. maí 1999.
5TYRKIR
Stjórn minningarsjóðs Karls J. Sighvats-
sonar auglýsir styrk til
framhaldsnáms í orgel-
eða hljómborðsleik
Umsækjendur skulu tilgreina fullt nafn, kenni-
tölu, fyrra nám, fyrirhugað nám og hvar og
hvenær nám hefst. Umsóknum skal skilað til:
Söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar, Sölvhólsgötu
13, 101 Reykjavík, fyrir 4. júlí nk.
Sjóðstjórn.