Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 51

Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 51 ^ MINNINGAR + Ingþór Sigur- björnsson var fæddur að Kambs- hóli í Víðidai í Vest- ur-Húnavatnssýslu 5. júní 1909. Hann lést 5. júní 1992 og fór útför hans fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 8. maí 1992. Mér er efst í huga þegar ég sá Ingþór í fyrsta sinn 1932 koma í heimsókn til móður minnar, Unu Péturs- dóttur. Hún var ekkja með þrjár dætur, ég yngst tíu ára. Ingþór var fallegur og mjög góður maður. Eg man þegar Ingi, eins og ég kallaði hann, spurði mig hvort ég yrði reið ef hann byði móður minni í ferða- lag. Eg hefði aldrei getað tekið Ingþóri illa. Það birti upp í lífi okk- ar systra þegar hann kvæntist + Hulda Ingibjörg Benedikts- dóttir fæddist 6. september 1916. Hún lést 19. apríl 1998 og fór útför hennar fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík 29. aprfl 1998. Kveðja til systur minnar, stjúp- dóttur Ingþórs Sigurbjömssonar. Ég kveð Huldu systur mína með þökk og virðingu. Hvað æskuárin voru ljúf og góð í faðmi systur og móður, fyrir mig fjögurra ára barn en Hulda var tíu ára, þegar faðir okkar lést snögglega af slysförum. Ári seinna veiktist móðir okkar og þurfti að liggja á sjúkrahúsi í tutt- ugu vikur. Við Hulda dvöldumst hjá vinkonu mömmu, yndislegri konu, Guðrúnu Þorsteinsdóttur frá Sauð- árkróki. Þriðja systirin var hjá föð- ursystur okkar, Guðnýju Sveins- dóttur í Aðalvík. Svo liðu árin og Ingþór kom inn í líf okkar allra. Hann reyndist okkur öllum vel og sérstaklega Huldu seinni ár ævi hennar. Ég er stjúpa mínum þakklát fyrir það. Ég læt bænina hans Ingþórs fylgja. móður okkar 10. nóv- ember 1934. Móðir okkar Una, missti fyrri eiginmann sinn, Benedikt Sveinsson, 4. júlí 1927 af slysförum, frá þremur dætrum fjögurra, átta og tíu ára. Foreldrar Ingþórs voru Sigurlaug Níels- dóttir og Sigurbjöm Bjömsson sem bjuggu síðast að Geitlandi í V estur-Húnavatns- sýslu. Fyrstu árin ólst Ingþór upp hjá foreldr- um sínum en varð fyrir þeirri sám sorg að missa móður sína sjö ára gamall. Sú sorg gréri aldrei að fullu. Una og Ingþór eignuðust einn son, Sigurbjörn Ingþórsson hljómlistar- mann. Hann fæddist 17. júlí 1934 og dó 6. júní 1986. Á leið upp í kirkju- garð að leiði sonar síns orti Ingþór 17. Júlí 1986: Mýktu sjúka og sára und svo ég ylinn finni. Gef þú mér nú góðan blund Guð af miskunn þinni. (Ingþór Sigurbjömsson) Sofðu vært og rótt, þín systir Unnur Ragna Benediktsdóttir. Yfir steini okkar hljótt andvarp heitast biður: Sonur blíður, sofðu rótt Signi þig Aivalds friður. (Ingþór Sigurbjörnsson) Ingþór vann mikið að félagsmál- um. Kunnastur er hann fyrir störf sín í þágu Góðtemplarareglunnar þar sem þau hjón bæði söfnuðu fót- um til barna í Póllandi og þar sem þörfín var mest. Ingþór hefði ekki getað verið svona lengi í fatasöfnun- inni, 10 ár, ef Una kona hans hefði ekki verið hans hægri hönd í því starfí. Einnig vora þau hjón í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Ing- þór var gerður að heiðursfélaga hjá Iðunni svo og hjá Félagi málara- meistara. Hann var mikill hagyrð- ingur og þau hjón bæði. í veislum eða ef eitthvað var sér til gamans gert orti Ingþór alltaf vísur og söng. Þau hjón voru í kórum, sungu í mörg ár í kirkjukóram. Sameiginlegt áhugamál þeirra var að mála á postulín, skreyta stór- ar kistur og á árum áður skreyttu þau kirkjur og skrautrituðu á bæk- ur. Handbragðið var fallegt. Ég þakka stjúpa mínum allar fallegu gjafirnar og fallegu orðin sem hann talaði til mín. Ingþór hafði mjög gaman af að ferðast um landið sitt, yrkja um fal- lega staði og skoða fuglana. Ég þakka stjúpa mínum hvað hann var góður við börnin mín og barna- börn, sem þau kölluðu afa. Við þökkum þér, elsku Ingþór, umhyggju og kærleik þinn. Biðjum þann, gott allt sem gefur greiða þann reikninginn. Hvíl í friði. Þín Unnur Ragna Benediktsddttir og fjölskylda. t Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA BJÖRGVINSSONAR, Þrastarhlíð, Breiðdal, fer fram frá Heydalakirkju í dag, laugardaginn 5. júní, kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Ásdís Gísladóttir, Sigurður Kristinsson, Bergþóra Gísladóttir, Erling Ólafsson, Snjólfur Gíslason, Steina Kristín Þórarinsdóttir, Ingibjörg Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. INGÞOR SIGURBJÖRNSSON HULDA INGIBJORG BENEDIKTSDÓTTIR Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararsfíóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG HELGADÓTTIR fyrrum húsfreyja á Ferjubakka og síðar í Ólafsvík, andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi aðfaranótt fimmtudagsins 3. júní. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 8. júní kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Börnin. + Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu í orði og verki samúð, hlýju og virðingu vegna frá- falls og útfarar fVARS ÓLAFSSONAR járnsmiðs, Hjallalundi 10, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkr- unarfólki á lyfjadeild 1, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, fyrir góða umönnun. Valgerður Aðalsteinsdóttir, Stefán Ævar ívarsson, Kristjana Ólöf ívarsdóttir, Sigurgeir Einarsson, Elvar Sigurgeirsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS JÚLÍUSAR GUÐMUNDSSONAR, Stykkishólmi. Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Franciskus- sjúkrahússins í Stykkishólmi, fyrir góða umönnun. Auður Júlíusdóttir, Erlar Kristjánsson, Jónína Kristjánsdóttir, Bernt Sigurðsson, Kristján Kristjánsson, Svandís Einarsdóttir, Þóra Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og virðingu vegna andláts JÓHANNS ÞÓRIS JÓNSSONAR ritstjóra tímaritsins Skákar. Sérstakar þakkir til starfsfólks á gjörgæslu- deild, sjúkradeild B7 og Grensásdeild Sjúkra- húss Reykjavíkur fyrir natni og hlýju við um- önnun I erfiðum veikindum. Sigríður Vilhjálmsdóttir, Kristín Marfa Kjartansdóttir, Ingólfur Hauksson, Hannes Jóhannsson, Beth Marie Moore, Steinar Jóhannsson og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur sam- úð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SVÖNU E. SVEINSDÓTTUR, Kirkjuvegi 11, Keflavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks og lækna á deild B-7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Pétur Jónsson, Sveinn Kr. Pétursson, Guðrún Iðunn Jónsdóttir, Steinunn Pétursdóttir, Jenný Olga Pétursdóttir, Veigar Már Bóasson, Kristín Pétursdóttir, Antwan Spierings og barnabörn. <r + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför GUÐFINNU EIRÍKSDÓTTUR frá Hesti, Egilsgötu 4, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi og starfsfólks E-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun. Sigríður Brynjólfsdóttir, María Guðmundsdóttir, Guðmundur G. Vigfússon, Ágústa Guðmundsdóttir, Pétur Þorvaldsson og ömmubörnin. + Ástarþakkir fyrir hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns og fööur okkar, ÁGÚSTAR NORDGULEN verktaka, Fannafold 24, Reykjavík. Ásta Þórunn Þráinsdóttir, Halla Sjöfn Ágústsdóttir, Anna Rut Ágústsdóttir, Ágúst Orri Ágústsson og fjölskyldur. Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.