Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 56
^56 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
UMRÆÐA
MORGUNBLAÐIÐ
Hreyfing - holl
fyrir hjartað
Á fyrri hluta þessar-
ar aldar var hjarta-
sjúklingum ráðlagt að
vera í algerri hvíld eft-
ir hjartaáfall. Fyrstu
6-8 vikurnar voru sjúk-
lingar rúmliggjandi og
eftir það var áhersla
lögð á að forðast allt
líkamlegt álag. Á þess-
um tíma var það veru-
leg fotlun að fá
kransæðasjúkdóm.
Upp úr miðri öldinni
fóru menn að gera sér
grein fyrir slæmum
áhrifum hreyfíngar-
leysis og komið var
fram með fyrstu end-
urhæfíngaráætlunina
fyrir sjúklinga eftir hjartaáfall. Hún
byggðist á því að sjúklingar fengu
að sitja í stól 1-2 klst. á dag. Mikið
hefur breyst í endurhæfingu hjarta-
sjúklinga frá þessum tíma og í dag
Hjartasjúkdómar
Fullyrða má, segir
______Ingveldur_____
Ingvarsdóttir, að
hreyfíngarleysi sé einn
stærsti áhættuþáttur
kransæðasjúkdóma.
er regluleg hreyfing mikilvægur
'þáttur í endurhæfingu þeirra. Er
það fyrst og fremst vegna þeirra
áhrifa sem hreyfing hefur á hjartað.
Með því að hreyfa sig reglulega
eykst þrek einstaklingsins. Það er
vegna þess að hreyfingin styrkir
hjartað, hjartsláttartíðni í hvíld og
við áreynslu minnkar og við það
verður minna álag á hjarta við dag-
leg störf. Þetta hefur þau áhrif að
hið daglega amstur reynir ekki eins
mikið á einstaklinginn, hjartasjúk-
lingur fær síður brjóstverki eða
önnur einkenni frá hjarta við
áreynslu. Með auknu þreki er minni
þreyta eftir vinnudag-
inn og afgangsorka fyr-
ir frítíma og tómstund-
ir.
Regluleg hreyfing
hefur einnig forvarn-
argildi og er mikilvæg-
ur þáttur heilbrigðs
lífernis. Rannsókn sem
skoðaði tengsl hreyf-
ingar og tíðni
kransæðasjúkdóma
sýndi fram á að með
aukinni hreyfingu
minnkaði tíðni þeirra.
Þeir sem brenna um
2.000 kcal. á viku í
hreyfmgu eins og
göngu, eða íþróttum,
voru í 39% minni
hættu á að fá hjartaáfall en kyrr-
setumenn.
Áhrif hreyfingar á áhættuþætti
kransæðasjúkdóma
Regluleg hreyfing hefur áhrif á
ýmsa áhættuþætti kransæðasjúk-
dóma. Helstu áhættuþættir sem við
getum haft áhrif á, eru: hækkaðar
blóðfitur, hækkaður blóðþrýstingur,
offita og reykingar.
Ef hlutfallið heildarblóðfita/góðar
blóðfitur er 4, minnka líkur á
hjartaáfalli hjá viðkomandi einstak-
lingi. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á
góðu blóðfitumar, gildi þeirra
hækkar við reglulega hreyfingu. En
hreyfing hefur lítil áhrif á slæmu
blóðfitumar, þar þarf breytt matar-
æði eða lyfjameðferð að koma til
sögunnar.
Með reglulegri hreyfingu náum
við fram lækkun á blóðþrýstingi hjá
þeim sem hafa of háan blóðþrýsting.
Regluleg hreyfing er mikilvægur
þáttur í baráttunni við aukakílóin.
Þeim sem era of þungir er einnig
hættara við því að fá sykursýki en
hún er einn af áhættuþáttunum.
Þeir sem hreyfa sig reglulega era
líklegri til að taka upp heilbrigðari
lífsstíl, t.d. breyta mataræði og
hætta að reykja. Þannig tengist
hreyfing á margvíslegan hátt við
hina ýmsu áhættuþætti kransæða-
sjúkdóma og fullyrða má að hreyf-
Ingveldur
Ingvarsdóttir
Sumar-
tilboð
Salemi með
setu og handlaug
á fæti á aðeins
14.800 kr
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000
ingarleysi er einn af stærstu
áhættuþáttunum hvað þá varðar.
Endurhæfing hjartasjúklinga
Endurhæfingu hjartasjúklinga á
Islandi er skipt niður í 3 stig.
Fyrsta stig varir fyrstu 6-8 vikum-
ar eftir hjartaáfall eða hjartaskurð-
aðgerð. Á þessum tíma er hjartað
að jafna sig eftir skurðaðgerðina
eða hjartaáfallið og álag á einstak-
linginn má því ekki vera mjög mik-
ið. Þessi endurhæfing fer fram á
bráðadeildum sjúkrahúsanna og
göngudeildum í tengslum við
sjúkrahúsin. Á öðra stigi fara sjúk-
lingar yfirleitt í endurhæfingu á
Reykjalund eða á HL-stöðina í
Reykjavík, og tekur það um 4-8 vik-
ur. Á þeim tíma má fara að auka
álag á hjarta og hin eiginlega þol-
þjálfun hefst. Miðað er að því að
auka þrek einstaklingsins að því
marki að hann geti orðið virkur
þátttakandi í hinu daglega lífi aftur,
einnig er veitt fræðsla um sjúkdóm-
inn og hvernig hægt er að bregðast
við áhættuþáttum. Þriðja stig er
viðhaldsstig og varir það út lífið.
Það er mikilvægt fyrir hjartasjúk-
linginn að viðhalda því þreki sem
búið er að byggja upp, breyta lífsstíl
sínum ef þarf og hindra þannig að
sjúkdómurinn versni.
Forvarnagildi hreyfingar
Það sem skiptir máli til að ná
fram heilsubætandi áhrifum þjálfun-
ar er hversu mikil orkueyðslan er í
heild yfir vikuna. Við getum náð
fram heilsusamlegum áhrifum
hreyfingar með nokkram stuttum
þjáífunartímum yfir daginn. Fyrir
einstakling sem er með lítið þrek
getur verið of erfitt að fara í klukku-
tíma göngu. Til að fá fram heilsu-
bætandi áhrif þjálfunar þarf ein-
staklingur að brenna um það bil 700-
2000 kcal á viku í þjálfun. Þetta
samsvarar t.d. röskri göngu í 30
mínútur eða meira á dag. Margir
einstaklingar, sem era ekki vanir að
hreyfa sig mikið, era ekki spenntir
fyrir þjálfun sem krefst þess að þeir
þreytist og svitni eftir þjálfunartím-
ann. Þá getur verið hentugt að byrja
með því að auka hreyfingu í daglega
lífinu. Við eyðum jafn mörgum kcal
á dag með því að fara margar stutt-
ar ferðir yfir daginn (eins og t.d. að
ganga stigana, ganga til vinnu, vinna
í garðinum eða fara í kvöldgöngu)
eins og að fara í miðlungs erfiðan
leikfimitíma og það gefur okkur
sömu heilsubætandi áhrifín. Ef
gengið er rösklega í þessum ferðum,
næst einnig að auka þrekið.
Fyrir óþjálfaða einstaklinga og
hjartasjúklinga er ganga sú þjálfun
sem hentar flestum. Ef fólk er óvant
að hreyfa sig er gott að byrja með
stuttum göngum, t.d. 10-15 mínútur
tvisvar til þrisvar á dag. Síðan er
æskilegt að lengja gönguna daglega
og takmarkið getur verið 30-40 mín-
útna löng ganga, helst daglega. Þeg-
ar þjálfað er, er best að ganga ró-
lega í nokkrar mínútur til að leyfa
líkamanum að hitna og liðkast. Síð-
an á að ganga rösklega, þannig að
við hitnum, finnum fyrir léttri mæði
og léttum svita. Álagið á að vera
þægilegt, okkur á að líða vel á með-
an við þjálfum. í lok þjálfunar er
gott að ganga hægar í nokkrar mín-
útur til að hjartsláttur og blóðþrýst-
ingur nái að lækka rólega. Það er
mikilvægt að áreynslan í þjálfuninni
sé þægileg. Mjög kröftug þjálfun
getur gert meira ógagn en gagn fyr-
ir þá sem era í slöku líkamlegu
formi eða era með einhver sjúk-
dómseinkenni. Meiri líkur era þá á
álagseinkennum frá vöðvum og lið-
um og einnig óæskilegum einkenn-
um frá hjarta.
Það að regluleg hreyfing sé holl
era alls ekki ný vísindi. Því til stað-
festingar vil ég enda á því að vitna í
orð Hippókratesar, sem mælti eitt-
hvað á þessa leið:
„... ef við fáum hæfilega hreyf-
ingu verðum við heilbrigðari,
þroskumst betur og eldumst hægar,
en ef við lifum kyrrsetulífi verður
líkaminn viðkvæmari fyrir sjúkdóm-
um, þroskast verr og eldist hraðar."
Höfundur er yfírsjúkraþjálfari á
endurhæfingardeild Landspítala og
lektor við námsbraut í sjúkraþjálfun
við Háskóla fslands.
KIRKJUSTARF
Sjávarútvegsráðherra prédikar í
sjómannamessu í Bústaðakirkju
Á sjómannadaginn verðm- sjó-
mannamessa í Bústaðakirkju kl. 11
árdegis. Ræðumaður verður Ámi M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Tveir sjómenn, þeir Birgir Guðjóns-
son á Bæjarfélli og Steindór Ander-
sen á Iðunni, annast bæna- og ritn-
ingarlestra.
I messunni verður flutt tónverk
Sigfúsar Halldórssonar sem hann
nefnir Þakkargjörð. Þetta tónverk
samdi Sigfús og tileinkaði íslenskri
sjómannastétt. Sigfús hefur samið
margar perlur dægurlaga en í verk-
um hans búa einnig sálmar og trúar-
leg verk og era mörg þeirra tengd
lífi og starfi íslenskra sjómanna.
Organisti kirkjunnar, Guðni Þ. Guð-
mundsson, hefur útsett tónverkið
Þakkargjörð fyrir orgel og kór. Fyr-
ir messu munu organisti og kór
flytja nokkur laga Sigfúsar.
Á undanfómum áram hefur mikill
fjöldi fólks sótt sjómannamessur í
Bústaðakirkju og sjómenn og aðrir í
störfum tengdum sjómennsku og út-
gerð flutt stóhæðu dagsins. Það er
mikið gleðiefni að fá nú í prédikunar-
stól á sjómannadegi nýjan sjávarút-
vegsráðherra, þann mann er stýrir
málefnum þeirra er hafsins vegu
fara.
Bústaðakirkja og söfnuður hennar
áma íslenskum sjómönnum og fjöl-
skyldum þeirra heilla og blessunar
Guðs og býður þau velkomin til sjó-
mannamessunnar.
Pálmi Matthíasson, sóknarprestur.
Sj ómannadagurinn
í Grafar-
vogskirkju
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Grafar-
vogskirkju á sjómannadaginn kl. 11
árdegis. Sjómenn munu taka virkan
þátt í guðsþjónustunni, lesa ritning-
arlestra og Einar Pálmi Matthíasson
flytur hugvekju.
I fjarveru kórs Grafarvogskirkju,
sem er í tónleikaferð á Italíu, munu
eldri félagar í Karlakór Reykjavík-
ur syngja við guðsþjónustuna, undir
stjórn Kjartans Sigurjónssonar org-
anista. Undirleik annast Bjami Þ.
Jónatansson. Sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir þjónar fyrir altari.
Að kvöldi sjómannadagsins verða
tónleikar Kvennakórs Reykjavíkur,
stjórnandi Sigrún Þorgeirsdóttir,
einsöngvarar er Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Þórhildur Björnsdóttir pí-
anóleikari annast undirleik. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30.
Grafarvogskirkja.
S
Vorferðalag Oháða
safnaðarins
ÁRVISSA vorkvöldferðalag Kvenfé-
lags Óháða safnaðarins verður
mánudagskvöldið 7. júní. Keyrt
verður að Garði og Utskálakirkja
skoðuð undir leiðsögn Reynis
Sveinssonar. Kaffi verður drukkið í
Virkinu í Sandgerði. Þetta verður
skemmtilegt ævintýri. Farið verður
stundvíslega kl. 20 frá Kirkjubæ
(safnaðarheimili). Þátttaka tilkynnist
til Esterar í síma 553 0409 eða Hall-
dóra í síma 566 6549. Takið með ykk-
ur vini og vandamenn. Allir vel-
komnir.
Safnaðar- og fjöl-
skylduhátíð í
Hallgrímskirkju
SAFNAÐAR- og fjölskylduhátíð
verður sunnudaginn 6. júní í Hall-
grímskirkju. Hátíðin hefst kl. II með
fjölskylduguðsþjónustu á Hallgríms-
torgi. Klukknaspil mun hljóma frá
turni kirkjunnar. Blásarakvartett
leikur. Bama- og unglingakór Hall-
grímskirkju og Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja og prestar kirkj-
unnar þjóna.
Eftir stutta útiguðsþjónustu (ef
veður leyfir) verður grillað undir
kirkjuveggnum og farið í leiki með
börnunum. Kaffi verður í safnaðar-
heimilinu. Eftir stutt kaffi- og mat-
arhlé verður tónlistarflutningur í
kirkjunni undir stjórn Harðar
Áskelssonar.
Safnaðardagur sem þessi er nýj-
ung í safnaðarstarfi Hallgríms-
kirkju, en það er efnt til hans til að
efla safnaðarvitund safnaðarins og til
þess að fólk fái gott tækifæri til að
hittast, tala saman og eiga góða
stund í og við kirkjuna. Hallgríms-
torgið setur mikinn svip á umhverfi
kirkjunnar og er tilvalið svæði til að
safnast saman á og eiga tilbeiðslu-
og gleðistund.
Að kveldi sama dags kl. 20 hefst
Kirkjulistahátíð Hallgrímsldrkju með
afar áhugaverðri dagskrá, en hún
mun standa frá 6. júní til 29. ágúst.
Sumartími Sel-
tj arnarneskirkj u
I SUMAR verða messur í Seltjarn-
ameskirkju kl. 20 á sunnudagskvöld-
um. Við ætlum að eiga notalegar
kvöldstundir saman í lofgjörð og
bæn. Nú gefst fólki kostur á því að
njóta helgarinnar með fjölskyldunni
og vinum og ljúka góðri helgi með
því að koma saman til guðsþjónustu
á sunnudagskvöldi. Er ósk okkar og
von að þessi tími reynist sem flestum
góður og við hlökkum til að sjá ykk-
ur sem allra flest. Með sumarkveðju.
Starfsfólk Seltjarnarneskirkju.
Heimsókn og
hjónanámskeið
í Krossinum
FERN Nelson frá Bandaríkjunum
verður gestur í Krossinum við Hh'ða-
smára í Kópavogi á samkomu á
sunnudaginn kl. 16.30. Fern Nelson
er eftirsóttur og áhugaverður biblíu-
kennari sem allir hafa gaman af að
fræðast af.
Krossinn gengst fyrir hjónanám-
skeiði í húsakynnum sínum við Hlíð-
arsmára 7.-9. júní. Námskeiðið verð-
ur mánudags-, þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld frá kl. 20.22. Kennari
á námskeiðinu verður Fem Nelson
frá Bandaríkjunum. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Helgistund fyrir
Inner-Wheel konur kl. 16. Umsjón
Lilja Hallgrímsdóttir, djákni. Einar
Öm Einarsson leikur á orgel.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi.
Vitnisburðarsamkoma kl. 14 í hönd-
um Ingigerðar og Egils. Þri: Bæna-
stund kl. 20.30. Mið: Samverastund
unglinga kl. 20.30.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.