Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 68
' 68 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Faðir og
sonur
Persónuleiki
(Karakter)________________
II r a m a
★★vá
Framleiðandi: Laurens Geels. Leik-
stjórn og handrit: Mike Van Diem.
Byggt á skáldsögu Ferdinand Bor-
dewijk. Kvikmyndataka: Rogier
Stoffers. Aðalhlutverk: Jan Decleir,
Fedja Van Huet og Betty Schurmaan.
(105 mín.) Holland. Skífan, maí 1999.
Bönnuð innan 16 ára.
í ÞESSARI hollensku kvikmynd,
sem byggð er á sígildri skáldsögu
eftir kunnan hollenskan höfund,
segir frá átökum
metnaðarfulls
ungs manns og
föður hans. Piltur-
inn hefur alist upp
í fátækt hjá móður
sinni eftir að hún
afneitaði föður
drengsins sem er
valdamikill og
harðbrjósta auð-
Kvikmynd þessi vann til
Óskarsverðlauna sem besta erlenda
■ myndin árið 1997. Þrátt íyrir þá við-
urkenningu getur hún ekki beinlínis
talist meistaraverk. Sagan, sem
minnir um margt á skáldskap Dic-
kens, lýsir tilraunum piltsins til að
hefja sig upp fyrir stéttarstöðu sína.
Samskipti persónanna eiga jafn-
framt að einkennast af sjúklegum
metnaði og öfgafullum skapgerðum,
en einhvern veginn gengur þetta
allt saman fyrir sig án þess að vekja
nein stórkostleg hughrif. En utan
við það er kvikmyndin áhugaverð
samskiptasaga sem bundin er í
! vandaða umgjörð
Heiða Jðhannsdóttir
FOLK I FRÉTTUM
DMX og DJ Matthews á Kaffi Thomsen
Verða þeir í
jakkafötum
með bindi?
FÉLAGARNIR DJ Matthews og
Edward Upton sem kallar sig DMX
Krew léku á Kaffi Thomsen í gær-
kvöldi og spila aftur í kvöld. „Ég vissi
ekki að við yrðum að spila tvisvar á
sama staðnum," segii- DMX. „Það
verður dálítið skrýtið." Ekki furða að
honum fínnist það dálítið furðulegt
því félagarnir eru vanir því að vera á
ferð og flugi í spilamennsku og sjald-
an á sama staðnum tvö kvöld í röð.
„Ég spila rafmagnaða tónlist," seg-
ir DMX. „Ef fólk þekkir tónlist mína
frá Rephlex [útgáfufyrirtækinu] þá
er það ekki tónlistin sem ég leik hér.
Ég ætla ekki að fara út í popptónlist-
ina heldur leggja áherslu á danstón-
list. Það verður dansað. Þetta verða
ekki tónleikar heldur dansstemmn-
ing.“
Hvað er í plötustaflanum?
„Ég veit ekki hvað ég spila því ég
er ekki með plötustaflann," segir DJ
Matthews og yppir öxlum. „Ég
pakka þeim alltaf niður kvöldið áður
og þegar ég mæti á staðinn man ég
aldrei hvaða plötur eru í bunkanum.
Stundum kemur líka fyrir að ég
flokki þær kvöldið áður og setji svo
rangan bunka í töskuna. En ég er
með mikið af nýjum plötum frá
Rephlex, nokkrar eldri og líka allt
aðrar piötur.“
DMX kom einnig til landsins um
jólin og segist hafa skemmt sér vel.
„Ég hitti Björk sem var mjög vina-
leg, varð virkilega
drukkinn, dansaði mik-
ið, fór til Akureyrar
þar sem ég spilaði fyrir
um það bil sex stúlkur,
kynntist heitum hver-
um og snjó, spilaði
með Einari Erni á
Kaffi Thomsen, og fór aftur heim.“
En hvað ætla þeir að gera af sér í
þetta skiptið? „Ég veit það ekki,“
svarar DMX en þeir félagar verða
hér fram á þriðjudagsmorgun.
„Kannski keyrum við út í sveit og
slökum á. Það er víst enginn snjór
núna.“
Ekki gróðafyrirtæki
Rephlex-útgáfufyrirtækið þykir
framsækið, - hver er stefna fyrirtæk-
isins? „Framsækið?" segir DMX.
„Jú, ætli það ekki. Það er í eigu
tveggja náunga frá Comwall, annar
þeirra er Aphex Twin. Stefnan er að
gefa út áhugaverða tónlist. Hún þarf
ekki að vera teknó, aðeins forvitnileg,
eitthvað nýtt.“
„Plötur sem okkur myndi langa til
að kaupa ef við sæjum þær úti í búð,“
segir DJ Matthew. „Við þurfum ekki
að fá demó-upptökur og kafa ofan í
það hvort við græðum 6 milljónir á
útgáfunni. Við gerum bara nokkur
eintök og dreifum til vina okkar. Ef
þeim líkar tónlistin þá er það gott
mál, ef ekki þá Iíkar okkur tónlistin
svo það skiptir ekki máli.“
„Við rekum ekki útgáfuna með
gróðasjónarmið í fyrirrúmi,“ segir
DMX. Það eru skrýtin viðskipti, seg-
ir blaðamaður. „Ég er ekki viss um
það,“ segir DJ Matthews. „Við fáum
allir eitthvað í gogginn og þak yfir
höfuðið," bætir DMX við. „Við fáum
að ferðast og skemmta okkur og það
er það sem við viljum fá út úr lífínu.
Ef ég hefði 6 milljónir og þyrfti að
mæta í skrifstofúvinnu væri ég
óhamingjusamur. En þar sem ég á
svolítið af peningum þarf ég ekki að
ganga í jakkafötum eða mæta á skrif-
stofu, aldrei nokkmrn tíma.“
Sniðinn úr
Miami Vice
DMX lítur í kringum sig á ritstjóm
Morgunblaðsins og bætir við: „Þetta
er það næsta sem ég hef komist
skrifstofu í langan tíma.“
„Ég vai- að hugsa um að mæta í
jakkafötum í vinnuna um daginn,
bara til að sjá svipinn á fólki,“ segir
DJ Matthews. „Úm daginn fór ég
fínt út að borða með foreldrum mín-
um og þurfti að mæta skikkanlega til
fara. Ég fór í einu jakkafótin sem ég
átti og sprakk úr hlátri þegar ég
skoðaði sjálfan mig í spegli. Ég var
eins og sniðinn úr Miami Vice.“
„Ég hef ekki sett upp bindi síðan
ég hætti í skóla,“ segir DMX og hlær.
„Málið er,“ heldur DJ Matthews
áfram, „að við erum lukkulegir með
það sem við emm að fást við.“ „Ef
allir fylgdu sannfæringu sinni og
gerðu það sem þá langaði til þá gengi
allt betur,“ segir D J Matthews. Hon-
um verður litið á Morgunblaðið á
borðinu fyrir framan sig, bendir á
mynd af leiðtogum Ku Klux Klan og
segir brosandi: „Fyrir utan fólk eins
og þetta.“
Þið verðið þá ekki í jakkafötum um
helgina. „Ég held ekki,“ svarar
DMX. „Það yrði þá bara í gamni.
Persónulega kann ég best við mig í
hvítu.“ Honum verður litið á myndina
í blaðinu og bætii- við: „Ekki þó lök-
um.“
/TIGfe
v.
rj
-J-iV
V
<-J
ÍJJvsJA-fM'fAJiASi J JJJi VAJIJ
V
Stiga Bio-Chip
kurlari 1400W
Stiga Turbo
sláttuvéi
með grashirðipoka
| Góð fyrir heimili
Stiga
rafmagnsorf 450W
Stiga Tornado i
sláttuvéi mefi drifi
Fyrir sumarbústaða-
eigendur, baejarfélög
og stofnanir
Stiga Ts
rafmagns- *
limgerfiisklíppur
360W
Stiga EL33
rafmagns-
sláttuvél 1000W
Fyrir litla garöa
Stiga Garden
aksturssláttuvél
Einstök fyrir
sumarbústaöaeigendur
og stofnanir.
Stiga
mosatætari
325W
Sölustaöir um allt land
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3, NORÐANMEGIN • KÓPAVOGI • SÍMI 564 1864 • FAX 564 1894
Vattjakkarnir komnir aftur
Pantanir óskast sóttar. Nýjar sumarvörur frá
WOLSEYog BARBOUR
BRESKA BÚÐIN
Laugavegi 54. Sími 552 2535.
r ;
IXIýkomið mikið ú
og fallegum herraskóm
Bí HAPPY
St. 41-46.
Verð frá kr. 6.995