Morgunblaðið - 15.09.2000, Page 14

Morgunblaðið - 15.09.2000, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formaður Evrópusambands ljósvakamiðla í ríkiseigu var gestur Ríkisútvarpsins Miðlar sem eru í eigu al- mennings tryggja gæði og menningarlega fíölbreytni Bob Collins, útvarpsstjóri írska ríkisútvarpsins og formaður sjónvarps- nefndar Evrópusambands ljósvaka- miðla í ríkiseigu (EBU), var gestur Ríkis- útvarpsins á dögunum. AÐ EBU standa systur- stofnanir Ríkisútvarpsins í löndum Evrópu og Bob Collins, formaður sjón- varpsnefndar EBU og útvarpsstjóri írska ríkisútvarpsins, segir að sam- tökin gegni þýðingarmiklu hlutverki við að miðla efni milli þeirra og marka sameiginlega stefnu fyrir al- menningssjónvarp, eins og hann kýs að kalla starfsemi sjónvarpsstöðva sem ekki eru í einkaeigu. „EBU er ætlað að breiða út al- menningssjónvarp og -útvai'p og gangast fyrir því að ljósvakamiðlar í eigu almennings í álfunni hafi með sér samvinnu og skiptist á efni. I gegnum EBU fara t.d. fram dagleg fréttaskipti og umsjón með sam- vinnu um sjónvarpssendingar frá stórviðburðum á borð við Ólympíu- leikana," segir Bob Collins. „EBU stendur fyrir og stuðlar að alls konai’ samvinnuverkefnum svo sem gerð heimildarmynda, bamaþátta, tón- listarþátta og leikinna mynda og er mjög stór aðili á því sviði á evrópsk- um sjónvarpsmarkaði. EBU á einnig í samstarfi við Evrópusambandið og Evrópuráðið um mótun stefnu í ljós- vakamiðlun og ég held að samtökin hafi haft mikla þýðingu fyrir ljós- vakamiðlun í álfunni undanfarin 50 ár, ekki síst fyrir smærri þjóðir og meðalstórar. Ég held að þeirra áhrifa muni áfram gæta í framtíð- inni.“ Bob Collins vill tala um ljósvaka- miðla í almannaeigu fremur en í rík- iseigu en það orðalag finnst honum hafa á sér austur-evrópskt yfirbragð og gefa til kynna áhrif stjómvalda á dagskrá og fréttaflutning. Það eigi hins vegar ekki við heldur sé það hlutverk ljósvakamiðla í almennings- eigu að framleiða og miðla gæðaefni og standa að vönduðum fréttaflutn- ingi sem hafi hagsmuni almennings að leiðarljósi en hvorki hagsmuni pólitíski-a samtaka né fjárhagslega hagsmuni eigenda sinna. Meðal að- ildarfélaga EBU er breska ríkis- sjónvarpið BBC og aðrar þekktustu sjónvarpsstöðvar álfunnar. Collins segir að sjónvarpsáhorf- endur og útvarpshlustendur njóti af- raksturs samstarfsins á vettvangi EBU á margvíslegan hátt, t.d. í sam- hæfðri fréttaþjónustu þar sem aðild- arstöðvar skiptast daglega á fréttum og samhæfa fréttaöflun þegar um stórviðburði eins og átök- ________ in í Kosovo og Tsjetsjníu er að ræða. Einnig haldi samtökin utan um sam- starf í tengslum við stór- ________ viðburði á sviði íþrótta og menningar, svo sem Ólympíuleikana. Undanfarin ár hefur orðið gífurleg þróun á sviði fjarskiptatækni, sem virðist m.a. vera að leiða til samruna Nets, síma og sjónvarps. Eiga al- menningsljósvakamiðlar sér framtíð í ljósi þeirrar þróunar? „Ég held að enginn viti í raun hver þróunin á eftir að verða á næstu fimm árum eða tíu árum varðandi sjónvarp, gagnvirkni, Net og nýja tækni,“ segir Bob Collins. „Það eina sem menn vita er að umhverfið á eft- ir að taka róttækum breytingum. En ég held að ákveðnir hlutir eigi ekki eftir að breytast: í fyrsta lagi á innihald dagskrárefnisins eftir að verða lykilatriði og almennings- sjónvarp er aðferð til að tryggja gæði þess. Annað er að tækniþróun- in hefur aukið og ýtt undir þrönga og sérhæfða umfjöllun um einstök áhugasvið fólks. Vissulega hafa allir sín áhugamál og sérstöku hagsmuni en flestir hafa líka almennan áhuga á veröldinni og umhverfi sínu. Ég held að á því sviði eigi almannasjónvarp framtíð fyrir sér í því skyni að tryggja fjölþættara framboð af efni en einkaaðilar gera og fréttir, sem eru hlutlausar og ekki háðar pólitísk- um eða efnahagslegum hagsmunum. Við lifum í hnattrænu samfélagi en erum líka hluti af smæina samfélagi þar sem við eigum heima. Fólk mun vilja efni sem tengist lífi þess og fjall- ar á þeirra eigin tungumáli um þeirra heim og þeirra menningu. AI- mannasjónvarp er líklegra en einka- fjölmiðlar til að leggja áherslu á þessa þætti og tryggja framboð á efni af þessu tagi. Einkafjölmiðlunin hefur í vaxandi mæli hnattrænar áherslur og stærstu fyrirtækin á því sviði eru í eigu fjölþjóðlegra samsteypa sem ekki sinna hinum einstöku samfélög- um á sama hátt og almenningssjón- varp getur gert og gerir.“ Bob Collins samsinnir þeirri út- leggingu á þessum orðum hans að hann sjái almenningssjónvarp fyrir sér sem samnefnara þjóðarvitundar í heimi hnattvæðingarinnar. „En almenningssjónvarp verður að taka breytingum í takt við það hvernig fjölmiðlaheimurinn breytist. Flestir ljósvakamiðlar og dagblöð eru á Netinu og við vitum ekki hvernig það mun þróast en við vitum að það mun áreiðanlega breytast." Irska ríkissjónvarpið, sem Bob Collins, veitir forstöðu rekur fjórar útvarpsstöðvar, fjórar hljómsveitir og þrjár sjónvarpsstöðvar og sendir ein út á gelísku en hinar að mestu leyti á ensku þótt írskir þættir séu einnig sýndir þar en þá eru enskir textar í boði. Vandi á höndum vegna örtvax- andi hnattrænnar fjölmiðlunar ,Á írlandi tala allir alheimstungu- málið ensku og en hluti landsmanna hefur gelísku að móðurmáli. Það samfélag er reyndar mun fámennara ____:_____ en hið íslenska. Með rekstri sjónvarps- stöðvarinnar fyrir þá sem eiga sér gelísku að __________ móðurmáli eigum við hlut að því að halda gel- ísku við sem lifandi tungumáli sem fólk getur tjáð sig á. Mér skilst að svipað viðhorf eigi við um Ríkisút- varpið og íslenskt mál og staða . þeirra gagnvart ásókn hnattvæðing- ar fjölmiðlunarinnar er svipuð og okkar hvað þetta varðar. Við leggj- um áherslu á að fólk sjái greinilega að þetta sé írsk stöð og að hún sé auðþekkjanleg fyrir þær sakir. En okkur er sá vandi á höndum, eins og mörgum öðrum smærri almannaljós- vakamiðlum, að vegna stærðarinnar og hins öra vaxtar í hnattrænni fjölmiðlun verður okkur sífellt erfið- Varðstaða um tungumál og samfélag Morgunblaðið/Jim Smart Bob Collins, útvarpsstjóri írska ríkisútvarpsins. ara að afla fjár til rekstrarins. Kostn- aðurinn fer hraðvaxandi og við höf- um ekki sama afl og fjölþjóðlegu aðilarnir, sem við þurfum að keppa við. En við sendum út dagskrá með tónlistarþáttum, heimildarmyndum, þáttum um staðbundin efni og ýmis- legt annað sem enginn annar mundi sinna. Alveg eins og enginn annar en RÚV mundi gera efni um íslensk sérmál fyrir Islendinga." Gelíska stöðin hefur þó ekki starf- að nema í um fjögur ár og sendir út í um 6 klst. á dag en Collins segist vonast til að útsendingartíminn auk- ist. Ein fjögurra útvarpsstöðva írska ríkisútvarpsins sendir einnig út á gelísku og leggur áherslu á menning- ar- og heimildarþætti og leiklist. Líkt og hér á landi er starfsemi ríkisútvarpsins á Irlandi fjármögnuð með afnotagjöldum og auglýsinga- tekjum í bland og standa afnota- gjöldin undir um 24% heildartekn- anna. Hver notandi greiðii- um 70 írsk pund eða um 6.500 krónur ís- lenskar á ári. Auglýsingatekjur hafa fengið vaxandi þýðingu fyrir fjáröfl- un stofnunarinnar undanfarið og kostun hefur þar nokkuð rutt sér til rúms . Tekjur vegna kostunar nema um 1,5% af heildartekjunum. Collins segist búast við að kostun aukist eitthvað, en ekki að ráði, enda gæti andstöðu frá áhorfendum við kostaða þætti og samblöndun auglýsinga og dagskrárefnis. Aðspurður segir hann að umræður um réttmæti þess að fjármagna reksturinn með afnotagjöldum séu ekki háværar á írlandi en þó beri á þeim. „Ég hef á tilfinningunni að flestir áhorfendur vildu gjarnan greiða meira því 6.300 krónur er ekki mikið fé, um 20 krónur á dag, fyrir fjórar sjónvarpsstöðvar, fjórar útvarps- stöðvar og fjórar hljómsveitir. Fólk fær mikið fyrir peningana. En þetta er viðkvæmt. Fólk segir í auknum mæli: „af hverju ætti ég að borga fyrir þetta?“ en af hverju ætti fólk að þurfa að borga fyrir menntun og heilbrigðisþjónustu? Það er mikil- vægt hverju samfélagi að eiga að- gang að vandaðri fréttaþjónustu og dagskrárgerð sem er ekki bundin af öðru en hagsmunum almennings. Sums staðar hefur verið farin sú leið að fjármagna almannaljósvakamiðla með beinum ríkisfjárframlögum, t.d. í Hollandi, en vandinn við þá leið er hættan á auknum áhrifum og ítökum ríkisins á starfsemina og innihald dagskrárinnar. Þar á milli ætti að halda eins mikilli fjarlægð og mögu- legt er.“ Gæðaefni á jaðarinn? Collins segist ekki telja að áhrifa aukinna auglýsingatekna og kostun- ar gæti í dagskrárgerðinni með bein- um hætti en hins vegar sé ekki vafi á að þróun samkeppninnar hafi haft ýmiss konar áhrif, svo sem á efnisval. „Það eru alls ekki slæm áhrif. Á ár- unum 1960-1970 hafði almenningur ekki um aðra dagskrá að velja en þá sem við bárum á borð og oft var hún stórkostlega góð en fólk hafði ekki val. Nú hefur það val og maður verð- ur að virða það og bregðast við því hvernig fólk velur enda væri þetta til einskis ef ekki væru _______________ áhorfendur. En hættan við sam- keppnina er sú að úrvalið verði minna og gæðaefni þokist út á jaðrana, barnadagskráin gjaldi fyrir það, fréttatímar færist aftar á kvöldin og skemmtiefni verði allsráðandi á vin- sælasta tíma. Þetta er að koma fram á Bretlandi þar sem BBC og ITN hafa þokað fréttatímum sínum aftur til klukkan 10 og 11 á kvöldin. Á okk- ar fyrstu rás höfum við 90 mínútur af fréttum á hverju kvöldi, hálftíma fréttaskýringarþætti þrisvar í viku og mikið af heimildarmyndum. Hættan er að þetta muni þoka til á næstu árum og skemmtiefni verði yf- irgnæfandi. En við verðum að halda stuðningi áhorfenda með því að halda jafnvægi og treysta því að fólki sé umhugað um innihald og gæði dagskrárinnar sem borið er upp á.“ Irska ríkissjónvarpið hefur aðeins átt innlendan keppinaut í einkaeigu síðastliðin 2 ár en þá hóf einkastöð í eigu kanadísks fyrirtækis starfsemi á grundvelli starfsleyfis sem veitt hafði verið þremur árum fyrr. Ein einkaútvarpsstöð nær til landsins alls og um 20 stöðvar senda út staðbundið útvarpsefni, auk fjölda ólöglegra útvarpsstöðva í borgunum. Bob Collins segir að útvarpsstöðvar ríkisins hafi að jafnaði um 50% áheyrenda en stöðvar ríkissjón- varpsins hafi að jafnaði um 54% áhorfenda. 45% heimila í landinu hafa einnig áskriftarsjónvarp og 75% áhorfenda horfa reglulega á bresku stöðvarnar, en það á sér mikla hefð á írlandi, allt frá því áður en þarlent ríkissjónvarp tók til starfa í upphafi sjöunda áratugarins. Gervihnatta- sjónvarp sæki einnig á og að auki hafi dregið úr samkeppni vegna áhrifa Netsins, sem einnig boði nýja samkeppni fyrir sjónvarp á ýmsum sviðum. Sexfalt dýrara að senda út EM 2008 en EM2004 Stórviðburðir á sviði íþrótta, svo sem Evrópu- og heimsmeistaramót í knattspyrnu og Ólympíuleikar, eru sendai- út af ríkissjónvarpsstöðvum í löndum EBU og Collins var spurður hvort hann teldi möguleika á að rík- isreknu stöðvarnar ættu möguleika á að halda forgangi að slíku efni til frambúðar í ljósi þess að kostnaður við kaup á útsendingarrétti er stöð- ugt að vaxa. „Mér þætti leitt ef þess- ir stóru íþróttaviðimrðir færu yfir á einkastöðvarnar. Við höfum sýnt frá þessum atburðum á einni af rásum okkar og höfum ekki þurft að þoka til fréttum eða öðru efni. Sumir segja að það sé ekki hægt að réttlæta það að nota afnotagjöldin til að kaupa sýningarrétt á þessu efni en ég er því ósammála. íþróttir eru hluti af menningunni. En þær hafa verið að viðskiptavæðast í vaxandi mæli eins og sést af því að ítalska knattspyrnu- liðið Inter Milan tapaði rúmum millj- arði íslenskra króna á því að komast ekki í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu á dögunum. Þetta er veruleikinn í íþróttum og verðið sem þarf að greiða fyrir sýn- ingarréttinn fer hraðvaxandi.“ Hann nefnir að útsendingarrétt- urinn frá Evrópumótinu í knatt- spyrnu vaxi nú hröðum skrefum og sjónvarpsstöðvar þurfi að greiða 6 sinnum hærri fjárhæðir fyrir réttinn að EM 2008 en fyrir EM 2004 sem þegar hefur veirð samið um. RÚV virkt í stefnumótun Hvað hefur lítil ríkissjónvarpsstöð eins og RÚV fram að færa í sam- starfi á vettvangi EBU? „Það er vissulega takmarkað hvað lítil lönd eins og ísland og írland geta lagt af mörkum en við borgum hlutfallslegan kostnað og stundum hlutfallslega meira en stærri lönd. Við leggum til efni og fréttir og t.d. þegar atburður á sér stað á borð við leiðtogafundinn í Reykjavík gegnii’ RÚV lykilhlutverki fyrir EBU og sjónvarpsstöðvar í allri álfunni. RÚV hefur líka verið virkt í starfi og stefnumótun EBU frá upphafi og virkur þátttakandi í dagskrárgerð. Það er mikilvægt fyrir okkur að ná __________ til allrai' álfunnar og hvað varðar stefnumót- un hefur RÚV haft áhrif langt umfram það sem stærð landsins gefur til kynna." Collins var gestur Ríkisútvarps- ins/Sjónvarps á hátíðisdegi þegar starfsemi sjónvarps og útvarps var formlega sameinuð undir einu þaki eftir áratuga undirbúning og fram- kvæmdir. Hann sagði að það leyndi sér ekki að forsvarsmenn stofnunar- innar væni stoltir og fegnir að losna úr gamla húsinu og komast í gott hús þar sem aðstæður væru nútímaleg- ar. Einnig fylgdu nábýli útvarps og sjónvarps ótvíræðir kostii- og hægt væri að ná gagnlegri samvinnu á ýmsum sviðum og auka samheldni í starfsemi stofnunarinnar. Andstöðu gætir við kostaða þætti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.