Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Það gengur betur
en ekki nógu vel
ÚTKOMA bókar
minnar „Hið sanna
ástand heimsins“ í
Danmörku varð
kveikja mikillar um-
ræðu. Ótrúlega marg-
ir voru ósáttir við að
ástand umhverfisins
hefði batnað. Því kom
'Jfekki á óvart að fá
svipuð viðbrögð á ís-
landi þegar Stein-
grímur J. Sigfússon,
gagnrýnir bók mína
og vísar í umræðuna í
Danmörku. „Niður-
stöður hans og að-
ferðafræði hafa enda
sætt mikilli gagnrýni heima fyrir í
Danmörku og hvorugt jafnvel þótt
svaravert..." segir hann. í því
framhaldi skrifar hann tvær grein-
ar til þess að gagnrýna bók mína.
Eftir umræðuna í Damörku
standa niðurstöður bókarinnar enn
óhaggaðar. Greinar Steingríms
breyta engu þar um.
í Ijósi umræðunar í Danmörku
þekki ég vel þær aðferðir sem
gagnrýnendur bókarinnar nota og
Steingrímur hefur nú tekið upp.
Boðað er að „afar litlar innstæður
séu fyrir ýmsum fullyrðingum höf-
undar“ eða „afar yfírborðslegri
röksemdafærslu“ þrátt fyrir að
bókin sé afar vel studd með á
sjöunda hundrað tilvísunum til op-
inberra talna. Steingrímur dregur
gagnrýni sína saman í sex liði. Það
gefur betra færi til
andmæla. Ég mun hér
á eftir sýna fram á að
Steingrími skjátlast í
öllum sex liðunum.
1. Fyrst nefnir
Steingrímur vandamál
tengd hungursneyð.
Hann telur rangt að
helsti vandinn varð-
andi matvælaframboð
hafi verið leystur, sé
litið hnattrænt á mál-
ið. Hann vísar í að 1,2
milljarðar fólks séu
vannærðir samkvæmt
upplýsingum frá Al-
þjóðaheilbrigðsstofn-
uninni (WHO). Rökin gegn þessu
eru tvíþætt. í fyrsta lagi ruglar
Steingrímur saman vítamínskorti
og hungri, þ.e. skorti á mat. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Samein-
uðu þjóðunum hefur neysla hita-
eininga á mann í þróunarlönd-
unum aukist úr 1932 hitaeiningum
árið 1961 í 2650 árið 1997. í öðru
lagi segir í bókinni að ástandið fari
batnandi, ekki að það sé nógu gott.
Vítamínskortur er að sjálfsögðu
vandamál en auðveldari úrlausnar
en raunverulegur skortur á hita-
einingum. Hlutfall sveltandi fólkst
í þróunarlöndunum hefur fallið úr
35% árið 1970 í 18% árið 1996 og
SÞ meta það svo að þetta hlutfall
verði komið í 12% árið 2010 þrátt
fyrir fólksfjöldaþróun! Jafnframt
leggja SÞ, Alþjóðabankinn og
Bókargagnrýni
„Skæruliðataktík“ er
ágæt til þess að halda
við tálsýn um kjarn-
mikla gagnrýni, segir
Björn Lomborg, en á
lítið skylt við lýðræðis-
lega umræðu.
IFPRI (International Food Policy
Recearch Institute) áherslu á að
framboð fæðu á mann muni auk-
ast. Með öðrum orðum: Ástandið
er að batna.
2. Næst nefnir Steingrímur
vatnsskort. Hann telur mig ekki
taka tillit til ójafnrar dreifmgar
úrkomu, þrátt fyrir að úrkoma sé
að meðaltali næg. í bókinni stend-
ur: „...dreifist úrkoman ekki jafnt
niður á alla jörðina. í nokkrum
löndum, s.s. á Islandi, eru u.þ.b. 2
milljónir lítra vatns á hvern íbúa
daglega en í Kúvæt eru aðeins 283
lítrar á mann á dag. Spurningin
er; hvenær hefur eitthvert land
ekki nóg vatn.“ (bls. 139).
Hér skiptir máli að bætt vatn-
snýting landbúnaðar (sem notar
69% af ferskvatni í heiminum) get-
ur sparað mikið vatn. Það er talið
að áveitukerfi vannýti vatn um 60-
Björn Lomborg
80%. Og bætt vatnsnýting getur
minnkað vatnsþörf iðnaðar um 30
til 90%. (Sjá bls. 140). Þá er nú
hægt að gera einn rúmmetra af
söltu vatni að fersku vatni fyrir
einn dollara, sem vissulega gerir
vatn að dýrri auðlind en alls ekki
ónýtanlegri.
3. Þá er fjallað um gróðurhúsa-
áhrif. Steingrímur telur mig gera
of lítið úr gróðurhúsaáhrifum og
loftslagsbreytingum og að ég telji
að „Ríó-Kyoto-ferlið sé þá vit-
leysa...“ Aftur nei. Ég segi ekki að
Kyoto-samningurinn sé vitleysa en
hann er ekki ódýr. Ég geri ekki
lítið úr gróðurhúsaáhrifunum. Ég
efast um að rétt sé að nota mikið
fé til að fyrirbyggja þau áhrif ef
það er ódýrara að bregðast við
vandanum á annan hátt. Við getum
afstýrt hugsanlegum gróðurhúsa-
áhrifum og stjórnmálamenn geta
fengið atkvæði fyrir að segjast því
fylgjandi, en er gáfulegt að eyða
miklu nú ef hægt er að leysa vand-
ann fyrir minna fé síðar?
4. Hér tekur Steingrímur niður
fyrir sig. Takið eftir röksemda-
færslunni. „Þeir sem hafa áttað sig
á stærðargráðu auðæfa Bill Gates
annars vegar og heildarþjóðar-
tekna margra fjölmennra Afríku-
ríkja hins vegar vita svarið.“ Það
er rétt hjá Steingrími að Bill Gat-
es á mikið fé, en fræðir það okkur
um þróun ójöfnuðar? Nei - í bók-
inni segir að alþjóðleg tölfræði
sanni að hlutfallslega hefur kaup-
máttur fátækasta hluta jarðarbúa
ekki minnkað. Hlutfallslega hefur
fátækt minnkað örlítið en samtím-
is hafa fátækir í raun orðið 200%
ríkari. Ástandið hefur batnað þótt
við vildum gjarnan meiri jöfnuð.
5. Steingrímur gerir lítið úr að
betra sé að búa í borg en í sveit.
Hann notar eitt einstakt dæmi.
„Kofaþýrpingar undir ruslahaug-
um ... Manilla-borgar, sem heims-
byggðin fékk að sjá myndir af á
dögunum þegar tugir grófust und-
ir haugunum og fórust, voru lítið
sýnishorn.“
Enn á ný legg ég áherslu á að
þótt íbúar í fátækrahverfum stór-
borganna búi við slæmar aðstæður
væru aðstæður þeirra enn verri
byggju þeir í sveitunum. í borgum
er minna um malaríusmit, þar er
betri aðgangur að menntun og
heilsugæslu, betri aðgangur að
drykkjarvatni, betra skólplagna-
kerfi o.s.frv. Ég sýni fram ú að í
hnattrænu samhengi eru vandamál
tengd fátækt meiri í sveitum en í
borgum (sjá t.d. Naylor og Falcon,
1995, Is the Locus of Poverty
Changin for Foodpolicy? í „Food
Policy" vol 20,6 pp501-518)
6. Að lokum er ég gagnrýndur
fyrir að hafa ekki fjallað um
vandamál vegna þrávirkra líf-
rænna efna. Enn rangt. Ég fjalla
meðal annars um áhrif þeirra á
gæði sæðisfrumna karla og á
brjóstakrabbamein kvenna - í báð-
um tilfellum er svarið að þrávirk
lífræn efni auka ekki áhættuna.
Steingrímur hefur væntanlega
valið sex helstu gagnrýnisatriðin
sem hann fann. Þau stóðust ekki
rök. Haldi umræðan áfram líkt og
í Danmörku munu gagnrýnendur á
borð við Steingrím finna önnur at-
riði (væntanlega veigaminni og
óljósari). Slík „skæruliðataktík" er
ágæt til þess að halda við tálsýn
um kjarnmikla gagnrýni, en á lítið
skylt við lýðræðislega umræðu.
Steingrími skal samt þakkað fyrir
að hefja umræðuna og fyrir að
hafa gert gagnrýnina svo áþreifan-
lega að hún er auðvelt skotmark.
Höfunduriim er lektor við félagsvís-
indadeiid Háskólans íÁrósum og
höfundur bókarinnar „Hið sanna
ástand heimsins
mbl.is
Á nýjum Ólympíuvef mbl.is finnur þú allt það markverðasta um Ólympíuleikanna í Sydney 2000
Blaðamenn og Ijósmyndari Morgunblaðsins eru á staðnum og senda nýjar fréttir af framgangi leikanna
Einnig eru upplýsingar um íslensku þátttakendurna
Saga Ólympíuleikanna.
Þátttaka íslendinga í Ólympíuleikum.
Tengingar við aðra Ólympíuvefi.
Fréttir af helstu greinum og úrslitum.
Spjallrás, þar sem jafnvel má hitta fyrir
íslensku þátttakendurna.
Dagbók tveggja ferðalanga í boði íslands-
banka-FBA sem segja frá því sem fyrir augu ber.
SMELLTU ÞÉR ALLA LEIÐ TIL SYDNEY Á mbl.ÍS
ÓLYMPÍULEIKARNIR Á