Morgunblaðið - 30.09.2000, Síða 72
72 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
J
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi
www.haskolabio.is
sími 530 1919
HAUSVERK.IS
Kvihmyml eftir LARS VON TRIER. tónlist eltir BJÖRK
101Reykjavík
Sigurvegarinn á
kvikmydahátiðinni
i Toronto
BJÖRK
CATHERINE DENEUVE
FRUMSYNING
IVteirí hraði
meira gaman
pOWERsýning k' i2
Mynd frá LUC BESSON
Synd kl. 5.20, 8 og 10.40. b.u
| » 29. Beptember - 12. október 2000
Kvikmyndahátíð
í Reykjavík
Dagur með Dusan
Makavejev gesti
kvikmyndahátíðar.
Leyndardómur líkamans,
Misterije Organizma kl. 2.
Ljúf kvikmynd,
Sweet Movie kl. 4.30.
The Filth and the Fury
kl. 10 og 12.
Sýnd kl. 2, 4,6, 8,10 og 12 á miðnætti.
Sýnd kl. 6 og 8.
B. i. 14.
Sýnd kl. 8. b. i.12.
KEVIN BACON
Tæknibrellutryllir ársins sem fer alla leið. Sat 2 vikur á
toppnum í Bandaríkjunum. Frá leikstjóra „Basic Instinct",
„Starship Troopers", „Robocop" og „Total Recall."
íslenski draumurinn fjallar um draumóramanninn Tóta (Þórhallur), en hann
hefur hugsað sér að gerast ríkur á því að selja búlgarskar sígarettur á ís-
landi. Þess á milli lendir hann í rifrildi við fyrrverandi konuna, sem er eitt-
hvað fúl út í Tóta vegna nýju kasrustunnar, sem er 18 ára. Einnig ver Tóti
miklum hluta af frítíma sínum í að annað hvort horfa á fótbolta í sjónvarp-
inu, eða spilar Football Manager á tölvunni sinni.
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.15.
b. i. 16 ára. Vit nr. 129.
■GGDtGfTAL
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 121. ATH! Frikortgilda ekki.
Kaupið miða í gegnum VITÍð. Nánari upplýsingar á vit.is
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Barði Jóhannsson: „Ég er alltaf glaður.“
Muldrað í fón
míkra
ÞAÐ er allt að gerast hjá uglu-
speglinum Barða „Bang Gang“ Jó-
hannssyni enda strákur víst búinn
að hreyfa allrosalega við út-
gáfurisum ytra og annir því gífur-
legar þessa stundina.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
hans í gær og reyndi að fá hann til
að tjá sig um kjarna málsins en þá
var hann staddur á Norðurlandi
nýbúinn að ljúka dómnefndarstörf-
um í Karaoke-keppni Verk-
menntaskólans á Akureyri og við
það að stíga upp í flugvél. Barði
var svo rétt kominn ofan í baðker
þegar blaðið gerði aðra tilraun til
að ná af honum tali.
í þriðju tilraun tókst að hanka
hnokka og garnirnar því reknar
skilmerkilega úr honum. „Jú, það
^■verða tónleikar með Bang Gang á
^ Spotlight í kvöld kl. 22.00,“ til-
kynnir Barði. „Þetta er gert vegna
útgáfu plötunnar You sem kom út
hér á landi fyrir tveimur árum síð-
an en hún er nú að koma út í
Frakklandi og Þýskalandi á east/
west merkinu sem er undirfyrir-
tæki Warner. Þetta verða svona
^kynningartónleikar þar sem von er
á einhverri hersingu af blaða-
mönnum að utan.“
Barði segir Bang Gang verða
fímm manna gengi í þetta sinnið.
„Þeir verða þarna Addi og Jói
Stolíumenn. Þórhallur Bergmann
sér um hljómborð. Ester mun
syngja. Ég mun leika á gítar og
hljómborð og raula með. Muldra.“
Erlenda útgáfan af You er frá-
brugðin þeirri fslensku að nokkru
leyti að sögn Barða. „Það eru tvö
Kid Loco remix og Védís og Sara í
Lhooq syngja í þremur lögum í
stað Esterar. Einnig er búið að
eiga eitthvað við hljóðblöndunina."
Barði segir ólíklegt að þau eigi
eftir að spila aftur allt prógramm-
ið hér á landi en fyrir þá allra
áhugasömustu er tónleikaferð til
Frakklands í nóvember á teikni-
borðinu og Barði hælir Frökkum
mikið, segir þá vera vel með á nót-
unum.
Barði segist feginn því að sjá
loks fyrir endann á þessu út-
gáfuferli sem hefur tekið um og yf-
ir tvö ár. Hann hvetur alla til að
kíkja á tónleikana í kvöld og lofar
gríðarlegri stemmningu.
Nemendur Háteigsskóla voru í essinu sínu á stærðfræðidaginn
Heimsins
stærsti
pappírs-
turn
Skyldi eggið ienda óbrotið?
Vinaflaugin reyndist glæsismíði.
STÆRÐFRÆÐIDAGURINN
var haldinn fyrr í vikunni með
afar góðum árangri. Nemendur
landsins tóku sig þá til, gáfu
hugarfluginu lausan tauminn
og nýttu sér stærðfræðina til
hins ýtrasta við að gera hugdettur
sínar að veruleika.
Nemendur við Háteigsskóla létu
aldeilis ekki sitt eftir liggja. Með
Morgunblaðið sem efnivið lögðu
þau stund á uppbyggilega endur-
vinnslu, ef svo mætti að orði kom-
ast. Allir nemendur skólans tóku á
einn eða annan hátt þátt í bygging-
arframkvæmdunum og spáð var af
miklum áhuga í stærðir, form og
röklega hugsun.
Sköpunarverkin urðu mörg og
skemmtileg. Nokkrir af yngri nem-
endum skólans byggðu vinaflaug.
Flaugin var byggð úr pappahólk-
um og dagblöðum og kallaði á
mikla rannsókn á þrívíðu formi.
Tilgangur flaugarinnar er sá að
treysta vináttuböndin í bekknum.
Inni í hana voru sett sérstök vina-
bönd sem krakkarnir bjuggu til
með fjörugulli og einnig nafnspjöld
nemendanna.
Það var þrautin þyngri
að reyna að halda turninum
háa á lofti.
Eldri nemendur bjuggu til upp-
finningu sem einnig var gerð úr
dagblaðapappír. Þeir festu ósoðið
egg við band sem hékk niður úr
lofti t.d. í kennlsustofu. Skál var
sett á gólfið svolítið frá egginu en
ekki beint fyrir neðan það.
Markmiðið var að gera svo góðan
sleppibúnað og lendingarpall að
eggið kæmist óbrotið ofan í skál-
ina.
Elstu nemendur skólans gerðu
sér síðan lítið fyrir og slógu heims-
met. Þau bjuggi til pappírslíkan af
hinum franska Eiffel-turni og var
markmiðið að byggja eins háan
turn úr dagblaðapappír og hasgt
yrði sem gæti staðið sjálfur. Út-
koman var turn 5 metra og 40
Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins
Stoltir heimsmethafar
við sköpunarverk sitt.
sentimetra að hæð sem gat staðið
sjálfur um tíma. Krakkarnir gengu
sjálfir í skugga um hvort um eitt-
hvert met væri að ræða og svo
reyndist vera, a.m.k. samkvæmt
heimsmetabók Guinness. Fögnuðu
krakkarnir innilega þessum óstað-
festu fregnum að aldrei fyrr hafi
verið reistur svo hár turn úr papp-
ír einum saman. Allir voru krakk-
arnir í skólanum afar stoltir af af-
rekum dagsins og má ljóst vera að
einum að tilganginum með stærð-
fræðideginum hafi verið náð í Há-
teigsskóla - að sýna nemendum
fram á hagnýtt notagildi stærð-
fræðinnar og að það geti vel verið
hin mesta skemmtun að nema
hana.