Morgunblaðið - 14.10.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000 69
Mataræði og krabbamein
„LÍF hverrar frumu er leyndar-
dómur“ sagði Snorri Hjartarson.
Þegar litið er til frumunnar reynist
krabbamein vera sjúkdómur í
erfðaefni okkar. Tilurð krabba-
meins tengist skaða í erfðaefninu
sem safnast upp. Þessi skaði veld-
ur því að frumurnar skipta sér
ótæpilega og stjórnlaust og mynda
að lokum æxli. Með erfðatækni
hefur nú mátt greina á þriðja
hundrað gen sem leika hlutverk í
tilurð krabbameins. Ýmis utanað-
komandi áhrif og áhættuþættir
virðast stuðla að þessum breyting-
um og geta þess vegna beinlínis or-
ið má ekki vera eintómur mein-
lætalifnaður og við þurfum að geta
borðað okkur til ánægju og stund-
um mikið. Það er sjálfsagt en þarf
ekki að gerast á hverjum degi.
Einfalt er að haga fæðuvali sínu
svo að það verði bæði ánægjulegt
að borða fæðuna og stuðli að
lengra og betra lífi. Giskað hefur
verið á að ef unnt væri að draga úr
fituneyslu svo hún næmi einungis
30% af þeim hitaeiningum sem við
neytum á hverjum degi og ef unnt
væri að auka neyslu á trefjum í um
20-30 grömm á dag væri hægt að
lækka dánartölu krabbameins um
tæplega 10%. Þetta samsvaraði því
að íslendingum sem létust úr
krabbameinum fækkaði um 50-60
á ári.
Hvað getur samfélagið gert til
að stuðla að lækkun tíðni krabba-
meins? Að sjálfsögðu ber barátt-
una gegn reykingum þar hæst. Ar-
lega látast rúmlega 400
íslendingar úr sjúkdómum sem
tengjast tóbaksneyslu. Mestu máli
skiptir þar að draga úr fjölda
þeirra sem byrja að reykja. Eng-
inn ætti að verða fyrir alvarlegum
búsifjum þó aðgengið yrði minnkað
með því að fækka sölustöðum veru-
Heilsa
Engum ætti að vera of-
viða, segír Sigurður
Guðmundsson, að borða
fimm ávexti eða græn-
metisskammta á dag.
lega, hækka verðið og herða eftirlit
með því að unglingum sé ekki selt
tóbak enda hefur þetta verið lagt
mjög ákveðið til. Virk krabba-
meinsleit skiptir líka verulegu
máli, vel er að henni staðið hér en
þarf samt að efla. Enginn vafi er á
að unnt er að breyta neyslu græn-
metis og ávaxta með umfjöllun í
samfélaginu og verðstýringu en
verðlag á þessum neysluvörum er
enn of hátt á íslandi. Engum ætti
að vera ofviða að borða fimm
ávexti eða grænmetisskammta á
dag og fer vel á því að beina því til
barna.
Baráttan gegn krabbameinum er
ekki einkamál heilbrigðisþjónust-
unnar eða stjórnvalda heldur er
það samfélagsmál. Hún mun aldrei
bera tilætlaðan árangur nema til
komi þátttaka allra af eigin þörf og
frumkvæði.
Höfundur er landlæknir.
Sigurður
Guðmundsson
sakað krabbamein. Flestir þekkja
helstu áhættuþættina, tóbaksreyk-
ingar, ýmiss konar efnasambönd,
kjarnorkugeislun, sólarljós og út-
fjólubláa geislun og ýmsa sýkla.
Færri vita að mataræði getur
einnig átt þátt í tilurð krabba-
meins. Rannsóknir á sambandi
mataræðis og krabbameins eru að
sjálfsögðu erfiðar en nokkrar stað-
reyndir hafa komið fram. Krabba-
meinsvaldandi efni geta orðið til í
líkamanum vegna baktería í þörm-
um og ber þar hæst ýmiss konar
köfnunarefnissambönd. Islending-
um þykir reyktur og vel steiktur
matur heillandi _og skal það í sjálfu
sér ekki Iastað. í slíkum matvælum
er þó að finna meira af krabba-
meinsvaldandi efnum en í öðrum,
einkum svonefnd hringlaga kolefn-
is- og köfnunarefnissambönd.
Of mikil fituneysla virðist tengj-
ast krabbameinum, einkum í ristli,
brjósti og blöðruhálskirtli. Fitu-
neysla getur skapað aðstæður í
þarmi sem auka líkur á þvi að
bakteríur framleiði krabbameins-
valdandi efni og gæti það skýrt
þessi tengsl. Ofnæring sem leiðir
til offitu hefur tengst krabbameini
í legi og brjóstum. Að undanförnu
hefur allmikið verið fjallað hér á
landi um' gagnsemi hreyfingar og
bent á það að m.a. virðist hreyfing
draga úr krabbameinslíkum.
Astæðan gæti verið sú að hreyfing
dregur úr offitu en í fituvef eru
einmitt framleidd ýmiss konar
hormón sem gætu stuðlað að tilurð
krabbameins.
Aukin áhersla á neyslu ferskra
ávaxta og hrás grænmetis virðist
tengjast minni líkum á krabba-
meini í meltingarfærum, öndunar-
færum og leghálsi. Matvæli sem
innihalda mikið af A-vítamíni og
betakaróteni stuðla einnig að
minni líkum á krabbameini í ýms-
um líffærum. Betakaróten og E-
og C-vítamín eiga það sameiginlegt
að vera svonefnd andoxunarefni og
draga úr myndun hættulegra súr-
efnissambanda sem geta skaðað
erfðaefnið DNA. Rannsóknir
benda til að neysla á þessum víta-
mínum geti dregið úr hjartasjúk-
dómum en hins vegar hefur ekki
komið fram að neysla á vítamínum
sem fæðubótarefnum dragi úr lík-
um á krabbameini. Meira að segja
kom í ljós í nýlegri rannsókn að
neysla betakarótens sem fæðubót-
arefnis jók líkur á lungnakrabba-
meini hjá einstaklingum sem voru
fyrirfram í talsverðri hættu að fá
sjúkdóminn. Hér er því ýmislegt
að varast og hollast að halda sig
við efni í fæðunni sjálfri.
Allir eru sammála um það að líf-
'SW#
■>
Við þökkum öllum þeim þölmörgu gestum sem
heimsóttu Sogs- og Laxárstöðvar í sumar að
skoða listsýningamar sem Landsvirkjun og FÍM
héldu saman.
Við vonum að gestir okkar hafi átt góðar stundir
í stórbrotnu umhverfi stöðvanna.
Velkomin aftur. Við erum þegarfarin að
undirbúa nýjar og spennandi uppákomur
rnesta sumar.
'mmm
ING
:
E
Landsvirkjun