Skírnir - 01.01.1887, Blaðsíða 45
ENGLAND.
47
þeim köllum var gegnt, sem eggjuðu til heimsókna í auð-
mannahverfi borgarinnar '). Frá torginu lögðu svo margar
þúsundir manna af stað með óhljóðum og gauragangi og hjeldu til
vesturhverfis borgarinnar. A leiðinni viða gluggar brotnir með
grjótkasti, en ærslin óxu því meir, er lýðurinn sá, að löggæzlu-
liðið var við öllu varbúið, og viðnám þess varð til lítillar
fyrirstöðu, nema á stöku stöðum, t. d. við stræti sem lá að
höll krónprinsins. þegar vestur var komið, varð meira um
gluggabrot og dyra, og nú var til rána tekið og spella.
Skríllinn eða róstumennir brutust inn í bakara-, ölsala- og
vínsalabúðir, og bergðu því, sem hendur festi á eða spilltu.
Sömuleiðis var mestu rænt og ruplað, sem lá í gluggum gull-
smiða og djásnasala, þar sem gluggar og hlerar höfðu í
sundur gengið. Sumstaðar var að fatabúðum og hatta snúizt
með eins ómildilegu móti. Ærslin stöðvuðust að mestu um
kveldið, er löggæzlulið hafði magnazt til atgöngu og tvistr-
f
unar. Okyrrt heldur næstu dagana á eptir, en af nyjum róstu-
atreiðum varð ekki. Líkar óspektir gerðust í Leicester, en
hjer lítið að gert, áður stöðva tókst. þær fyrstu og helztu af-
leiðingar af þessum róstum voru, að ráðaneytið skipti um lög-
reglustjóra, því hinum gamla var mest kennt um sum glappa-
skot liðsins og handaskol, og i annan stað örfuðust menn svo
til framlaga tii hinna nauðstöddu, að hjálparnefnd borgarstjór-
ans hafði á allskömmum tima fengið 1,264,600 króna.
Af athöfnum Englendinga í öðrum álfum, eða i nýlendum
þeirra er ekki mart að segja. Hið nýja land, sem þeir lögðu
undir sig á Indlandi hinu eystra — land Birmakonungs — er
*) J>að er nú sannað, að köllin komu ekki frá forustumönnum sósíalista,
og því hafa sakir þeirra að mestu fallið niður. En hjer voru
komnir íoringjar eða leiðtogar óstjórnarmanna (”anarkista»), og einn
af þeim hjet Champion, og gekk í ferðarbroddi róstumanna. Hon-
um fórust svo orðin á einum lýðfundi nokkru síðar, að öllum auði
Englands væri skipt á milli i 'U millíónar manna, en 33 millíónir
ættu elcki neitt. Ef enda mætti gera á slíkum ókjörum með því að
skera hina alla á háls, skyldi hann fyrir sitt leyti þess boðinn og
búinn. Að þessu mikill rómur gerður.