Skírnir - 01.01.1887, Blaðsíða 47
ENGLAND.
49
þeir áður hafa kastað á eign sinni. •— í árgangi þessa rits
1884 (27.--29. blss.) er nokkuð sagt af, hvernig hugur Ind-
verja var farinn að snúast að kröfum um sjálfsforræði. þetta
fer i vöxt ár af ári, og hjer standa Hindúar og Múhameðs-
trúarmenn undir sama merki. Fjelög til samverknaðar i þá
stefnu eru upp komin í öllum höfuðhjeruðum hins mikla rikis,
og í öllum stórborgum þess hafa þarlend blöð og rit sama
efni á prjónunum, og á þjóðernis og þjóðkrafafundi er gengið
með miklum áhuga. Indverjar ætlast til, að sjer verði veittir
sjálfsforræðiskostir þeim áþekkir sem enskir ríkisþegnar njóta i
Ástralíu, Kanada og víðar, og tíðindin af irsku deilunni hafa
hjer ýtt ekki lítið undir. Öll blöð þeirra lofuðu Gladstone
sem mest og báðu honum allra virkta og hamingju. 1 tima-
riti, sem Koh-i-Nor *) heitir, stóð sú spá í sumar, að allir
partar hins enska alrikis mundu að dæmi Ira smeigja af sjer
þeim höptum, sem þeim þætti sjer bagi i, hvað sem Englend-
ingar segðu I ritum og blöðum og á fundunum er ekki
sparað að koma við kaun landstjórnarinnar, og þá ekki sízt
þá annmarka, sem loða við fjárhag og fjárhagsstjórn. Tekjurnar
hafa lika minkað á seinni árum, sumpart t, d. af verðlækkun
silfurpeninga, sumpart af því, að ópíumseinokunin hefir kastað
minna af sjer, auk annars, en framlögurnar þyngjast í hvert
skipti, sem þaðan er í hernað ráðizt, sem nú var í Birma og
fyrrum á Afganalandi, en Indverjar segja, að sjer verði að
þeim herferðum að eins byrðarauki en enginn slægur. þeir
heimta nú, að nefnd verði sett til að rannsaka allan fjárhag
Indlands, og hitt með, að skattar og framlögur komi fram-
vegis undir löggjafarþing. jþá er og að því fundið, að vara-
konungurinn og stjórn hans — líklega loptlagsins eða hitans
vegna — sitja átta mánuði ársins uppi í Simla, borg i suður-
hlíðum Hímalaya, en ekki í Kalkúttu, þar sem hún ætti að
vera að staðaldri, — í Kyrrahafi (Ástralhafi) hefir Englend-
mgum og þjóðverjum samizt um, að láta þá linu ráða eignar-
') Nafn hins mesta gimsteins, sem menn hafa þeklct, til þess fyrir
nokkrum árum.
4