Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1907, Side 56

Skírnir - 01.08.1907, Side 56
248 Hví liefir þú yfirgefið mig? unin til að svala henni. Þórður varð var við að hún vakti og' kastaði á hana kveðju. Svo spurði hann: »Viltu ekki fara á fætur og kveikja ljósið«? »Mér sýnist að þú getir það, engu síður en eg«, svaraði hún. Það var nístandi kuldi í röddinni. Þórður svaraði ekki; hon- um fanst lífið vera svo undarlega þungt og einmanalegt, líkast því að hann væri staddur á eyðiey, þar sem livergi sá til lands og engin var hjálparvon. Hann þreifaði fyr- ir sér í myrkrinu og fann þrífættan tréstól og settist á hann við borðið. Og nú mintist hann aftur þess innilega fagnaðar, sem hann hafði fundið til, þegar guð bænheyrði hann í hríðinni forðum og reyndi að biðja til guðs. En honum var ómögulegt að leggja allan hug sinn í bænina;. hún varð tóm orð, köld og dauð. Skyndilega greip hann slík sálarangist, að hann hrökk við og köldum svita sló út um hann: Hann hafði tarpað tilfmningunni um til- veru guðs. — -— Guðrún kom inn með ljós. Hún hafði strax iðrast eftir því, hve hún tók Þórði beisklega og vildi bæta það, en þorði ekki að koma til hans og vissi ekki hvað hún átti til bragðs að taka. Sigriður var nú lika vöknuð og spurði: »Er orðið langt síðan þú komst, pabbi minn?« Köddin var þýð og full af hinni einlægu ást dótturinnar. En hún hafði engin áhrif á Þórð; hugsun hans var rnátt- vana og tilfinningarnar hljómlausar og kaldar. Þetta eitt var skírt: að guð hafði fjarlægst hann smátt og smátt og nú að lokum yfirgefið hann til fulls. Og þá — hvað- hafði hann unnið til? — Eða var guð hefnigjarn? — — Ellegar var hann alls ekki til?----------—

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.