Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1907, Side 64

Skírnir - 01.08.1907, Side 64
256 Alexander Petöfi. Því dapurt og dauft rennur lækur Og drepið úr straumnum er hljóð, En sveinninn svo hraðlega hleypur Og hátt syngur fagnaðar-ljóð. Hvað olli? — hinti hljóðnaði lækur Nú heimhögum fráskilinn rann, En hlaupandi hinn söng svo glaður, Því heimiand sitt aftur hann fann. Það rignir, það rignir. Það rignir, það rignir — en hverju? Það rignir kossnm svo ört. O hve mig sannlega sælan Sú signaða rigning fær gjört! Og svo þegar rignir og rignir, í rennu sjást leiftrin með; Frá augunum þínum þau þjóta, Þau þekki’ eg og tíðum hef séð. En, bitti! nú þrumar, nú þrumar, Æ, það fylgir leiftrum hvert sinn. Eg forða mér, kæra! nú kemur Hann karl gamli, faðir þinn. Svo stór er veröld. •'Svo stór er veröld og þú henni hjá, Míti hjartans dúfan! ó hvað ertu smá, En ef í mína eign þú skyldir falla, Eg ei þig léti fyrir veröld alla. Þú dagur ert, en aldimm nóttin eg, Með engar stjörnur, svört og raunaleg, En, ó hver morgunroði rísa næði, JEf rynnum við í eining saman bæði!

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.