Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1908, Side 9

Skírnir - 01.04.1908, Side 9
Konráð Gislason. 105- Sumarið 1786 útvegar Árni biskup á Hólum Jóni uppreisn, en þó raátti hann ekki verða prestur aftur í Skálholtsbiskupsdæmi. Þetta sama haust kemur Jón að vestan kynnisför norður, og kemur hann þá að Völlum, enda var þar ferjustaðurinn. Miseldri var mikið þeirra hjónanna á Völium, Konráð var vetri eldri en hálfsjötugur, en Jó- fríður hafði einn um tvítugt. önnur munnmælasaga greinir svo, að kynningin væri eigi lengri en það, að húsfreyja ferjaði skáldið yfir Vötnin. Hin sagan segir að Jón hafi verið á Völlum nokkrar nætur, Vötnin óferjandi af haust- vöxtum. Ekki var síra Jón þá búinn að fá Bægisá, en satt mun vera um þetta ferðalag hans þá. Og Gisli er fæddur í Júní 1787. Af óprentuðum erindum eftir síra Jón er það kunn- ugt, að honum var vel til Gísla Konráðssonar, en á því er reyndar lítið að byggja. Jófríður Gísladóttir var fríð kona og vel gefin, en ef- laust hefir henni verið ástlítil giftirigin, er hreppstjórinn tók hana af vergangi. Og í ættinni lifa þau munnmæli,. að síra Eggert í Glaumbæ hafi átt hinn drenginn, sem unga konan ól Konráði gamla. Sá síra Eggert kemur við- æfisögu Gísla (Tímaritið 1897), sagður að hafa verið »ærið við öl« er sveinninn var skírður að Víðimýri. Og svo er mælt um síra Eggert, að aldrei hafi hann ófullur farið af annexíunni, og altaf tekið saman við einhvern sóknar- mann upp úr messunni, og þótti slíkt þá fjör og karl- menska. VII. Konráð var keikur og kvikur fram til efstu elliára. »Hann var vel knár í skóla«, segir Páll Melsteð um hann. »Og báðir voru þeir Jónas vel glímnir«. »Eg sá Konráð' ekki falla í glímu«. Þegar Konráð var maður sjötugur,. var Magnús Eiríksson í jólaboði hjá honum og systurson Konráðs, Indriði skáld, er frá hefir sagt. Vel var veitt og neytt og gekk Magnús um gólf, og gat þess að nú

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.