Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1908, Page 29

Skírnir - 01.04.1908, Page 29
Peningaverðið á íslandi. I. Verðið á peningum er óstöðugt. Ef einhver vildi vita, hve mikið at vaðmáli væri í vaðmálsstranga, þá fengi hann sér stiku og mældi vað- málið. Alnavara er öll mæld á þann hátt, lögur er mæld- ur með pottamáli, og alinin og potturinn er ávalt hið sama ár eftir áx'. Lengd álnavöru og teningsinnihaldið í lagarvörum verður ávalt mælt með mikilli nákvæmni. Sé einhverjum forvitni á að vita, hvers virði alin af vað- máli eða pottur af lagarvöru sé, þá er að komast fyrir, hve mikið af peningum verði að gefa fyrir hana. Þá eru peningarnir alinin, sem alt verð er mælt á. Pening- arnir eða krónan er almenn verðalin, og við þá er allra hluta gildi miðað, sem ganga kaupum og sölum. Alinin og potturinn er áreiðanlegur mælikvarði, og ávalt hinn sami, því að það, sem alinmálið eða pottmálið stækkar við hita og dregst saman við kulda, er svo litið, að það verður ekki tekið til greina. Krónan er þar á móti alinmál, sem á stuttum tíma breytist mikið, og á löngum tíma mjög mikið. Til þess að mæla verðið með, hefir mannfélagið teygjuband, sem stundum skreppur sam- an, en stundum tognar. Auðvitað hafa menn vitneskju um það; en það leynir sér oft lengi, hverníg verðmælir- inn hefir breyzt, því að ein vörutegundin hækkar, en önn- ur lækkar móti peningum, og til þess að finna, hvert verð þeirra er nú í samanburði við það, sem það var einhvern tíma áður, þyrfti að vita verðlag á öllum vörum í hvoru- tveggja skiftið. En verðlag á mörgum vörum en vana- legast algjörlega gleymt, þegar langir tímar eru liðnir.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.