Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1908, Page 38

Skírnir - 01.04.1908, Page 38
134 Peningaverðið á íslandi. sagt verði, að peningarnir hafi fallið í verði um helming á landinu fyrir því. Landið þarf einnig útlendrar vöru við, og hér hafa verið keyptar að kornvörur fyrir 2400 þús. kr., og munaðarvörur fyrir sama verð, að öllu sam- töldu, síðustu árin. Af öllum kornvörum eru keypt árlega hér um bil 250 pund á hvert mannsbarn á landinu, af kaffi eru keypt 14 pund, sykri 45 pund, af öllu tóbaki 2l/2 pund, af vínföngum og öli 9,3 pottar = 18 pund á mann, eða samtals 80 pund af alls konar munaðarvöru á hvert mannsbarn á landinu. Fáist verðið á þessum vörum fyr og nú, þá er búið að fá yfirlit yfir helztu neyzlu- vörurnar, og hvernig peningarnir mælast á móti þeim, og þá vantar ekki mjög mikið á, að ákveðið verði, hvað fæði hvers einstaks manns á landinu hafi kostað áður og kosti nú. í landshagsskýrslum Bókmentafélagsins, I. bindi bls. 583, hefir Sigurður Hansen sett töflur um vöruverð 1849, og þar eru taldar kornvörur og munaðarvörur, og helztu útfluttu vörurnar héðan. Engin skýrsla er til um nokkurt ár nær 1850 en þessi, og hér verður vöruverðið 1849 að gilda sem það væri 1850. Verðið sjálft verða menn að sjá í töfiu Sigurðar Hansens, en hér er sett verð eftir töfiunni á það, sem ætlast er til að einn fullvaxta karl- maður eyði á árinu. Það sem menn eyða nú á dögunr er lagt til grundvallar, og maðurinn er látinn hafa eytt alveg því sama 1849 og menn eyða nú, þótt ekki sé svo í rauninni. Menn höfðu nrinni kornmat þá sér til viður- væris en nú, og minna var drukkið at' kaffi, og minna eytt af svkri, en eyddu miklu meira af vínföngum. Verðið 1901 er tekið eftir landshagsskýrslunum, og 1907 eftir því verði sem kunnugt er. a. Erlendar vörur: 1850 1. Rúgmjöl 264 pd. kr. 18.00 2. Bankabygg 110— — 8.64 3. Baunir 40 — — 2.58 Flyt ... kr. 29.22 1901 kr. 20.00 — 12.00 —____6A0 kr. 38.40 1907 kr. 26.00 — 12.00 — 5.60 kr. 43.60

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.