Skírnir - 01.04.1908, Page 49
Leo Tolstoj
145
nokkur á reki við þá bræður heimsótti þá einu siuni, er
Tolstoj var etthvað 12 ára gamall, og skýrði þeim frá því,
að það væri nú komið upp úr dúrnum þarna í skólanum,
er hann gengi í, að enginn guð væri til og að trúarbrögðin
væru ekkert annað en rugl og vitleysa og tilbúningur.
Tolstoj brá nokkuð kynlega við þetta, en eigi leið á löngu
áður hann sjálfur tók að leggja stund á skólanám og varð
þá hið sama uppi á teningnum að því er hann snerti.
Þeir, skólapiltarnir, litu svo á, að trúarbrögðin væru ekki
annað en kreddur, sem þeir, spekingarnir, gætu ekki lagt
sig niður við, enda væri ekki öðrum boðlegt en sauðsvört-
um almúganum.
Að afloknu undirbúningsnámi gekk Tolstoj á háskól-
ann i Kasan. Lagði hann sérstaklega stund á Austurlanda-
tungumál og lögspeki, en lauk aldrei fulluaðarprófl, enda
þurfti þess eigi, því auðurinn var nógur og erfðagózið,
Jasnaja Poljana, beið hans forstöðulaust. Tók hann
þar við búi á ungum aldri og réðst þegar í ýmsar um-
bætur á högum ánauðugra landseta sinna. Hann átti við
ýmsa örðugleika að stríða, en þó einna mest við hina og
þessa lesfi og breyskleika í fari sinu. Þótt auðurinn væri
mikill og ærnu fé úr að spila fyrir einhleypan mann, leið
•eigi á löngu áður hann var kominn í fjárþröng svo mikla,
að hann sá sér eigi annað fært en að taka sig upp og
flytja suður í Kákasuslönd fyrir sparnaðar sakir og til að
leysa sig úr spilaskuldunum. Hann fór þar á dýraveiðar,
drakk með kunningjum sínum, reit hinar fyrstu sögur
sínar og gekk síðan í herþjónustu, er hann var leiður orðinn
á aðgerðarleysinu. Rússneskar hersveitir voru um þær
mundir að brjóta undir sig bygðir og ból í Kákasuslönd-
unum.
Þegar Krimstríðið hófst, 1854, vildi Tolstoj fyrir hvern
mun komast í herþjónustu á vígvellinum, og fekk hann
því framgengt. Hann var skipaður í hersveit suður á
landamærunum, og nokkru eftir að umsátin mikla hófst
um Sebastopol, var honum stungið inn í stórskotaliðssveit
í varnarliðinu. Gortschakoff fursti, náfrændi hans, var
10