Skírnir - 01.04.1908, Page 82
Um rotþrör
(Septic tank).
Óhreinindi úr mannabýlum eru þrenns konar, sorpr
skolp, saurindi (saur og þvag).
A sveitaheimilum valda þessi óhreindi litlum vand-
ræðum. Sorpinu (sorpi, ösku, alls konar rusli) er safnað'
í haug, öskuhauginn. Skolpinu er helt í hlaðvarpann og
gerlarnir í moldinni taka við því og sundra því, og grösin
éta leifar þeirra. Saur og þvagi er safnað í for (hland-
for) og úr lienni er borið á túnið og allir vita að þessi
áburður er ágætur matur handa grasinu.
Ef bygðin eykst og mörg heimili hnappa sig saman í
þorp eða stórbæi, þá vandast málið; þá geta óhreinindin
safnast fyrir og valdið mestu óþægindum, rotnunarfílu og:
farsóttum, einkum taugaveiki.
Þess vegna er það lögskipaður siður í öllum inyndar-
bæjum nú á dögum, að koma burtu tafarlaust öllum óhrein-
indum. S o r p i er safnað í járnkistur, eina eða fleiri við
hvert liús; úr þeim er hvolft í vagna, einu sinni í viku
eða oftar, og ekið út úr bæjunum; þar er því brent eða
blandað saman við áburð á yrkta jörð. S k o 1 p i öllu úr
húsum er veitt um holræsi neðanjarðar út úr bæjunum.
Saurindum er safnað í vatnsheld ílát í salernunum og
flutt í þeim út úr bæjunum jafnóðum og þau fyllast og
haft til áburðar á yrkta jörð; þó er nú orðið tíðara að
láta saurindin fara úr salernunum niður í holræsin saman
við skolp og regnvatn og er þá vatn látið buna í skálina
undir salernissetunni í hvert sinn, sem einhver hægir sér;