Skírnir - 01.04.1908, Page 84
180
Um rotþrór.
renna í stórar þrór utanbæjar og sett í það ýms efni, sem
eyða rotnun og botnfella óhreinindin; það er mjög dýr
aðferð.
Þá hafa ýmsir bæir (t. d. Berlín) tekið það til bragðs,
að kaupa stórar bújarðir í grendinni og veita skolpinu á
akra og engi; þar verður það jarðvegsgerlunum og gróðr-
inum að bráð og kemur í áburðar stað. En þetta er
einnig mjög kostnaðarsamt og verður ekki komið við al-
staðar.
Það þótti því mikil nýjung, er enskur verkmeistari,
Cameron að nafni, fann nýja, ágæta og ódýra aðferð
til að hreinsa skolp og saurrensli úr bæjum eða einstökum
2. mynd.
húsum. Þessi nýja aðferð, það er hin svo nefnda r o t-
þ r ó (Septic tank).
Cja m e r o n á heima i bænum E x e t e r (um 50 þús.
íbúar) á Suðurenglandi og er enn á lífi. Þangað hefi eg
komið, og fyrsta rotþró Camerons er þar enn til sýnis.
í gestabókinni var fjöldi nafna, læknar og verkmeistarar
úr öllum heimsins áttum.
Þessi gamla rotþró er eins og stórt leiði tilsýndar,
grasgróinn hóll, aflangur, og upp úr honum miðjum járn-
súla, og efst á henni ljósker fyrir gasljós. Innan í hóln-
um er stór steinþró, lokuð; í hana rennur gruggað ræsa-