Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1908, Page 89

Skírnir - 01.04.1908, Page 89
Ritdómar. RAGNAR LUNDBORG: ISLANDS STAATSRECHTLICHE STELLUNG von der Freistaatszeit bis in unsere Tage. Berlin 1908. Það hefir því miður dregist fyrir mér að geta um þessa bók, sem höf. sendi Skírui meðan eg var ritstjóri hans. Eg fekk hana of seint til þess hennar yrði getið í síðasta hefti árgangsius 1907. Efni bókarinnar hefir nú verið rakið svo rækilega í vmsum íslenzk- um blöðum, að ekki er þörf á að endurtaka það hór, né heldur ýmsar smáathugasemdir, er gera mætti, t. d. uni þá skoðun höf. að Islendingar hafi í fyrstu talið sig undir dómsvaldi Haralds hárfagra (bls. 5), er hann byggir á Landnámu, um skoðun höf. á ákvæðum- Gamla sáttmála um utanstefningar (bls. 23 aths.), og um aldur hins slðara sáttmálans (bls. 22), þvf þessi hin síðastnefndu atriði hafa nú verið athuguð í »K(kisréttindum Islands« miklu rækilegar en kostur er á í stuttum ritdómi. Þessar línur verða því aðallega til að þakka höf bókina og mega þar allir Islendingar utidir taka. Hún er rituð svo Ijóst, aðal- gögnum málsins er raðað svo vel og miklu efni komið fyrir í svo- stuttu máli, að ánægja er að lesa. Og það er ekki einskisvert fyrir oss einmitt nú að fá þetta rit á einni víðlesnustu tungu heimsins. Alkunnugt er að öðrum, þjóðum er stjórnmálasaga vor að mestu allsendis ókunn. Og svo er anuað. Þar sem tveir deila, svo sem Islendiugar og Danir, má oft gera ráð fyrir því, að skoðunarhættir á báðar hliðar verði nokkuð einrænir, af því að báðir aðilar eiga hugsmuni í húl'i, en þeir blinda stundum syn. I slíkri baráttu er því mikils- vert að vita, hvernig þeir líta á málið, sem að engu eru við það riðnir né eiga neitt tindir því, hver málalokin verða. Þeir eru óvil- hallir dómendur. Það má því gleðja oss Islendinga að herra Lundborg, sem hefir kynt sér málið svo rækilega, kemst að söniu niðurstöðu um ríkis-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.