Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 1

Skírnir - 01.01.1912, Side 1
Listin að lengja lífið. Eyrirlestur lialdinn á Akureyri, af Steingrími Matthiassyni. Framh. 7. heilrœði: Hœfilegur hiti. Þess var getið hér að framan, að við brenslu nær- ingarinnar í líkamanum framleiðist stöðugt hiti og þessi hiti breytist í margskonar starfsmagn í líffærum líkamans, en líkaminn mundi hitna um of, ef ekki mikið af hitan- um gæti jafnóðum geislað burt og horfið út í loftið. Það er eitt af lífsskilyrðum vorum, að blóðhitinn haldist nokk- urn veginn jafn, eða kringum 37° Celsíus. Hitaframleiðsla og hitaeyðsla likamans verða að haldast i hendur til þess að þessi jafni blóðhiti geti haldist. Meðan þetta jafnvægi helzt, líður okkur vel og okkur er þægilega heitt. Nú kann líkaminn — okkur ósjálfrátt — ráð til þess að við- halda þessu jafnvægi. Aukist framleiðslan, eins og t. d. við mikla áreynslu, þá eykst líka hitaeyðslan að sama skapi. Andardrátturinn verður dýpri og tíðari, en við það kólnar blóðið, sem stöðugt streymir stríðum straumi gegn- um lungun; í öðru lagi svitnar maður og svitinn gufar upp, en við uppgufun svitans eyðist mikill hiti frá hörund- inu, svo það kólnar líka. Ennfremur geta hörundsæðarn- ar slappast og orðið blóðfyllri en ella, hörundið roðnar, og við það getur blóðið kólnað. En aukist hitaeyðslan, eins og t. d. ef vór komum naktir út í mikinn kulda, þá tekur fyrir svita og aðra út- gufun, andardrátturinn verður hægri og hörundsæðarnar kiprast saman við samdrátt hólkmyndaðra vöðva í veggj- um þeirra, svo hörundið hvítnar, verður blóðlítið og hlevp- ir litlum hita burt. 1

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.