Skírnir - 01.01.1912, Blaðsíða 80
«0
Ritfregnir.
eigum vér íslendiugar frændmal og frændmenningu, sem vert væri
að gefa meiri gaum en gert hefur verið til þessa.
Um all langa hríð hafa nú Færeyingar háð ötula baráttu til
endurreisnar tungu sinni og þjóðerni, gefið út bækur og blöð á
móðurmálinu og hlúð af megni að þjóðlegum fræðum og atgjörvi.
•Og þeim hefur orðiö vel á gengt, þótt fáir sóu og fólitlir. Merk-
asta fyrirtæki þeirra í þessa átt upp á síðkastið er stofnun H i n s
færeyska Bókmentafélags, sem befur sams konar mark-
mið að sínu leyti eins og Bókmentafélag vor Islendinga. Félagið
hefur þegar gefið út allmargar merkar bækur, t. d.:
A. C. Evensen: Savn til Feroyinga sögu í 16. öld (1. og 2.
ihefti). Kr. 1,50 hvort.
J. Dahl: Foroysk mállæra. Kr. 1,75.
R. Rasmussen: Plantnlæra (grasafræði; ágæt skólabók), 3 kr.
Kvæðabök I. (Þjóðkvæði Færeyinga), 1 kr.
Regin i Líð: Bábelstornið. Feroysk skaldsöga, 2 kr.
Öilum Norðurlandaþjóðum ætti að renna blóðið til skyldunnar
þegar um það er að ræða, að hlúa að menjum norræns máls og
menningar. En ljúfara og skyldara ætti engum að vera það en
.oss íslendingum að styðja af mætti þennan fólagsskap Færeyinga,
ekki einungis þeirra vegna, heldur líka sjálfra vor vegna. Vór er-
um þeim einna nánastir að frændsemi, máli og þjóðarháttum. Vór
getum fyrirhafnarlaust haft fult gagn af bókum þeirra, af því að
bókmálin eru svo lík, að þar ber fátt á milli, og vór hljótum að
finna þar margan fróðleik, sem varpar birtu yfir ýms atriði í vorri
oigin tungu og þjóðmenningu: Og loks er þess að minnast, að
sjálfir höfum vór notið drengilegs stuðnings frændþjóða vorra til
sams konar framkvæmda. Eg vil því skora eindregið á alla góða
íslendinga, sem unna norrænni þjóðmenningu og norrænni tungu,
að ganga í bókmentafólag Færeyinga. Með því afla þeir sjálfum
sér nýtra bóka og styðja fámenna frændþjóð i menningarbaráttu
hennar. —
Því til sönnunar, að færeyska bókmálið er auðskilið hverjum
íslendingi, set eg hér eina af auglýsingum félagsins:
»Iámir til bókmentafelagiö innskrivast hjá Anton
Degn og R. Rasmussen, Tórshavn, ogA. C. Even-
sen á Sandi. Limagjaldið er 5 k r. á r 1 i g a og limirnir fáa
harfyri t»r bakur, felagið gevur út.<
B. B.