Skírnir - 01.01.1912, Blaðsíða 83
Útlendar fréttir.
8»
málið til enska þingsins. Það var 27. nóv. og sk/rði utanríkis-
malaráðherrann, Edward Grey, þar frá, að um tíma í sumar hefði
alt verið við búið frá Breta hálfu til stríðs; þeir hefðu verið bundnir
samningum við Frakka, og líka haft eigin hagsmuna að gæta. En
vel lót hann yfir, að deilum þessum hefði lokið friðsamlega.
Mulai Hafid Marokkósoldán hefir fallist á samninginn. Líklega
verður nú kyrð þar í landinu fyrst um sinn.
Stríð í Trípólis. Það er sagt, að deila stórveldanna uru
Marokkó, sem frá hefir verið skyrt hór á undan, hafi ýtt undir þá
viðburði, er gerst hafa í Trípólis þrjá síðustu mánuði ársins.
Trípólis er allstórt land á norðurströnd Afríku, suður frá Mið-
jarðarhafi, vestan við Egiptaland en austan við Tunis. Tyrkir
hafa haft yfirráð yfir þessu landi og mestur hluti íbúanna er
Múhameðstrúar, Arabar og 'Pyrkir. Þó er þar í strandborgunum
mikið af Itölum. En samkomulag hefir verið þar ilt milli ítala
og Tyrkja og einlæg kærumál á báðar hliðar. Fyrir 10 árum var
samningur gerður milli stjórnanna í Róm og Konstantinopel um
réttindi ítala í Trípólis. En alt af vcru þó ítalir þar óánægðir
og þóttust ekki ná rétti sínum fyrir Tyrkjum.
Út af þessu varð svo í haust ófriður milli Ítalíu og Tyrk-
lands. 26. september gerði stjórn ítala ymsar kröfur um réttindi
í Trípólis og kvað samninga þá, sem áður hefðu verið gerðir þar
um milli sín og Tyrkjastjórnar, ekki haldnar af Tyrkjum. Hún
krafðist svars þegar í stað. Og er það kom eigi, sögðu ítalir
Tyrkjum stríð á hendur. Það var 29. september. Krafa ítala var
nú, að Tyrkir lótu laust við 3Íg Trípólisland; ella tækju þeir það
með hervaldi.
ítalir eiga allmikinn herflota og vel búinn, en Tyrkir eru illa
vígbúnir á sjó, eiga að eins fá herskip, og þau gamaldags og illa
búin. Þeir gátu því ekkert viðnám veitt ítölum á sjónum. Fóru
nú herskip ítala til Trípólis og bönnuðu Tyrkjum alt samband við
landið frá hafi. Einnig voru herskip þeirra á sveimi í höfunum
kring um Tyrkland og tóku þar tyrknesk skip. Ein flotadeild
ítala, sem Abrússahertoginn, norðurfarinn frægi, styrði, var þar
nærgöngulust Tyrkjum.
Höfuðborgin í Trípólis er samnefnd landinu, heitir Trípólis.
Þar gerðu ítalir höfuðatlöguna. Borgin var víggirt og Tyrkir
höfðu þar nokkurt lið fyrir. Ekki vildu þeir gefa upp borgina
fyrir ítölum að óreyndu. Veittu ítalir þá Trípólisbúum þriggja
6*