Skírnir - 01.01.1912, Blaðsíða 4
4
Listin að lengja lífið.
meir en hann má, og séu þá einhverjar sóttkveikjur á
sveimi, eins og t. d. kvefbakteríur, lunguabólgubakteríur
eða aðrar, geta þær náð tökum á líkamanum og valdið
þeirri sótt, sem þeim er eiginleg.
Ofkælingarsjúkdómar eru tíðustu sjúkdómarnir og
valda miklu óláni og illum afleiðingum í öllum löndum,
en ekki sízt i kaldari löndunum. Þeir eru oft sjálflr mein-
lausir, eins og kvef og inflúenza, en með því að þeir eru
tiðir gestir hjá sumurn rnönnum og þar eð þeir veikja lík-
amann gegn öðrum sjúkdómum, einkura tæringu, valda
þeir miklu meira tjóni en margur heldur.
Það má mikið verjast ofkælingu með hagfeldunr kiæðn-
aði, og varúð gegn vætu og súgkulda. Sérstaklega þarf
að vanda útbúnað um hálsinn, hendurnar og fæturna,
þegar farið er út í kulda, því þetta eru öðrum fremur
»snöggu blettirnir* á líkamanum. En allra bezta ráðið til
að verjast ofkælingarsjúkdómum og illurn afleiðingunr
þeirra er líJcamsherðing.
8. heilrœði: Líkamsherðing.
Að herða líkamann gegn kulda og vosbúð og snögg-
um breytingum hita og kulda er eitthvert öflugasta með-
al, sem vér eigum, til að styrkja heilsuna. Flestir rnunu
hafa lesið um lrinn danska heilsufræðing J. P. Múller,
hvernig hann hefir vanið sig á að klæða sig úr öllum
fötum úti i snjó og frosti og hvernig sem viðrar, til að
iðka líkamsæfirrgar sínar, og svo um böð hans í ísköldu
vatni. En J. P. Múller er ekki sá fyrsti, sem heflr fundið
upp á þessu, heldur hafa menn í flestum löndum frá forn-
öld kunnað þetta og öllum orðið gott af. Margur sjúk-
lingurinn hefir rneð herðingu getað hrist af sér sjúkdóm
sinn. öll heilsuhælismeðferð á tæringarsjúklingum geng-
ur t. d. aðallega út á herðingu, með þvi að venja lungun
við kalt og heilnæmt loft. Þau heilsuhæli hafa gefist einira
bezt, sem bygð hafa verið þar sem mikill kuldi ríkir, eins
og t. d. heilsuhælið í Davos í Sviss 10.000 fet yfir sjávar-
mál. — Eins og áður er ritað, er það mjög sennilegt, að