Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 5

Skírnir - 01.01.1912, Side 5
Listin aö laagja lífið. 5 það sem læknað getur sjúkdóma, sé einnig öflugt ráð til að koma í veg fyrir sömu sjúkdómana. Enda sýnir reynsl- an þetta. Engum er jafn nauðsynlegt að herða sig gegn kulda og þeim, sem eiga við kulda að búa hálft árið eða, meir, eða þar sem veðrátta er jafn umhleypingasöm og hér á Ts- landi. Og »ekki er ráð nema í tíma sé tekið«. Það þarf að herða menn frá blautu barnsbeini. Strax eftir fæðing- una á að venja börnin á að fá kaldan skvett yfir kropp- inn á eftir heitu lauginni. Annars gerir laugin ekki hálft gagn. Og enginn þarf að óttast, að litlu börnunum verði meint af því. Þvert á móti. Þó þau súpi hveljur fyrst í stað og skæli, er það ekki nema holl hreyfing fyrirlung- un, og það Iíður ekki á löngu, áður en þau venjast svo daglegu köldu gusunni, að þau kippa sér ekkert upp við hana. Litlu börnin eru ekki eins miklir pappírsbúkar og margir halda, heldur verða þau það fyrst undir manna- höndum, sem varna öllu kuli að komast að, til að stæla hörundið, með heitum laugum, ótal reifum og þykkum sængum, svo þau ætla að stikna. Nei, náttúran heflr gert nýfæddu börnin svo vel úr garði, að þess eru fleiri en eitt dæmi, að þau hafa þolað að liggja um tíma í kaldri mógryfju, án þess að krókna úr kulda eins og þeim var ætlað. — Ennfremur má herða börnin með því að leyfa þeim að koma út og anda að sér frísku lofti. Margar mæður halda það morði næst, að fara út með börnin fyr en þau eru orðin árs gömul eða eldri. — En >betra er scint en ekki«. Þið ungu piltar og stúlkur, sem enn ekki haflð fengið að herða ykkur fyrir varkárni feðra og tnæðra, rcynið sem allra fyrst að vinna það upp, sem ykkur er áfátt. Herðið skrokkinn með köldu baði á hverjum degi. Kalt steypibað er mest hressandi og vandinn er svo lítill, að þvi þarf ekki að lýsa. En bezt er að hreyfa sig á undan, annaðhvoit á góðum göngutúr, hlaupum, skíðum eða skautaferð, eða með líkamsiðkunum eftir einhverju kerfi (t. d. J. P. Miillers eða líkamsæfingum Olafs Rósen- kranz).

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.