Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 12

Skírnir - 01.01.1912, Page 12
12 Listin að lengja lífið. prestarnir. En það er satt, læknarnir eru að eins sendir til sjúkra »sauða í ísrael« — nema. í Kína. Þar er hús- lækninum borgað fyrir þann tíma sem enginn veikist á heimilinu, en ekkert fyrir þann tima sem sjúkdómar ganga. Lækninum er með öðrum orðum borgað fyrir það eitt, að koma í veg fyrir veikindi, og honum um kent ef það mis- hepnast. Þetta er nú reyndar bygt á hjátrú hjá Kínverj- um, því læknarnir þar kunna ekki annað en bölbænir og aðrar hundakúnstir til að særa burtu illa anda, en í fram- tíðinni, »er burtu þokan líður, er blindar þessi dauðleg augu vor«, verða læknarnir færir um að forða mönnunum frá alls konar illvættum — nota bene — ef fólkið vill. Ef viljann vantar, duga engar prédikanir, og menn »fljóta sofandi að feigðarósi«, hlaðnir alls konar kvillum og kaun- um líkt og Job. Það er því miður ennþá rótgróin trú hjá alþýðu manna víðast hvar, að sjúkdómarnir séu óhjákvæmliegt böl, sem allir verði meira og minna að þola. En þessi hjátrú upprætist með vaxandi þekkingu. — Aður fyr trúðu menn því, að sjúkdómar væru refsidómar guðs eða hirt- ingarvendir syndugra manna. Nú er sú trú farin að dofna og menn farnir að sjá að sjúklingar eru ekki yfirleitt »syndugri en aðrir menn í Galileu«, þó þeir verði veik- indunum að bráð. Trúin á að t. d. slæmar farsóttir séu refsidómar drott- ins eins og plágurnar á Egyptalandi, hefir lialdist fram á vora daga, og lýsir sér enn þá á Rússlandi þar sem kóler- an er að geysa. Eu »ótti drottins, er upphaf viskunnar«, segir prédikarinn. Ottinn fyrir þessum refsidómum hefir haft það gott í för með sér, að hann hefir komið mönnum til að upphugsa margt til að koma í veg fyrir og afstýra plágunum með skynsamlegu viti, því reynslan hefir ætið sýnt, að »guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur«. Hræðslan við plágurnai1 og sjúkdómana yfirleitt hefir sem hirtingarvöndur komið mönnum til að sjá að sérogtemja sér margs konar varúðarreglur gegn sjúkdómunum. Og þannig er heilsufræðin til orðin.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.