Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 17

Skírnir - 01.01.1912, Page 17
Göngu-Hrólfr. 17 steinssonar glumru, ívarssonar Upplendingajarls Hálfdan- arsonar. Þessa arfsögn hefir prófessor Gustav Storm rök- samlega varið í riti sinu: »Kritiske Bidrag til Vikinge- tidens Historie« (I. 130—191. bls.), og sýnt fram á það, að ýmsar Ó3amkynja sagnir hafa runnið saman í sögu Dúdós, sem haft hefir mjög óljósar hugmyndir um heimkynni vík- inganna og orsakirnar til víkingaferðanna, en þótt það mestu skifta, að bera lof á jarlsættina og skreyta rit sitt með margskonar mærð og klausturlærdómi1). Dúdó getur auðvitað eigi annars, en að Hrólfr hafi haldið vel kristni, «n annar frakkneskur rithöfundur (Ademar), er var sam- tíða Dúdó (litlu yngri), telur hann hafa verið mjög bland- inn í trúnni, þótt hann hefði látið skírast, og styrkist sú frásögn af latneskum eftirmælum eftir Vilhjálm Rúðujarl Hrólfsson (f 942), er segja að Vilhjálmur hafi átt ókristinn föður, en kristna móður, og venð fæddur fyrir handan sæ (o: Ermarsund, en Dúdó lætur hann fæðast i Normandí). Koma síðari atriðin heim við sögn Landnámu um Kaðlínu dóttur Göngu-Hrólfs, er átt hafi (með Bjólan konungi) Nið- björgu, sem var hertekin á Skotlandi (nál. 930—40) og varð móðir Osvífrs hins spaka. Eftir þeirri arfsögn virð- ist Hrólfr hafa átt börn við kristinni konu á Skotlandi, áður en hann fór »vestr i Valland«. Sömuleiðis hefir Storm leitt rök að því, að annar sagnaritari Norðmenninga, Vilhjálmur, munkur í Jumiéges (Guillelmus Gemmeticen- sis), er ritað hefir sögu sína um 1070, fer að vísu mest eftir riti Dúdós, það sem það nær, en virðist engan trúnað hafa lagt á frásögn hans um upphaf oe útför Hrólfs, því að hann sleppir öllum sögukafianum um þá hluti, og lætur víkingana, er í Rúðuborg settust, velja Hrólf (með hlut- kesti?) fyrir liðsforingja, en skýrir alls ekkert frá ætterni hans né frændsemi við Danakonunga, enda gjöra önnur frakknesk sagnarit frá 11. öld það eigi heldur, svo sem ') Kirkjusöguhöfundur Norömenninga (Ordericus Yitalis, f eftir 1141) ■gegir að Dúdó hafi samið mærðarfulla lofræðu um Rúðujarla til að ivinna sér hylli Kíkarðs II. (sjá Norm. I. 32). 2

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.