Skírnir - 01.01.1912, Page 30
30
Göngu-Hrólfr.
mikið skipalið úr ýmsum áttum, og um þær mundir ganga
fáar eða engar sögur af ættmönnum Ivars í Dyfiinni, en
eftir að lið þetta hvarf frá París og tvístraðist, geta írsk-
ar árbækur um komu ívarssona með afarmiklu skipaliði
til Dyflinnar (árið 888)1). Það eru því nokkur líkindi til
þess, að þeir hafi um stund slegist í lið með víkingum
þeim, er um París sátu, og styrkist það af því, að við um-
sátrið er getið konungs nokkurs, sem »Sinric« er nefndur,
og ætlaði sér að fara herskildi um alt Frakkland að upp-
sprettum Signu2 * *). Nafnið virðist vera afiagað úr »Sigtrygg»8),
en það nafn var einmitt ættgengt með ívars-niðjum, og
kalla sum rit bróður ívars því nafni4). En hafi Norðmenn
frá Irlandi og Suðureyjuin slegist í lið með víkingum við
Signu um 885, var við að búast, að þeir gjörðu það eigi
síður um 890—900, er víkingaherinn fór herskildi um
England (892—96) rétt áður en hafin var sú herferð til
Frakklands (896—97), er lauk með því, að herinn tók sér
þar bólfestu. Eins og öll líkindi lúta að því, að talsverð-
ur hluti hers þess, er Alfráður ríki Englakonungur (871—
901) hafði barist við og sæzt siðan við og fengið bústaCi
á Austur-öngli, hafi eigi viljað setjast um kyrt með Gormi
(Goðþormi) konungi sínum, heldur sótt suður til meginlands5 6)
undir merkjum þeirra Goðröðar og Sigfröðar, svo sem fyr
var á minst, eins horfir sú ætlan beint við, að margir liðs-
manna þeirra, er fylgt höfðu Hrólfi, þá er hann herjaði
við Signu og tók Rúðuborg í upphafi 10. aldar, hafi eigi
sezt að í Normandí, heldur leitað sér annara forlaga, og
ráðist þá í för með ættmönnum Ivars, er þeir sóttu til
írlands og Norðimbralands og eignuðust þar ríki á öðrum
áratug 10. aldar. Þetta styðst við enskar og írskar frá-
sagnir um víkinga sunnan um sæ, er herjuðu til Bretlands-
‘) Norm. II. 142.
*) Norm. II. 229.
8) Sbr. „Segerich11 Ad. Br. I. 54 = Sigtryggr (f 943). „Sirichius11
i latnesku riti = Sigtryggr faðir Ólafs kvárans. (Norm. III. 64. n. 5).
4) Ann.Inisf., Giraldus Cambrensis, sjá Norm. II. 146.
6) Krit. Bidr. I. 72., 79., sbr. 149. bls.