Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 37

Skírnir - 01.01.1912, Page 37
Steiiibituriim. 87 ímynda mér að æfíntýrahetjunum hafi verið, þegar þeir leituðu gistinga í skálum risanna. Mér fanst eins og Páll gefa það í skyn með þögninni og augnaráðinu: Hafðu hægt um þig í nótt, drengur minn, því að eg er svefn- styggur. En á morgun verðurðu steiktur á teini. Þó var Páll aldi ei vondur við mig, á meðan eg var hjá honum, — nema einu sinni. Fjörðurinn blind-fyltist af ýsu snemma í nóvember- mánuði. Það brást nærri því aldrei, að ýsuhlaup kæmi í fjörð- inn einhvern tíma um það leyti. Og þá var reynt að láta hendur standa fram úr ermum til að ná ýsunni á land. Þá voru allir hættir að róa út úr firðinum. Góðu veiðarfærin, sem komið hafði verið upp um sumarið, og enn voru nýtileg á djúpsævi, voru hengd upp til geymslu til næsta árs. Slitnar og lélegar lóðir með kol-ryðguðum önglum voru hnýttar saman í langar trossur, svo að 1000 tii 1200 önglar voru í lengjunni. Þetta var beitt með öllu, sem til náðist, og lagt í fjörðinn undir nóttina. Nærri má geta, hvort ekki var þröng í firðinum, þegar 20—30 útgerðarmenn lögðu þessar feikna-löngu lóðir allar á sama svæðinu. Hjá því varð varla komist, að eitthvað flæktist saman. Og það var sagt um Pál steinbít, að hann sæi ekki mikið eftir því, þó að lóðin hans flæktist saman við lóðir annara. Það var meira að segja almælt, að hann legði á ská yfir lóðir nágranna sinna eða þræddi með þeim, til þess að lóðirnar s k y 1 d u flækjast saman. Þegar svo bar undir, var um að gera, að vera á u n d a n hinum til að vitja um lóðina. Það brást aldrei að Páll gerði. Og þegar hann dró upp ióðir nágrannanna, ásamt sinni, og alt var flækt saman í bendu, þá var svo sem ekki verið að spyrja að þvi, á hverri lóðinni fiskurinn var. Páll hirti það sem hann náði til.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.